Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólki á Flateyri farið að vanta nauðsynjavörur – „Lagerinn er fljótur að klárast þegar heilt þorp treystir á hann.“

Fólki á Flateyri farið að vanta nauðsynjavörur – „Lagerinn er fljótur að klárast þegar heilt þorp treystir á hann.“

„Það hefur ekki verið svona mik­ill snjór í þorp­inu í mörg ár og það er farið að verða ansi þung­fært inn­an­bæjar,“ segir Katrín María Gísla­dóttir um ástandið sem ríkir á Flateyri vegna veð­urs.

„Svo hefur leiðin frá Flateyri yfir í næstu þorp verið lokuð að mestu síðan á föstu­dag og því ekki hægt að sækja neina þjón­ustu á Ísafjörð,“ segir Katrín í sam­tali við Mannlíf en á Ísafirði eru versl­anir og þjón­usta sem íbúar á Flateyri sækja gjarnan undir venju­legum kring­um­stæðum.

„Í dag voru grunn- og leik­skóla­börn bara heima þó að starfs­menn skól­anna séu alltaf reiðu­búnir að opna og hafi mætt til vinnu alla óveð­urs­dag­ana til öryggis. Fólk er aðeins farið að þreyt­ast við á að koma sér milli staða í bænum svo margir kjósa að dúlla sér bara heima í dag þar til veðr­inu slotar. Í gær sá björg­un­ar­sveitin um að koma leik­skóla­börnum og for­eldrum heim, þannig það er svo sem allt hægt ef fólk ætlar sér út,“ útskýrir Katrín sem hefur búið á Flateyri ásamt fjöl­skyldu sinni síðan árið 2016. „Okkur finnst það frá­bært. Við mælum með Flateyri fyrir alla sem vilja upp­lifa alvöru náunga­kær­leik alla daga.“

Íbúar reiknuðu ekki með svona langri innilokun

Katrín segir að marga íbúa á Flateyri sé farið að vanta mat­vörur og fleira. „Èg held að fólk hafi ekki gert ráð fyrir alveg svona langri inni­lokun þannig marga fer að vanta ýmsar nauð­synja­vörur. Það er kannski verst fyrir þá sem eru með dýr eða lítil börn sem þurfa fóður og þurr­mjólk en hér eru allir boðnir og búnir og mikið verið að skreppa milli húsa með hitt og þetta sem vantar.“

„…hér eru allir að vinna saman og sjúk­lega góð stemn­ing í mann­skapnum.“

Katrín tekur fram að und­an­farna daga hefur komið sér sér­stak­lega vel að sam­heldnin á Flateyri er mikil.

„Það er mikil sam­heldni alltaf í Flat­eyr­ingum og það kemur sér vel þegar maður þarf að treysta á nágranna sína. Það er ein sjoppa á staðnum sem selur svona eitt og annað en lag­er­inn er fljótur að klár­ast þegar heilt þorp treystir á hann. Allt brauð og ham­borg­ara­brauð klárað­ist um helg­ina og í gær tók mat­ráð­ur­inn sem eldar fyrir skól­ana í bænum sig til og bak­aði brauð og ham­borg­ara­brauð ásamt mann­inum sínum svo fólk gæti keypt brauð og ham­borg­ara í sjopp­unni, þannig hér eru allir að vinna saman og sjúk­lega góð stemn­ing í mann­skapnum.“

Á von á barni í mars

Katrín er ófrísk og á von á sér um miðjan mars. Næsta sjúkra­hús er á Ísafirði. Hún við­ur­kennir að það geri verið svo­lítið taugatrekkj­andi til­hugsun að hafa ekki aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu vegna veð­urs.

„Ég reikna með að þessi lægða­gangur verði farin að minnka um miðjan mars. Ég er alla­vega ekk­ert að láta þetta stressa mig núna, rétt komin um 32 vikur en það er vissu­lega þægi­legra að vita að maður kom­ist á sjúkra­hús ef eitt­hvað kemur upp á. Það er svona lúm­skt varn­ar­leysi að að hafa ekki greiðan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu, en það er alveg jafn óþægi­legt fyrir mig eins og næsta mann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við