Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Af hverju blótum við þorra?

Af hverju blótum við þorra?

Dæmi um gamla hefð í sam­fé­lag­inu er að halda þorra­blót jafnt í sveitum sem borgum og er ekki síður vin­sælt í dag en fyrr á öldum þótt hefð­irnar hafi senni­lega breyst mikið með tím­anum.

Áætlað er að á fyrstu öld Íslands­byggðar hafi þorra­blót verið haldin til að fagna því að vet­ur­inn væri hálfn­aður og til þess að blíðka um leið þær vættir sem taldar voru ráða veð­ur­far­inu og þá hafi matur ekki tengst þorra­hefð­inni. En sam­kvæmt fyrstu rit­uðu heim­ildum um þorra­blót eins og við þekkjum þau í dag tengd­ust slíkir mann­fagn­aðir þjóð­ern­is­hyggju og sjálf­stæð­is­bar­áttu.

Fram yfir miðja 19. öld voru þorra­blót ein­ungis haldin á hverju sveita­heim­ili fyrir sig en fyrsta blótið sem haldið var opin­ber­lega var á Akureyri þann 23. jan­úar 1874. Þá voru sungin gömul og ný kvæði og drukkin minni þorra og heið­inna goða. Þá tíðk­að­ist ekki að bjóða upp á súr­mat því hann var miklu frekar hvers­dags­matur í þá daga og menn vildu gera sér glaðan dag með ein­hverju öðru. Hangi­kjöt, flat­brauð, kart­öflu­jafn­ingur og brauð var algengt á borðum. Eft­ir­réttir eins og ávaxta­grautar, skyr með rjóma, nið­ur­soðnir ávextir og ís og rjómapönnu­kökur eru dæmi um eft­ir­rétti. Hefðin barst smám saman út til sveita frá kaup­stöð­unum en dvín­aði svo aftur vegna ört vax­andi og stækk­andi kaup­staða þar sem meiri áhersla var lögð á ýmsar erlendar hefðir sem þóttu fínni.

 Komust í tísku eftir miðja síð­ustu öld

Eftir 1950 fara þorra­blótin aftur að verða algeng jafnt í sveitum sem bæjum og fóru átt­haga­fé­lögin að bjóða upp á gamlan íslenskan sveita­mat á þorra­blótum þar á meðal súr­mat sem hægt og rólega hætti að vera hvers­dags­matur sveita­fólks­ins. Því má segja að gamli sveita­mat­ur­inn sem fólk vildi halda í heiðri hafi smám saman tengst þeim sið að blóta þorra sem í upp­hafi tengd­ist ekki mat heldur veðri í upp­hafi Íslands­byggðar.

Fyrsti dagur þorra er bónda­dagur en hann er einnig nefndur miðs­vetr­ar­dagur eða fyrsti þorra­dagur og miða margir blóts­hald­arar við þá dag­setn­ingu. Gjarnan er boðið upp á hangi­kjöt, svið og sviða­sultu, laufa­brauð, kart­öflu­jafn­ing, hár­karl og harð­fisk og svo er það súr­mat­ur­inn. Hann sam­anstendur aðal­lega af lunda­böggum, bringu­kollum, blóð­mör, lifrapylsu, hrútspungum, sviða­sultu og sviða­hausum. Súrsun er mjög gömul geymslu­að­ferð og má segja að hún hafi mótað matar­æðið hér áður fyrr. Til að fram­leiða salt úr sjónum þurfti mik­inn eldi­við en lítið var af honum hér á landi eftir 14. öld. Þess vegna not­uðu menn fjöl­breyti­legri mat­ar­geymslu­að­ferðir hér á landi heldur en tíðk­að­ist í kringum okkur. Maturinn var þurrk­aður, reyktur, kæstur og súrs­aður.

Með því að halda þorra­blót eins og við þekkjum þau í dag erum við í raun­inni að halda í heiðri þessum gamla sveita­mat sem hélt í okkur líf­inu í gegnum ald­irnar. Þorra­blót eru góð manna­mót og til­valin leið til að spjalla og skemmta sér með sveit­ungum sínum og ekki spillir fyrir að þjóð­arstolt okkar styrk­ist líka örlítið á slíkum manna­mótum og við finnum vel fyrir upp­runanum.

Við vinnslu grein­ar­innar var að mestu stuðst við heim­ildir úr bók­unum Þorra­blót á Íslandi eftir Árna Björns­son og Íslensk mat­ar­hefð eftir Hall­gerði Gísla­dóttur.

Texti / Bergþóra Jóns­dóttir
Myndir / Úr safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni