Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fátækt er afleiðing pólitískra ákvarðana“

„Fátækt er afleiðing pólitískra ákvarðana“

Hún seg­ist alla tíð hafa verið fátæk, fyrst sem næstyngsta barn ein­stæðrar móður sex barna, sem full­orðin í lág­launa­störfum og seinna ein­stæð með þrjú börn á fram­færi. Eftir að hún varð öryrki heldur hún áfram að lifa í sífelldum afkomu­ótta. Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir á ekk­ert heim­ili en hefur kosið að búa í sendi­bíl sem breytt var í hús­bíl til þess að geta lifað.

„Ég skulda ekk­ert og hef ekki gert í þónokkuð mörg ár en ég er enn í þeirri stöðu að velta fyrir mér hverri krónu til að hámarka verð­gildi hennar. Sem öryrki má ég hvorki eiga sparifé né fá greiðslur úr líf­eyr­is­sjóði án þess að það skerði örorku­líf­eyr­inn frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins. Ég þurft að velja á milli þess að borga reikn­ing­ana eða kaupa í mat­inn, kaupa mat eða nauð­syn­leg lyf, kaupa föt á börnin eða mig, velja tann­heilsu barn­anna eða mína eigin, leyfa börn­unum að æfa íþróttir eða fara með þeim í stutt frí inn­an­lands og leigja mér hús­næði eða lifa án fjár­hags­á­hyggna,“ segir Geirdís Hanna og heldur áfram. „Í dag bý ég í sendi­bíl sem var breytt í hús­bíl vegna þess að ég kýs að lifa, en ekki bara lifa af. Ég var fátæk áður en ég varð öryrki, vann lág­launa­störf með þrjú börn á fram­færi og í stöð­ugum afkomu­ótta. Ég hef glímdt við kvíða og þung­lyndi frá barn­æsku, lent í nokkrum bílslysum sem orsök­uðu stoð­kerf­is­vanda og lenti í lík­ams­árásum sem höfðu bæði and­legar og lík­am­legar afleið­ingar.“

Finnurðu fyrir for­dómum? „Já, að vera öryrki í dag er enn þá skammar­stimp­ill, því miður. Ég er í 50% starfi og mörgum finnst að fyrst ég geti það þá geti ég alveg unnið 100% starf. Ég æfi og keppi í keilu og úr því ég geti það þá sé ég ekki öryrki. Ég stunda lík­ams­rækt og fyrst ég geti það þá geti ég alveg eins unnið meira. Ég sinni ýmis konar félags­starfi og ef ég get það þá hljóti ég að geta unnið meira. En ég get ekki unnið meira vegna þess að ég er öryrki. Ég stunda þetta allt því það heldur mér gang­andi og forðar mér frá félags­legri ein­angrun eins og hlut­skipti mjög margra öryrkja er.“

Dýrt að leigja húsnæði

Geirdís Hanna er fædd og upp­alin á Siglu­firði, flutti til Akur­eyrar haustið 1988 og flutti þaðan til Reykja­víkur haustið 2018. Nú býrð þú í hús­bíl, hvað varð til þess að þú ákvaðst að búa í bíl og verð­urðu fyrir for­dómum vegna þess? „Meg­in­á­stæða þess að ég bý í hús­bíl er að ég á hann og hvað leigu­mark­að­ur­inn er sví­virði­legur. Sem dæmi má nefna að ég leigði her­bergi með aðgangi að eld­húsi og baði á 75.000 kr. á mán­uði fyrst eftir að ég flutti til borg­ar­innar. Og það var vel sloppið miðað við það sem ég sé aug­lýst í dag, tveggja her­bergja íbúð er á 200.000 á kr. mán­uði og fólk þarf að greiða 2-4 mán­uði fyr­ir­fram í trygg­ingu.“

Hún seg­ist ekki beint hafa orðið fyrir for­dómum. „En margir undr­ast það að ég velji þennan lífs­stíl, því þetta er utan við hið eðli­lega. Ég hef t.d. ekk­ert fast heim­il­is­fang þar sem maður getur ekki haft lög­heim­ili í bíl. Vistin í bílnum er í meg­in­dráttum mjög góð. Ég er þó búin að sjá það að þessi bíll hentar mér ekki til lang­tíma­bú­setu, því hann er svo lít­ill að ekki er hægt  með góðu móti að koma öllu nauð­syn­legu fyrir. Því jafn­vel þótt ég þurfi ekki mikið þá eru ákveðnir hlutir sem taka sitt pláss og þegar búið er þröngt þarf að vera gott skipu­lag á hlut­unum. Á vet­urna eru snjó­bux­urnar og þykka úlpan á vísum stað, á meðan vöðl­urnar og veiði­dótið þurfa sitt pláss á sumrin. Það er líka annar munur á milli þess­ara árs­tíða og það er hita­stigið. Á köld­ustu dögum og nóttum hefur orðið mjög kalt og einn morg­un­inn voru rúð­urnar hélaðar að innan. Það var kalt að fara á fætur þann dag­inn.“

Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir. Mynd / Hákon Davíð

Hvað hef­urðu í hyggju varð­andi hús­næð­is­mál – sérðu ein­hverja mögu­leika?

„Það sem ég hef í hyggju varð­andi fram­tíð­ar­bú­setu, er að halda áfram að minnka við mig ver­ald­lega hluti. Ég vil byggja líf mitt með fólki, upp­lif­unum, ferða­lögum og góðum stundum, ekki dauðum hlutum. Mark­miðið er að eign­ast stærri bíl sem ég get gert þægi­legan fyrir mig, með nægu rými til að ég geti boðið fólk­inu mínu í kaffi og eða mat, og átt með því kósí stundir.“

Valdefling fátækra

Geirdís Hanna hefur um nokk­urt skeið starfað með Pepp á Íslandi sem er gras­rót­ar­hreyf­ing EAPN. EAPN á Íslandi eru regn­hlíf­ar­sam­tök félaga sem berj­ast gegn fátækt og félags­legri ein­angrun og voru stofnuð í upp­hafi árs 2011. Samtökin eiga aðild að EAPN (European Anti Poverty Network) sem voru stofnuð árið 1990. Aðild­ar­fé­lög EAPN á Íslandi eru Félag ein­stæðra for­eldra, Hags­muna­sam­tök heim­il­anna, Hjálp­ar­starf kirkj­unnar, Hjálp­ræð­is­her­inn, Kær­leiks­þjón­usta kirkj­unnar, Samhjálp, Sjálfs­björg lands­sam­band hreyfi­haml­aðra, Vel­ferð­ar­sjóður Suð­ur­nesja og Öryrkja­banda­lag Íslands.

Hvernig kynnt­ist þú Pepp sam­tök­unum? „Vinkona mín á Akureyri kynnti mig fyrir Pepp sam­tökum fólks í fátækt árið 2015. Ég varð strax mjög hrifin af sam­tök­unum og fólk­inu sem starfar með þeim og hef eign­ast marga góða vini í gegnum starfið. Ég hef í raun ekk­ert sér­stakt hlut­verk innan sam­tak­anna en starfa með öðrum félögum innan þeirra að verk­efnum sem eru fyr­ir­liggj­andi hverju sinni. En ég hef því miður ekki getað sinnt því sem skyldi í vetur vegna anna.“

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að taka þátt í Pepp? „Ég hef búið við fátækt allt mitt líf og hug­myndin um að vald­efla fólk í fátækt heill­aði mig. Það að geta skilað skömminni og hjálpað öðrum að gera slíkt hið sama er ótrú­lega góð til­finn­ing því fátækt er afleið­ing póli­tískra ákvarð­ana, ekki val. Helstu með­limir Pepp eru fólk sem hefur búið við fátækt og félags­lega ein­angrun. Sem betur fer erum við alltaf að eign­ast fleiri málsvara fyrir okkar mál­stað og því ber að fagna. Við þurfum að berj­ast fyrir skiln­ingi á okkar kjörum. Helstu með­limir Pepp eru fólk sem hefur búið við fátækt og félags­lega ein­angrun.“

„Ég hef búið við fátækt allt mitt líf og hug­myndin um að vald­efla fólk í fátækt heill­aði mig.“

Vel hægt að útrýma fátækt

Hvernig hefur fátækt áhrif á sál­ar­lífið?

„Fátækt hefur afskap­lega mikil og djúp­stæð áhrif á and­lega líðan,“ segir Geirdís „Ég hef oft upp­lifað mig sem mis­heppn­aða að geta ekki verið eins og „venju­legt fólk“.  Og að þurfa enda­laust að neita börn­unum mínum um það sem þykir „sjálf­sagt“ hefur í för með sér enn frekara nið­ur­rif og til­finn­ingu um að hafa brugð­ist.“

Hvað er að þínu mati hægt að gera til að útrýma fátækt á Íslandi?

„Eins og ég hef áður sagt, þá er fátækt afleið­ing póli­tískra ákvarð­ana. Og til að hægt verði að útrýma fátækt þurfa stjórn­völd fyrst og fremst að við­ur­kenna að hún sé raun­veru­leg og taka ákvarð­anir í sam­ræmi við stærð vand­ans. Hækka örorku­líf­eyri og afnema allar skerð­ingar. Það væri til að mynda mjög gott skref í átt að bættum lífs­kjörum öryrkja, einnig hækkun atvinnu­leys­is­bóta og lægstu launa.

„Og til að hægt verði að útrýma fátækt þurfa stjórn­völd fyrst og fremst að við­ur­kenna að hún sé raun­veru­leg, og taka ákvarð­anir í sam­ræmi við stærð vand­ans.“

Því tökum sem dæmi að ef allir lands­menn fá 10.000 krónur. Þá fer sá/sú sem ekki nær endum saman í hverjum mán­uði, og eyðir aurnum í það sem við­kom­andi vantar og hjálpar þannig við að halda hag­kerf­inu gang­andi. Sá/sú sem aftur á móti hefur meira en nóg og á jafn­vel góðan afgang í lok mán­aðar, stingur 10.000 krón­unum undir kodd­ann og eng­inn græðir nema hann/hún,“ segir Geirdís að lokum en hún þjá­ist af áfallastreituröskun sem er afleið­ing af ein­elti og ofbeldi sem hún upp­lifði sem barn og full­orðin mann­eskja. En hún er þrautseig og full bar­áttu­vilja og segir að þótt margoft hafi hún verið komin að því að gef­ast upp þá hafi fólkið hennar haldið henni gang­andi.

Texti / Unnur H. Jóhanns­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu