Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimir er með 4. stigs krabbamein: Áheitaboðsund honum til styrktar

Heimir er með 4. stigs krabbamein: Áheitaboðsund honum til styrktar
Heimir og börn hans|John Thomas

Heimir Hilm­ars­son 53 ára, ein­stæður faðir fimm barna á aldr­inum 5 – 26 ára, greind­ist með fjórða stigs lungna­krabba­mein 20. des­em­ber, þá hafði meinið dreift sér í lær­bein og gert honum ófært um að ganga.

Næstu helgi, 28. – 29. febr­úar frá 18:00 – 18:00 ætlar hópur fólks að synda sam­fleytt boð­sund í sól­ar­hring og safna með því áheitum og stuðn­ingi fyrir Heimi og börnin hans. Sundið fer fram í Sundhöll Hafn­ar­fjarðar, Herj­ólfs­götu 10. Bæði er hægt að heita á hóp­inn ákveð­inni upp­hæð á hvern kíló­metra eða leggja upp­hæð að eigin vali inn á söfn­un­ar­reikn­ing Heimis.

Reikn­ingur og kennitala:
Reikn­ingur númer: 0545-14-002499
Kennitala: 170766-5559

Áheit á hóp­inn og ánafna ákveð­inni upp­hæð á hvern kíló­metra:
Miðað við einn í laug­inni í einu stefnir hóp­ur­inn á að synda að minnsta kosti 72 km.
Skráning áheita fer fram hér.

Heimir fimm barna faðir glímir við krabba­mein Mynd / Aðsend

Sjá einnig: Heimir ein­stæður fimm barna faðir glímir við 4. stigs lungna­krabba­mein: Söfn­un­ar­reikn­ingur stofn­aður fyrir börnin

Þann 20. des­em­ber greind­ist Heimir með fjórða stigs lungna­krabba­mein sem hafði dreift sér í lær­bein og gert honum ófært um að ganga. Hann var búinn að fara nokkrum sinnum til læknis út af fæt­inum og öðrum verkjum en engar myndir voru teknar og hann var aðeins greindur með tognun á mjöðm og stoð­kerf­is­verki, að sögn elstu dóttur hans.

Þremur vikum fyrir jól var Heimir að fara með fimm ára dóttur sína á leik­skól­ann, það var hálka úti, og Heimir rann á haus­inn þegar hann ætl­aði að fara inn í bíl­inn. Þar lá hann bjarg­ar­laus í smá­stund, eða þar til dóttir hans skrúf­aði niður rúð­una og spurði hann af hverju hann vildi ekki keyra sig í leik­skól­ann. Þá staulað­ist hann inn í bíl­inn og keyrði hana í leik­skól­ann. Þar gat hann kallað á eina mömm­una sem var að koma með barnið sitt í leik­skól­ann og beðið hana um að taka dóttur sína inn í leið­inni, eins og segir í við­burði sem stofn­aður hefur verið um áheita­sundið.

Við­burður á Facebook

Heimir varð sér úti um hækjur eftir þetta og gekk með þær í um þrjár vikur, en það gekk mis­vel. Þegar elsta dóttir hans kom frá Danmörku til að vera hjá honum um jólin, þá sá hún að það þyrfti að láta líta á hann og fóru þau því upp á neyð­ar­mót­töku Land­spít­al­ans í Fossvogi þann 20. des­em­ber. Þar báðu þau um að það yrði tekin mynd af fæt­inum. Myndin sýndi mein­varp efst í lær­bein­inu og mjaðm­ar­lið og fjögur brot í liðnum. Efsti partur lær­leggs var því eins og egg með brot­inni skurn sem ekki mátti við neinu. Næsta mynda­taka var lungna­mynd sem sýndi æxli í vinstra lung­anu sem eru upp­tökin að krabba­mein­inu og það hefur einnig breiðst út í önnur bein svo sem rif­bein, herða­blað og við­bein. Krabba­meinið er ekki skurð­tækt en lækn­arnir ákváðu á aðfanga­dag að fjar­lægja mein­varpið í mjöð­minni og setja gervi­lið í stað­inn svo að Heimir gæti gengið.

Heimir, ásamt börnum sínum fimm og Þorbjörg Kristín Þor­gríms­dóttir, móðir elstu þriggja barn­anna, ásamt tveimur yngri börnum hennar. Mynd / Aðsend

Heimir var á spít­al­anum í 11 daga, en fékk að fara heim í leyfi á aðfanga­dags­kvöld til að vera með fjöl­skyld­unni. Hann fór svo í aðgerð á jóla­dag þar sem mein­varp­inu var smúlað út og nýjum mjaðm­ar­lið var komið fyrir. Á gaml­árs­dag fór hann svo heim með nýja mjöðm og til­bú­inn að hefja slag­inn við „krabba­menn­ina“ eins og fimm ára dóttir hans kallar meinið.

„Það sem er í stöð­unni núna gegn krabba­mein­inu er lyfja­með­ferð hjá Land­spít­al­anum, jákvæðni, von og hug­rekki og við biðjum Guð um styrk til að hjálpa honum og börn­unum hans í gegnum þetta verk­efni,“ segja þau sem standa að við­burð­inum.

Fleira verður í boði en bara sundið og því er til­valið að mæta og styrkja Heimi og börn hans og taka þátt í og/eða horfa á annað sem verður í boði.

Samhliða sund­inu á laug­ar­dag­inn ætlar Kraftur að vera með perlu­borð frá klukkan 14:00-18:00 þar sem fóki gefst kost á að styðja Kraft með því að perla arm­bönd.

Töfra­mað­ur­inn John Thomas mun sýna töfra­brögð á sund­laug­ar­bakk­anum kl. 16:00 og 17:00 á laug­ar­deg­inum. Akró Ísland sýnir listir sínar. Kaffi, vöfflur og fleira góð­gæti verður til sölu.

John Thomas
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina