Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Aldrei gott fyrir samfélag að slíkur einstaklingur verði þar einráður og allt fari fram á forsendum viðkomandi“

„Aldrei gott fyrir samfélag að slíkur einstaklingur verði þar einráður og allt fari fram á forsendum viðkomandi“
Guð­mundur Andri Thorsson

„Í raun­inni ætti eng­inn maður að eiga meira land en hann kemst sjálfur yfir að sinna, með vélum eða mann­afla, eða hefur kenndir til vegna tengsla við landið. Það er gott og æski­legt að fólk komi sér upp eignum sem það geti nytjað eins og hugur þess stendur til, stofni fyr­ir­tæki sem vaxi og dafni eftir efnum og ástæðum, hagn­ist og greiði af því sann­gjarnan hlut til sam­fé­lags­ins (en feli ekki í skatta­skjólum), kaupi sér jarð­ar­skika til að rækta og nytja eins og dugn­aður og hug­kvæmni leyfir – og þar fram eftir göt­unum,“

segir Guð­mundur Andri Thorsson í pistli í Mannlíf.

Bendir hann á að land verður æ mik­il­væg­ara á tímum mik­illa lofts­lags­breyt­inga og kom­andi þjóð­flutn­inga í kjöl­far þess að æ fleiri svæði heims verða óbyggi­leg af manna völdum. Guð­mundur Andri segir því „löngu tíma­bært að við setjum reglur sem tak­marka skefja­lausa söfnun ein­stak­linga á landi, þó ekki væri bara vegna þess mikla verð­mætis sem þetta land á eftir að hafa á kom­andi tímum. En það þarf að setja skorður við hömlu­lausri sam­þjöppun á eign­ar­haldi á landi og öðrum auð­lindum; sumt land á heima í þjóð­ar­eigu vegna gildis síns. Um auð­lind­irnar þarf ekki að tala, þær eru nú þegar í þjóð­ar­eigu, en þarf ein­ungis að árétta það með góðu ákvæði í stjórn­ar­skrá: fisk­ur­inn, nátt­úruperlur, vatnið.“

Guð­mundur Andri segir það engu máli skipta hvaðan auð­mað­ur­inn er, hvort hann komi úr Breið­holt­inu, Kuala Lumpur eða ann­ars staðar frá, sam­þjöppun á eign­ar­haldi er alltaf hættu­leg, hvort sem um er að ræða útgerð­ar­fyr­ir­tæki, mat­vöru­búðir, fjöl­miðla eða jarð­næði.

Það sé aldrei gott fyrir lítið sam­fé­lag að einn ein­stak­lingur verði þar ein­ráður og allt fari fram á hans for­sendum og hrynji við brott­för hans, að mati Guð­mundar Andra.

„Það getur verið mikil inn­spýt­ing í því fólgin fyrir lítið sam­fé­lag þegar dug­mik­ill og fram­taks-samur ein­stak­lingur kaupir eign eða eignir og tekur að láta þar til sín taka. En það er aldrei gott fyrir sam­fé­lag að slíkur ein­stak­lingur verði þar ein­ráður og allt fari fram á for­sendum við­kom­andi og hrynji við brot­för hans.“

Leppun orðin böl í nútímasamfélögum

„Hitt er svo enn verra, sem orðið er sér­stakt böl í nútíma­sam­fé­lögum – og alveg sér­stak­lega hér á landi – og það er sú iðja sumra auð­manna að leyn­ast bak við leppa eða flókið net skáld­aðra eign­ar­halds­fé­laga. Við eigum heimt­ingu á að vita hver á land og hvað hann hyggst fyrir með það,“ segir Guð­mundur Andri og minnir okkur að lokum á skyldur okkar við landið okkar og afkom­endur okkar.

„Þetta er landið þitt …“ orti Guð­mundur Böðv­ars­son í ljóð­inu sínu fal­lega Fylgd og líka „þetta land á þig“ og minnti okkur á skyldur okkar við landið sem verður hér eftir okkar dag og barna okkar og barna­barna. Því þetta land er ekki bara til fyrir okkur sem hérna búum – það hefur líka gildi í sjálfu sér, verð­mæti þess verður ekki mælt í mann­legum ein­ingum á borð við krónur og aura. Þetta land á sig, og það eigum við að virða, um leið og við lærum að umgang­ast það og nýta góðar gjafir þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina