Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Leggja til að verkferlar Neyðarlínunnar verði endurskoðaðir – „Þannig að borgarar landsins geti treyst því að ekki sé farið í manngreinarálit“

Stjórn land­sam­tak­anna Geð­hjálpar hefur nú sent frá sér ályktun þar sem lagt er til að allir lög­reglu­menn fái þjálfun og kennslu í því að fást við ein­stak­linga í geð­rofs­á­standi. Geðhjálp sendir til­kynn­ing­una frá sér í kjöl­far þess að Kompás fjall­aði í gær um unga konu sem lést í apríl í fyrra eftir átök við lög­reglu­menn sem höfðu afskipti af henni þegar hún var í geð­rofs­á­standi.

Þáttur Kompás sem sýndur var á Vísi í gær hefur vakið mikla athygli. Í þætt­inum er fjallað um and­lát Heklu Lindar Jóns­dóttir sem lést síð­ast­liðið vor. Í þætt­inum er rætt við for­eldra Heklu sem telja lög­reglu hafa farið offari við hand­tök­una.

Í ályktun Geð­hjálpar segir að geð­rof sé grafal­var­legt ástand. Þar segir einnig að orsakir geð­rofs geti verið marg­vís­legar og þá er þung­lyndi, floga­veiki, áfengis – og vímu­efna­neysla, svefnskortur, elli­glöp og heila­æxli tekið sem dæmi.

„Ein­stak­lingar í geð­rofi eiga það hins vegar allir sam­eig­in­legt að þurfa á hjálp að halda og það sem allra fyrst. Það skýtur því skökku við að heyra aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra Neyð­ar­lín­unnar full­yrða það að öllum verk­ferlum hafi verið fylgt þegar ákveðið var að senda ekki sjúkra­flutn­inga­menn á stað­inn þegar neyð­ar­kall barst vegna ungrar konu í geð­rofi heldur aðeins kalla eftir lög­reglu,“ segir meðal ann­ars í ályktun Geð­hjálpar.

Hekla Lind hafði neytt eit­ur­lyfja og var í geð­rofs­á­standi þegar vinur hennar taldi hana þurfa á lækn­is­að­stoð að halda þann 9. apríl. Hann hringdi á sjúkra­bíl en sjúkra­bíll­inn kom aldrei. Hins vegar mættu tveir lög­reglu­menn á vett­vang.

„Þetta sjón­ar­mið lýsir miklum for­dómum gagn­vart ákveðnum hópi í sam­fé­lag­inu.“

Í ályktun Geð­hjálpar segir að sú stað­reynd að sjúkra­bíll hafi ekki verið sendur á stað­inn lýsi for­dómum. „Þetta sjón­ar­mið lýsir miklum for­dómum gagn­vart ákveðnum hópi í sam­fé­lag­inu, sem birt­ist m.a. í þess­ari mis­munun, og veldur það stjórn Geð­hjálpar miklum áhyggjum.“

Í álykt­un­inni er þá lagt til að  óháðir aðilar verði fengnir til að taka út mats­með­ferð og verk­ferla Neyð­ar­lín­unnar „þannig að borg­arar lands­ins geti treyst því að ekki sé farið í mann­grein­ar­á­lit og þegar óskað er eftir aðstoð í neyð“.

„Stjórn Geð­hjálpar fer einnig fram á það að verk­ferlar lög­reglu verði teknir til end­ur­skoð­unar og að allir lög­reglu­menn fái þjálfun og kennslu í því að fást við ein­stak­linga í geð­rofs­á­standi.“

Álykt­un­ina má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina