Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bólusetning ekki hafin vegna skorts á bóluefni

Bólusetning ekki hafin vegna skorts á bóluefni
|||

Afhend­ing á fyrsta skammti bólu­efnis við hlaupa­bólu tefst fram í mars. Reglu­bundnar bólu­setn­ingar við veirunni áttu að hefj­ast um ára­mótin.

Töf hefur orðið á því að reglu­bundnar bólu­setn­ingar vegna hlaupa­bólu hefj­ist. Hefja átti bólu­setn­ingar um ára­mótin en af því varð ekki. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir í sam­tali við Mannlíf að töf hafi orðið á fyrstu send­ingu efn­is­ins til lands­ins. Sesselja Guð­munds­dóttir, sviðs­stjóri ung- og smá­barna­verndar hjá Þró­un­ar­mið­stöð íslenskrar heilsu­gæslu, segir að gott hefði verið að geta byrjað um ára­mót en ekk­ert sé við þessu að gera. „Við tökum á þessu þegar efnið kemur til lands­ins,“ segir hún.

Samn­ingar um kaup á umræddu bólu­efni voru gerðir fyrir ára­mót. Þórólfur segir að þá hafi legið fyrir að afhend­ing á fyrstu send­ingu myndi tefj­ast. Hann segir von á efn­inu í mars og að reglu­bundnar bólu­setn­ingar vegna hlaupa­bólu á ung­börnum geti haf­ist í kjöl­farið. Það er lyfja­fyr­ir­tækið GSK, eða GlaxoSmit­hKline sem fram­leiðir efnið.

Embætti land­læknis greindi frá því í sumar að almennar bólu­setn­ingar við hlaupa­bólu hæfust í byrjun árs 2020. „Öll börn sem fædd eru 1. jan­úar 2019 eða síðar fá tvo skammta á öðru ævi­ári (við 12 og 18 mán­aða skoð­anir) end­ur­gjalds­laust. Hlaupa­bóla er algengur veiru­sjúk­dómur sem nán­ast allir fá ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni.

„Það hefði verið gott að geta byrjað strax,“ segir Þórólfur um töf­ina. Hann bendir á að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem töf verði á afhend­ingu bólu­efna. Fram­leið­endur þeirra séu fáir og því geti komið upp töf á fram­leiðslu og dreif­ingu. „En við fengum full­vissu frá fram­leið­anda að þetta yrði ekki við­var­andi ástand. Við vissum að það yrði dráttur á fyrstu afhend­ingu en síðan á það ekki að vera vanda­mál.“

Getur verið alvarlegur sjúkdómur

Þórólfur segir að þetta skref hafi lengi verið í deigl­unni og að þrýst­ingur hafi verið á að hefja bólu­setn­ingar við hlaupa­bólu. „Þetta er sjúk­dómur sem allir fá og hann getur verið alvar­legur. Auk þess kemur bólu­setn­ingin í veg fyrir ristil­sjúk­dóm sem fólk sem hefur fengið hlaupa­bólu getur fengið síðar á ævinni.“

Aðspurður segir Þórólfur að hlaupa­bólu­veiran lifi alla tíð í fólki sem hefur fengið hlaupa­bólu. Hún geti brot­ist fram seinna á lífs­leið­inni og valdið stað­bundnum útbrotum í ristli. Það geti verið mjög hvim­leiður sjúk­dómur.“ Þórólfur segir bólu­efnið sem keypt hafi verið öruggt og gott en kostn­aður vegna þess­ara bólu­setn­inga muni hlaupa á 40-50 millj­ónum króna árlega. „Það hefur tekið tíma að fá þetta í gegn og tryggja fjár­magn.“ Hann segir að lögð verði áhersla á að öll börn verði bólu­sett.

Þórólfur segir aðspurður að þessi töf muni skapa ein­hver vanda­mál fyrir heilsu­gæsl­una. Í mars þurfi að hefj­ast handa við að bólu­setja þau börn sem áttu að vera bólu­sett án end­ur­gjalds frá ára­mótum. „Þetta krefst smá­end­ur­skipu­lagn­ingar af þeirra hálfu. En það er ekk­ert við því að gera.“

Sesselja segir við Mannlíf að á þess­ari töf verði tekið þegar bólu­efnin koma til lands­ins. „Það hefði verið gott að geta byrjað 1. jan­úar en við þessu er ekk­ert að gera,“ segir hún.

Börnin sprautuð þrisvar í 12 mánaða skoðun

Bólu­setn­ing við hlaupa­bólu hefur það í för með sér að börn sem fá allar bólu­setn­ingar fá þrjár sprautur í stað tveggja við 12 mán­aða skoðun. Við 18 mán­aða skoðun fá börn tvær sprautur í stað einnar. Hún segir mis­mun­andi hvernig börn bregð­ast við sprautum. „Það er aldrei gaman að láta sprauta sig en ég held að þetta verði ekki vanda­mál. Þetta kemur í ljós.“ Hún er ánægð með að bólu­setja eigi með reglu­bundnum hætti fyrir hlaupa­bólu.

Börn munu, þegar bólu­efnið kemur til lands­ins, fá þrjár sprautur við 12 mán­aða aldur, í stað tveggja áður.

Lyfjaskortur er vaxandi vandamál

„Það er alltaf baga­legt þegar skortur verður á lyfi en raunin er sú að almennt gengur vel að bregð­ast við lyfja­skorti hér.“ Þetta kemur fram í svari Lyfja­stofn­unar við fyr­ir­spurn Mannlífs um stöðu lyfja­skorts á Íslandi. Á vef­síðu stofn­un­ar­innar er að finna langan lista yfir lyf sem ekki eru fáan­leg hér. Á meðal þeirra lyfja sem nýlega hefur verið til­kynnt um að vanti eru fimm milli­gramma töflur af mor­fín­lyf­inu Contalgin og Zovir augn­smyrsli.

Í svar­inu segir að lausnin við skorti á til­teknum lyfjum feli oft í sér að læknar þurfi að ávísa und­an­þágu­lyfi (óskráðu lyfi) en ferlið í kringum slíkar lyfja­á­vís­anir taki lengri tíma en ella.

Brexit hefur áhrif á fram­boð Contalgins á Íslandi.

Mannlíf spurði meðal ann­ars hvort eitt­hvert lyf bráð­vant­aði á Íslandi í dag. „Stutta svarið er nei,“ segir í svari stofn­un­ar­innar. „Þegar til­tekin lyf skortir leysa önnur lyf þau yfir­leitt af hólmi, alla­vega tíma­bundið. Það geta verið sömu lyf í öðrum styrk­leikum, sam­heita­lyf, lyf með svip­aða virkni eða und­an­þágu­lyf.“

Lyfja­skortur er vax­andi vanda­mál um allan heim, að sögn stofn­un­ar­innar, og þar er Ísland ekki und­an­skilið. Lyfja­stofnun seg­ist hafa átt gott sam­starf við mark­aðs­leyf­is­hafa, umboðs­menn þeirra, dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki, lækna og almenn­ing til að vinna að lausnum þegar lyfja­skortur komi upp. „Þegar lyf skortir getur það haft sína kosti að vera lítil þjóð því auð­veld­ara getur reynst að útvega þau en þegar um stærri þjóðir er að ræða.“

Lyfja­fyr­ir­tækjum ber að til­kynna til Lyfja­stofn­unar sé fyr­ir­sjá­an­legt að lyf muni skorta. Ástæð­urnar geta verið marg­vís­legar. Þannig má nefna að ástæðu þess að fimm milli­gramma Contalgin-töflur vantar í apó­tek lands­ins megi rekja til fram­leiðslutafa vegna Brexit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina