Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjármálalæsi Íslendinga er verulega ábótavant

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa margir snar­lækkað vexti á hús­næð­is­lánum und­an­farin miss­eri, sam­hliða lækk­andi stýri­vöxtum. Á allra síð­ustu árum hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað hratt umfram verð­lag. Þetta hefur skapað góð skil­yrði til end­ur­fjár­mögn­unar, sem ýmist getur haft í för með sér lægri vaxta­greiðslur eða styttri láns­tíma.

Fjármálalæsi Íslendinga er verulega ábótavant
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Sjá einnig: End­ur­fjár­mögnun getur lækkað vaxta­kostnað um hund­ruð þús­unda

Hröð eignamyndun

Vísitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað mjög hratt síð­ustu ár. Að með­al­tali kostar íbúð sem kost­aði 30 millj­ónir í des­em­ber 2015 41,6 millj­ónir króna í des­em­ber 2019. Það er 38,6 pró­senta hækkun. Á sama tíma­bili hefur almennt verð­lag aðeins hækkað um 9,8 pró­sent. Íbúða­verð hefur því hækkað mikið umfram almennt verð­lag í land­inu. Húsnæðið hefur með öðrum orðum hækkað miklu meira en lánin.

Þessi hraða hækkun fast­eigna­verðs hefur leitt af sér mikla eigna­myndun þeirra sem eiga hús­næði, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sér­stak­lega. 30 millj­óna króna íbúð, keypt í des­em­ber 2015, hefur þannig hækkað um 11,6 millj­ónir króna. 21 milljón króna verð­tryggt lán, sem hvílir á sömu íbúð, stendur í lið­lega 23 millj­ónum í dag, þegar horft er fram hjá afborg­unum. Með öðrum orðum gæti sá sem átti 10 millj­ónir í umræddri íbúð í lok árs 2015, átt 16,5 millj­ónir í íbúð­inni í dag. Þessi þróun spilar lyk­il­hlut­verk í þeirri stöðu sem upp er komin á lána­mark­aði í dag. Sá sem fékk grunn­lán hjá Lands­bank­anum fyrir 70 pró­sent af kaup­verði áður­nefndrar 30 millj­óna króna íbúðar, í des­em­ber 2015, fékk 21 milljón að láni. Segjum að hann hafi fjár­magnað næstu 15 pró­sent, eða 4,5 millj­ónir, með við­bót­ar­láni, eða -lánum, á hærri vöxtum. Hann hefði sam­tals skuldað 25,5 millj­ónir króna. Þær millj­ónir gætu í dag staðið í um það bil 28 millj­ónum, vegna verð­bóta. Eign­ar­hlutur hans, sem var 15 pró­sent fyrir fjórum árum, stendur í um það bil 32,7 pró­sentum þessum fjórum árum síðar.

Í dag er íbúðin hans, ef um dæmi­gerða eign á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að ræða, um það bil 41,6 millj­óna króna virði. Það þýðir að hann gæti, með því að greiða upp lánið með nýju lánsfé (end­ur­fjár­mögnun) fengið millj­ón­irnar 28 allar í formi grunn­láns, á mun hæg­stæð­ari vöxtum en hann fékk við­bót­ar­lánin á áður. Og vegna þess hve líf­eyris – sjóð­irnir hafa lækkað verð­tryggða, breyti­lega vexti sína mikið und­an­farin miss­eri, gæti grunn­lánið hjá einum af þeim líf­eyr­is­sjóðum sem bjóða hag­stæða verð­tryggða vexti, orðið mun hag­stæð­ara til afborg­unar en áður. Hann gæti ýmist lækkað vaxta­greiðslur sínar veru­lega – og um leið greiðslu­byrði – eða stytt láns­tím­ann svo um munar.

Ýmis skilyrði fyrir lántöku

Hér fyrir neðan má lesa raun­veru­legt dæmi um fólk sem á kost á því að helm­inga vaxta­greiðslur sínar, með end­ur­fjár­mögnun hjá einum af þeim líf­eyr­is­sjóðum lands­ins sem býður hvað bestu kjörin á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum með breyti­lega vexti.

Hafa ber í huga að ýmis skil­yrði geta komið í veg fyrir að fólk geti end­ur­fjár­magnað. Flestir líf­eyr­is­sjóð­irnir lána 70 pró­sent af kaup­verði eða fast­eigna­mati en bank­arnir lána á bil­inu 80 til 85 pró­sent. Sum lán bera upp­greiðslu­gjöld, stundum 1 pró­sent, en ganga þarf úr skugga um það áður en til endur­­f­jár­mögn­unar kemur. Margir sjóðir eru einnig með það skil­yrði að lán­taki eigi aðild að sjóðnum, áður en lán er veitt.

Dæmi um lækkun greiðslu­byrði.

Íslendingar illa læsir á fjármál

Breki seg­ist ekki hafa skýr­ingar á þeim mikla mun sem er á vöxtum verð­tryggðra íbúða­lána á milli lána­stofn­ana. Hann nefnir þó að bank­arnir hafi stundum borið fyrir sig að banka­skattur sé lagður á þá, á meðan líf­eyr­is­sjóð­irnir greiði ekki slík gjöld. Það geti þó ekki skýrt allan mun­inn. Þá bendir hann á að líf­eyr­is­sjóð­irnir láni ekki öllum. Í flestum til­vikum þarf lán­taki að eiga aðild að sjóðnum til að fá lán. Þeir láni auk þess lægra hlut­fall af íbúða­verði. „Við hvetjum alla til að leita ódýr­ustu leiða þegar kemur að lánum,“ segir Breki. Hann segir enga ástæðu til að halda tryggð við lána­stofn­anir. „Peningar eru bara pen­ingar.“

Breki hefur gert rann­sóknir á fjár­mála­læsi Íslend­inga. Í rann­sókn sem hann gerði árið 2014 kom fram að fjár­mála­læsi Íslend­inga væri veru­lega ábóta­vant. „Það eru mikil tæki­færi fyrir okkur að efla fjár­mála­læsi þjóð­ar­innar. Það eru víða kistur fullar af gulli sem ein­falt er að leita að,“ segir hann.

Breki segir að trygg­ingar séu dæmi um annan kostn­að­ar­lið heim­ila sem hægt sé að lækka umtals­vert. Hann seg­ist sjálfur leita til­boða í trygg­ingar sínar á hverju ein­asta ári. „Þetta er að jafn­aði best borg­aði hálf­tími árs­ins,“ segir hann. „Ég er það leið­in­legur kúnni að ég leita til­boða á hverju ári.“ Hann nefnir að trygg­ingar hækki oft mikið á milli ára og að það geti marg­borgað sig að færa sig á milli félaga, sem bjóði sömu trygg­ing­arnar. Áskrift­ar­leiðir síma­fyr­ir­tækj­anna, fyrir síma og Internet, er annar útgjalda­liður sem vert er að gefa gaum, að mati Breka. Hann segir allt of mörg dæmi um að fólk haldi sig við gamlar áskrift­ar­leiðir sem hafi hækkað. Margir greiði fyrir vikið allt of há áskrift­ar­gjöld.

„Það er mjög oft hægt að færa sig á milli fyr­ir­tækja og fá miklu hag­stæð­ari kjör. Þetta er kostn­aður sem safn­ast þegar saman kemur. Þetta er bæði ein­föld og fljót­leg leið til að spara.“

Lestu nánar um málið í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina