Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Birkir Már hvetur karlmenn til að leita í Ljósið: „Það veitir ekki af utanaðkomandi hjálp í þessu verkefni“

Birkir Már hvetur karlmenn til að leita í Ljósið: „Það veitir ekki af utanaðkomandi hjálp í þessu verkefni“
Birkir Már fyrir framan Ljósið

Birkir Már Birg­is­son var tæp­lega fer­tugur þegar hann greind­ist með krabba­mein árið 2017. Birkir Már sótti end­ur­hæf­ingu í Ljósið sam­hliða krabba­meins­ferð, en eftir skurð­að­gerð og níu mán­aða lyfja­með­ferð var meinið farið.

Birkir Már segir í við­tali á vef Ljóssins að það hafi verið ómet­an­legt að sækja end­ur­hæf­ingu þangað og að mik­il­vægt sé að grípa karl­menn snemma í ferl­inu. Hvetur hann karl­menn til að mæta í Ljósið til að byggja sig upp.

„Krabba­meins­með­ferð er langt og strembið ferli sem reynir mikið á sjálfan þig, sam­bandið við maka og sam­skipti við börnin. Það veitir ekki af utan­að­kom­andi hjálp í þessu verk­efni því fáir fara í gegnum þetta ferli upp­réttir allan tím­ann. Hausinn er líka oft manns versti óvinur og mik­il­vægt að hafa vett­vang á borð við Ljósið þar sem maður getur opnað sig upp­hátt um eigin hugs­anir og líðan, bæði við fag­að­ila og í hópi þeirra sem hafa gengið í gegnum það sama. Ég tel sér­stak­lega mik­il­vægt að koma karl­mönnum sem allra fyrst inn í ákveðið prógram en allir þeir karl­menn sem ég hef rætt við í Ljósinu eru á einu máli um að þeir hefðu átt að mæta fyrr. Enda skiptir grund­vall­ar­máli að halda ákveð­inni rútínu og fá félags­skap þar sem ein­veran meðan á krabba­meins­með­ferð stendur verður heldur leiði­gjörn, “ segir Birkir Már, en hann hefur verið virkur þátt­tak­andi í að byggja upp starf fyrir unga karl­menn í Ljósinu.

Þolið að langmestu leyti komið til baka

„Ég fór fljótt að mæta reglu­lega í rækt­ina í stórum hópi karla, fór á nám­skeið og sótti ýmsa fyr­ir­lestra, auk þess að vera dug­legur að mæta í hádeg­is­mat­inn á föstu­dögum með körlunum“ segir Birkir Már, sem heyrði um Ljósið í við­tali hjá félags­ráð­gjafa Krabba­meins­fé­lags­ins.

Birkir sótti rækt­ina í Ljósinu reglu­lega og hefur náð að byggja upp fyrra þol að lang­mestu leyti þó hann eigi erfitt með gang en lætur það þó ekki stoppa sig í að klífa eitt og eitt fjall, þó að í það fari heil­mikil orka.

„Ég fór í Ljósa­foss­göng­una nú í vetur með Ljósinu og var þreyttur í um viku á eftir en það var allt í lagi. Nú heldur maður bara áfram veg­inn og ég ætla að halda áfram að sækja Ljósið til að leggja mitt af mörkum við að efla og þróa þar dag­skrá fyrir okkur strák­ana,“ segir Birkir Már.

Birkir Már og Jenný kona hans Mynd / Úr einka­safni

Þjónustan og aðstaðan fyrir karlmenn stórbætt

Birkir Már segir að mik­il­vægt sé að ná ákveðnum kjarna karl­manna saman í Ljósinu, enda hafi þeir verið dug­leg­astir að mæta þegar fleiri en færri mæti. Þjón­ustan hafi verið bætt í nýju hús­næði Ljóssins, og þar sett upp aðstaða fyrir strák­ana þannig að þeir geti mætt og farið í rækt­ina, borðað og gripið svo í spil eða farið í t.d. pílu eða pool. Hann segir mik­il­vægt að vera með dag­skrá alla daga en hug­myndin sé líka að reyna að hitt­ast eitt kvöld aðra hverja viku til að koma til móts við þá sem eru í vinnu.

„Það er stórt skref fyrir marga að koma hingað [í Ljósið] og þá kannski sér­stak­lega karl­menn. Það kann að hljóma und­ar­lega en ég hef líkt þessu við til­finn­ing­una að hefja áfeng­is­með­ferð þar sem þessu fylgir ákveðin skömm. Því miður virð­ast karl­menn oft ekki leita sér aðstoðar fyrr en þeir eru langt leiddir and­lega og komnir má segja á botn­inn. Þessu viljum við svo gjarnan breyta enda er þetta frá­bær staður þegar þú ert kom­inn inn og ekk­ert til að skamm­ast sín fyrir. Við höfum reiknað gróf­lega að um þriðj­ungur karla sem leita í Ljósið leita þangað sjálf­vilj­ugir en hinir eru má segja dregnir á stað­inn af maka eða ætt­ingjum. Við heyrðum t.d. af tveimur sem voru úti að ganga með kon­unum sínum og þær plöt­uðu þá til að kíkja hingað inn,“ segir Birkir Már.

Framundan er útgáfa sér­staks fræðslu­efnis fyrir karl­menn þar sem ein­blínt er á mak­ann, þannig að hann þekki til þjón­ust­unnar sem er í boði.

María Ólafs­dóttir tók við­talið við Birki Má, sem birt­ist fyrst á vef Ljóssins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina