Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ævintýralegar veiðiferðir um allan heim

Ævintýralegar veiðiferðir um allan heim

María Anna Clausen hefur haft ástríðu fyrir veiði nán­ast síðan hún man eftir sér og þegar hún kynnt­ist ást­inni í lífi sínu, Ólafi Vig­fús­syni, smit­aði hún hann svo ræki­lega af veiði­bakt­er­í­unni að síðan má segja að allt þeirra líf hafi snú­ist um veiði. Auk þess að reka Veiði­hornið í Síðumúla, þar sem þau selja allt sem til veið­innar þarf, nota þau hverja frí­stund til að veiða og hafa und­an­farin ár farið í veiði­ferðir til sex heims­álfa, þar sem þau þau hafa meðal ann­ars lært að verj­ast árásum hákarla og sjó­ræn­ingja.

Fyrir nokkrum árum byrj­uðu María og Ólafur að fara í veiði­ferðir út um allan heim, hafa þegar hér er komið sögu stundað veiði í sex heims­álfum og eru að hennar sögn bara rétt að byrja, hvernig stóð á því að þau fóru að leita út fyrir land­stein­ana eftir veiði?

„Það hófst nú eig­in­lega fyrir hálf­gerða til­viljun fyrir um það bil tíu árum síðan,“ útskýrir María og hlær. „Þá fórum við að halda nokk­urs konar vor­há­tíð og þangað komu meðal ann­ars full­trúar fyr­ir­tækja sem við kaupum vörur af. Einn af þeim var stanga­hönn­uður frá Sage og þegar ég er að skutla honum upp á hótel einn dag­inn segir hann mér að hann og konan hans séu að fara með hóp af veiði­mönnum til Bahamas, það séu tvær stangir lausar og hvort við viljum ekki bara skella okkur með. Ég sagði bara strax já og bað hann að bóka okkur, var ekk­ert að spyrja eig­in­mann­inn álits, en hann var alveg til í að prófa þetta þegar ég sagði honum frá því. Þannig að við fórum þangað og eftir það varð ekk­ert aftur snúið, þetta var svo hrika­lega skemmti­legt.“

Síðan hafa þau hjónin farið í veiði­ferðir tvisvar til þrisvar á ári, út um allar jarðir, en hvað stang­veið­ina varðar segir María að upp­á­halds­stað­ur­inn sé senni­lega Christmas Island.

„Við höfum flogið þangað í gegnum Havaí og yfir­leitt stoppað á Havaí í nokkra daga og verið á Waikiki strönd­inni,“ segir hún. „Þaðan er þriggja tíma flug til Christmas Island sem er eins og að koma í annan heim. Þetta er lítil eyja með um það bil þús­und íbúum og allt frekar frum­stætt. Veiðin er þannig að maður fer út með bát klukkan sex á morgn­ana, tekur með sér sam­loku í nesti og er úti í sjó allan dag­inn. Sjórinn er ylvolgur og þarna eru hvít sand­rif og maður horfir ofan í tæran sjó­inn og kastar á þá fiska sem maður sér. Það er alveg himnesk upp­lifun.“

Umhverfið sem þau hjónin veiða í virð­ist geta verið dálítið ógn­vekj­andi, hafa þau ein­hvern tím­ann lent í hættu­legum aðstæðum í þessum ferðum?

„Ég við­ur­kenni að mér hefur stundum ekki alveg staðið á sama,“ segir María og brosir. „Sér­stak­lega ef það eru hákarlar að synda nálægt manni. Maður er mikið að vaða í sjónum og á Seychelles lenti ég í því að vera að elta fiski­torfu með leið­sögu­manni, torfan synti alltaf lengra og lengra út og ég elti. Svo sér hann hákarl og segir við mig að ég verði að snúa stöng­inni öfugt og lemja hann í haus­inn með hinum end­anum. Ég hlýddi og var alveg til­búin en það kom ekki til þess því hákarl­inn var bara synti rólega burt. Ég varð samt smá smeyk. Verð að við­ur­kenna það. Við vorum auð­vitað búin að fá fyr­ir­lestra um það hvernig ætti að bregð­ast við ef hætta steðj­aði að. Þegar við veiddum Providance-kór­al­rifið við Seychelles, dvöldum við um borð í Maya DuGong sem er gam­alt rann­sókn­ar­skip sem hefur verið breytt í vist­ar­verur fyrir veiði­menn á svæð­inu. Þegar allir veiði­menn vik­unnar voru komnir um borð var fyr­ir­lestur í mat­salnum þar sem farið var yfir ýmsar hættur sem gætu orðið á vegi okkar. Til dæmis hvernig ætti að bregð­ast við ef stór hákarl nálg­að­ist okkur þar sem við værum að vaða í sjónum. En þá átti ég sem sagt að vera poll­ró­leg, standa kyrr og berja stang­ar­hand­fang­inu í trjónu hákarls­ins. Svo var bent á bjöllu sem var þarna og okkur sagt að ef hún hringdi þá væru sjó­ræn­ingjar að nálg­ast og þá ættum við að fara niður í stefnið og bíða þar þangað til hættan væri liðin hjá. Það kemur sem betur fer sjaldan fyrir núorðið að sjó­ræn­ingjar ráð­ist til atlögu en fyrir nokkrum árum þurfti að loka veiði­svæð­inu um tíma út af sjó­ræn­ingjum frá Sómalíu sem herj­uðu á veiði­skipin. En maður er samt ekk­ert hræddur, starfs­fólkið veit hvað það er að gera og fer mjög var­lega og maður treystir því að það muni ekk­ert ger­ast. Og ef svo færi þá er öryggi í því að vita að það er þarna her­bergi í stefn­inu þar sem er matur og fjar­skipta­bún­aður og hægt að leita skjóls.“

Lestu allt við­talið við Maríu Önnu í Vikunni sem kom í búðir í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu