Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Flugfreyjur eru ekki svísur með há laun sem eru alltaf í útlöndum að versla“

„Flugfreyjur eru ekki svísur með há laun sem eru alltaf í útlöndum að versla“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Flestar flug­freyjur hér á landi telja að ímynd starfs þeirra sé alls ekki í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann. Þær þurfi ítrekað að takast á við grófa kyn­ferð­is­lega áreitni, ofþreytu og virð­ing­ar­leysi gagn­vart starf­inu.

„Flug­fé­lögin eru oft fárán­leg þegar þau koma fram í fréttum um laun flug­freyja.“

Árið 2017 lauk Andrea Eyland námi frá Háskól­anum á Bifröst og í MA-rit­gerð sinni ræddi hún við átta íslenskar flug­freyjur um ímynd­ina og dýrð­ar­ljóman sem starf­inu virð­ist fylgja. Við­mæl­end­urnir höfðu ýmist starfað hjá Icelandair eða WOW air og var lengsti starfs­ald­ur­inn í hópnum 10 ár. „Ég var sjálf að vinna sem flug­freyja hjá WOW þegar það byrj­aði og svo nokkrum árum seinna hjá Icelandair. Mér fannst ég alltaf svo þurrausin eftir flug og skildi varla af hverju, af því ég elskaði að fljúga og fannst vinnan svo skemmti­leg. Þetta var meira en þreyta vegna þeys­ings um gang­inn og ég vildi vita hvað tók svona mikið af mér,“ sagði Andrea í sam­tali við DV.

Í sam­tölum Andreu við flug­freyj­urnar kemur fram að sumar þeirra hafi til­kynnt sig frá vinnu vegna ofþreytu. Þeir segj­ast raun­veru­lega sjaldn­ast vera í fríi þar sem frídag­arnir nýtast í hvíld eftir flug og fyrir það næsta. Flug­fé­lögin geri ríka kröfum um að flug­freyj­urnar séu ávallt úthvíldar, ferskar og fínar. „Það gleym­ist að taka inn í mynd­ina þreyt­una. Þessa enda­lausu þreytu. Ímyndin er af skvísu með há laun sem er alltaf í útlöndum að versla. Það er ekk­ert glæsi­legt að þrífa upp ælu eftir veikan far­þega eða standa undir öskrum frá reiðum far­þega,“ sagði einn við­mæl­andi Andreu í rit­gerð­inni.

Líkt og Mannlíf hefur greint frá standa flug­freyjur í harðri kjara­bar­áttu við Icelandair sem reynir að rétta skút­una af og tryggja rekstur flug­fé­lag­is­ins. Félagið stefnir að hluta­fjár­út­boði dag­ana 29. júní til 2. júlí og mun reyna að loka samn­ingum við flug­freyjur félags­ins fyrir þann tíma. Andrea segir umræð­una oft á tíðum á villi­götum. „Flug­fé­lögin eru oft fárán­leg þegar þau koma fram í fréttum um laun flug­freyja. Þetta fólk eyðir helm­ingi mán­aðar burtu frá fjöl­skyldum sínum og þegar flug­freyjur eru ekki í vinn­unni eru þær þreyttar eftir flugið eða að hvíla sig fyrir næsta flug.“

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir náð­ist ekki á Guðlaugu Líney Jóhanns­dóttur, for­mann Flug­freyju­fé­lags Íslands, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina