Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Erum að bregðast börnum á Ísland með mikilli mengun miðað við höfðatölu

Erum að bregðast börnum á Ísland með mikilli mengun miðað við höfðatölu
|Ísland er í 9. sæti|Mynd / UNICEF

Engin þjóð í heim­inum er með full­nægj­andi hætti að verja heilsu, umhverfi og fram­tíð barna sam­kvæmt nýrri tíma­móta­skýrslu nefndar skip­aðri 40 sér­fræð­ingum í mál­efnum barna og ung­linga um allan heim.

Nefndin var sett á lagg­irnar af Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO), UNICEF og hinu virta lækna­riti The Lancet og er skýrslan, sem ber yfir­skrift­ina A Future for the World‘s Children? afrakstur tveggja ára vinnu.

Skýrslan er sú fyrsta sinnar teg­undar sem skoðar stöðu heilsu og vel­ferðar barna í löndum heims­ins, meðal ann­ars með til­liti til loft­lags­breyt­inga og ann­arra utan­að­kom­andi þátta sem nútíma­börnum stafar ógn af. Skýrslan er því býsna svört. Þar segir að heilsu og fram­tíð allra barna og ung­menna sé ógnað af vist­fræði­legri ósjálf­bærni, lofts­lags­breyt­ingum og óheið­ar­legri mark­aðs­setn­ingu stór­fyr­ir­tækja sem halda óhollu skyndi­bita­fæði, sykruðum drykkjum, áfengi og tóbaki að börnum heims­ins, segir í til­kynn­ingu frá UNICEF.

„Þrátt fyrir fram­farir í heilsu­vernd barna og ung­linga síð­ustu 20 ára þá er okkur hætt að miða áfram í þessum efnum og erum komin í bakk­gír,“ segir Helen Clark, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands og annar for­manna nefnd­ar­innar.

„Áætlað hefur verið að um 250 millj­ónir barna undir fimm ára aldri í lág- og milli­tekju­þjóðum muni ekki ná við­un­andi þroska­mark­miðum miðað við mæli­kvarða okkar á vaxt­ar­röskun og fátækt. En það sem verra er þá standa öll börn heims­ins nú frammi fyrir hreinni ógn við til­vist sína  vegna lofts­lags­breyt­inga og skað­legra áhrifa frá mark­aðs­öflum. Þjóðir heims­ins þurfa að end­ur­hugsa algjör­lega nálgun sína í heilsu­vernd barna og ung­menna til að tryggja að við pössum ekki aðeins upp á börnin í dag heldur kom­andi kyn­slóðir einnig.“

Mynd / UNICEF

Loftslagsbreytingar ógn við framtíð allra barna

Í skýrsl­unni, sem er umfangs­mikil, er að finna nýja alþjóð­lega vísi­tölu 180 þjóða þar sem bornir eru saman mæli­kvarðar á hvernig börn dafna út frá lífslíkum, vel­ferð, heilsu, menntun, nær­ingu, sjálf­bærni og yfir­liti yfir losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í við­kom­andi landi og mis­skipt­ingu.

Þegar ein­ungis er litið til hefð­bund­inna vel­ferð­ar­við­miða eins og heilsu, mennt­unar, nær­ingar og barna­dauða (e. sur­vive and thrive mæli­kvarða) þá trónir Noregur í efsta sæti, Suður Kórea í öðru og Holland í þriðja. Ísland er í níunda sæti eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd. Verst er staðan hjá Mið-Afr­íku­lýð­veld­inu, Tsjad, Sómalía, Níger og Malí.

Ísland er í 9. sæti

Mik­il los­un gróður­húsaloft­teg­unda dreg­ur Ísland niður list­ann

En þegar losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda miðað við höfða­tölu í hverju þess­ara topp­landa eru tekin með í reikn­ing­inn yfir sjálf­bærni þá hrapa þau niður list­ann. Noregur fer úr fyrsta sæti í það 156. Suður-Kórea úr öðru sæti í það 166. og Holland niður í 160. sæti. Ísland fer úr 9. sæti í 163. sæti og er ástæðan fyrir því að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér er skv. skýrsl­unni 283% umfram los­un­ar­mark­miðin sem sett hafa verið fyrir árið 2030. Í stuttu máli, ríku löndin eru að menga of mikið.

Skýrslan bendir á að á meðan fátæk­ari lönd þurfi vissu­lega að gera meira til að bæta lífslíkur og heilsu­vernd barna sinna þá sé það stað­bundn­ari vandi á meðan óhóf­leg losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda meðal rík­ari þjóða sé ógn við fram­tíð barna um allan heim. Miðað við núver­andi spár fer hnatt­ræn hlýnun yfir 4°C árið 2100 sem myndi hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir allt líf á jörðu.

„Rúmlega tveir millj­arðar manna búa í löndum og við aðstæður þar sem neyð­ar­á­stand, átök og nátt­úru­ham­farir, sem tengja má hnatt­rænni hlýnun, hindra þróun,“ segir Awa-Coll-Seck, heil­brigð­is­ráð­herra Senegal og annar for­manna nefnd­ar­innar.

„Á meðan fátæk­ustu þjóð­irnar losa flestar minnst af koltví­sýr­ing þá koma afleið­ingar hnatt­rænnar hlýn­unar verst niður á mörgum þeirra. Að byggja upp betri og við­un­andi aðstæður fyrir börn til að lifa og blómstra inn­an­lands á ekki að kosta það að grafið sé undan fram­tíð barna á heims­vísu.“

Fram kemur í skýrsl­unni að einu löndin, sem eru á réttri leið með að ná los­un­ar­mark­miðum sínum miðað við höfða­tölu fyrir árið 2030 og eru líka á topp 70 yfir þjóðir þar sem börn lifa og dafna best, séu Albanía, Armenía, Grenada, Jórdanía, Moldóva, Srí Lanka, Túnis, Úrúgvæ og Víetnam.

Níðst á börnum með skaðlegri markaðssetningu

Skýrslan beinir einnig kast­ljós­inu að þeirri ógn sem börnum stafar af skað­legri mark­aðs­setn­ingu fyr­ir­tækja. Rann­sóknir benda til að börn í ákveðnum löndum sjái allt að 30 þús­und aug­lýs­ingar á ári, bara í sjón­varpi.

Í Banda­ríkj­unum er áætlað að rafrettu­aug­lýs­ingar hafi náð til rúm­lega 24 millj­óna ung­menna á síð­ustu tveimur árum sem er aukn­ing um 250 pró­sent.

Pró­fess­or­inn Anthony Costello, einn höf­unda skýrsl­unnar, segir að til­raunin með að mark­að­ur­inn hafi eft­ir­lit með sjálfum sér hafi mis­heppn­ast hvað þetta varðar.

„Rann­sóknir í Ástralíu, Kanada, Mexíkó, Nýja-Sjálandi og Banda­ríkj­unum – svo dæmi séu tekin–  sýna að þegar mark­að­ur­inn setur sér sjálfur reglur hindrar það ekki að aug­lýs­ingum sé beint að börnum. Sem dæmi má nefna þá var það þannig í Ástralíu, þrátt fyrir að iðn­að­ur­inn hafi skuld­bundið sig til að hafa eft­ir­lit með þessum hlutum, að rúm­lega 50 millj­ónir áfeng­is­aug­lýs­inga urðu á vegi barna og ung­menna á einu ári við að horfa á íþrótta­við­burði í sjón­varpi eins og fót­bolta, krikket og ruðn­ing. Tölurnar eru vafa­laust miklu verri enda höfum við litlar upp­lýs­ingar um aukin umsvif á sam­fé­lags­miðlum og því aug­lýs­inga­efni sem beint er að börnum og ung­mennum þar.“

Og það er meira en bara nikótín og áfengi sem haldið er að börnum. Mark­aðs­setn­ing á skyndi­bita­fæði og sykruðum drykkjum á stóran þátt í yfir­þyngd og offitu hjá börnum. Töl­fræðin sýnir að fjöldi barna og ung­menna í offitu ell­efu­fald­að­ist á tíma­bil­inu 1975 til 2016.

Stefnuyfirlýsing um tafarlausar aðgerðir í þágu heilsu barna og ungmenna

Til að verja börn kalla skýrslu­höf­undar eftir nýrri alþjóð­legri hreyf­ingu sem drifin verði áfram fyrir börn. Þau nefna sem dæmi:

*Stöðva verður losun koltví­sýr­ings (CO2) strax til að tryggja börnum fram­tíð á þess­ari plánetu.
*Setja börn og ung­menni í for­grunn þess­arar vinnu okkar við að ná sjálf­bærri þróun.
*Móta þarf nýja stefnu og fjár­festa í öllum greinum tengdum heilsu barna og rétt­indum.
*Leyfa röddum barna að heyr­ast í ákvarð­ana­töku um fram­tíð þeirra.
*Stjórn­völd verða að taka fastar á skað­legri mark­aðs­setn­ingu í hverju landi fyrir sig sem yrði studd með nýrri val­kvæðri bókun við Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Dr. Richard Horton, rit­stjóri The Lancet, segir að nú sé tæki­færið.

„Sönn­un­ar­gögnin liggja fyrir. Verk­færin eru til staðar. Frá þjóð­ar­leið­togum til sveit­ar­stjórna, frá leið­togum Sam­ein­uðu þjóð­anna til barn­anna sjálfra þá kallar þessi nefnd eftir dögun nýrra tíma í heilsu barna og ung­menna. Það mun útheimta hug­rekki og stað­festu til að ná settu marki. Þetta er stærsta próf­raun okkar kyn­slóðar,“ segir Horton.

„Frá lofts­lags­breyt­ingum, offitu og skað­legri mark­aðs­setn­ingu standa börn um allan heim frammi fyrir ógnum sem þóttu óhugs­andi fyrir nokkrum kyn­slóðum síðan,“ segir Hen­ri­etta Fore, fram­kvæmda­stjóri UNICEF. „Það er tími til kom­inn að end­ur­hugsa heilsu­vernd barna, þar sem börn, þeirra hagur og það sem þeim er fyrir bestu verður sett ofan á í allri ákvarð­ana­töku stjórn­valda.“

„Þessi skýrsla sýnir að leið­togar heims­ins eru of oft að bregð­ast börnum og ung­mennum. Þeim er að mis­takast við að vernda heilsu þeirra, rétt­indi og verja plánet­una þeirra.“ Segir Dr. Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO.  „Þetta verður að vera vakn­ingin fyrir allar þjóðir að fjár­festa í heilsu og fram­tíð barn­anna og tryggja að raddir þeirra heyr­ist, rétt­indi þeirra  séu virt og stefnt verði að því að skapa fram­tíð sem hæfir börnum.“

Börn á Íslandi hafa tækifæri til að blómstra og dafna

„Samkvæmt öllum hefð­bundnum mæli­kvörðum er gott að vera barn á Íslandi eins og nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýna. Börn hafa hér öll tæki­færi til að blómstra og dafna. Þar sem við erum hins vegar að bregð­ast börnum, líkt og hinar ríku þjóð­irnar, er hversu mikið við mengum miðað við höfða­tölu. Þar þurfum við að grípa til taf­ar­lausra aðgerða og gera meira enda eigum við langt með að ná þeim los­un­ar­mark­miðum sem sett hafa verið fyrir árið 2030. Í þess­ari skýrslu er litið lengra en bara til stöð­unnar eins og hún er í dag. Hér er stóra myndin skoðuð og tekið með í reikn­ing­inn sjálf­bærni okkar og fram­tíð plánet­unnar fyrir kom­andi kyn­slóðir. Við þurfum að skuld­binda okkur til að skapa fram­tíð sem hæfir börnum og þar höfum við Íslend­ingar öll tæki­færi til að vera í far­ar­broddi,“ segir Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi.

Skýrsl­una má lesa í heild sinni hér á vef­síðu The Lancet.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina