Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skemmtilegt að vera með fullt hótel af Íslendingum

Skemmtilegt að vera með fullt hótel af Íslendingum

Sig­ur­laug Sverr­is­dóttir, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri ION Hotels, segir að vel verði tekið á móti lands-mönnum á hót­el­unum í sumar, þar sem ein­stök nátt­úra, fal­leg hönnun, kyrrð og góður matur eru í fyr­ir­rúmi.

„Það góða sem kemur kannski út úr þessum COVID-19 far­aldri er að þegar slíkar ham­farir ganga yfir fara fyr­ir­tæki og stofn­anir í nafla­skoðun sem leiðir oft til betri útkomu. Þegar COVID-19 skall á varð það til dæmis til þess að við ákváðum að færa okkur meira inn á inn­lenda mark­að­inn. Hingað til höfum við alltaf verið með svo­lítið af okkar „fasta“-kúnnum inn­an­lands, bæði ein­stak­linga og fyr­ir­tæki, en frá því í maí höfum við verið að fá fleiri íslenska gesti,“ segir Sig­ur­laug glað­lega. Hún segir að fólk sé opið og hlýtt. Allir sýni því skiln­ing að fara þurfi eftir settum reglum sótt­varn­ar­læknis og að skipt sé niður á veit­inga­stað og í heilsu­lind­ina. „Við erum ekki vön að hafa hús fullt af Íslend­ingum en það er mjög skemmti­legt.“

Einstök upplifun

ION-hót­elin eru tvö tals­ins, annað á Nesja­völlum og hitt við Laugaveg. Það fyrra, ION Adventure Hotel, sem er skemmti­lega stað­sett á Nesja­völlum umkringt fal­legri nátt­úru, hrauni og göngu­leiðum, var opnað í febr­úar 2013 og er marg­verð­launað fyrir bæði hönnun og þjón­ustu. Sig­ur­laug segir að þegar það var opnað hafi ekki verið mikið um hótel eða veit­inga­staði sem voru fjarri byggð eða hring­veg­inum. Slík teg­und af gist­ingu og upp­lifun hafi auk­ist til muna síð­ustu ár og ferða­venjur og val fólks breyst. Það leiti nú mun fremur í sér­staka upp­lifun, nátt­úru, feg­urð, frið, fal­lega hönnun, góðan mat og heilsu­lindir. Hún segir að fólk geri líka auknar kröfur um umhverf­is­væna stefnu og það sé nokkuð sem ION-hót­elin leggi áherslu á.

„Við vinnum með umhverf­is­vænar vörur á sama tíma og þæg­indi eru í fyr­ir­rúmi og höfum alltaf lagt áherslu á nærum­hverfi og sam­fé­lags­lega ábyrgð. Vinnum mikið með nágrönnum okkar hvað þjón­ustu og vörur varðar og sú stefna spegl­ast líka í gegnum allt hót­elið þegar kemur að hönnun, efn­isvali, list, tón­list og mat.“

Syst­ur­hótel ION Adventure, ION City, var opnað við Laugaveg 28 í maí árið 2017 og er í sama hús­næði og veit­inga­stað­ur­inn vin­sæli Sumac, grill and drinks. Sig­ur­laug segir að þar séu átján her­bergi, hvert öðru fal­legra og búin ýmsum þæg­indum. „Til að mynda eru einka­gufu­böð með öllum fjórum svítum hót­els­ins,“ nefnir hún sem dæmi, „og tvær þeirra eru á einka­svölum með útsýni yfir Laugaveg og Esjuna.

Gæði í fyrirrúmi

Hótelin eru hluti af Design Hotels, vöru­merkis í eigu Marriott en Sig­ur­laug segir að upp­fylla þurfi strangar kröfur hvað varðar gæði og þjón­ustu til að hljóta aðild. „Við fáum marga kúnna í gegnum Bonvoy, vild­ar­kerfi Marriott. Þar eru yfir 120 millj­ónir vild­ar­fé­laga og þeir geta safnað punktum og notað á ION- hót­el­unum.“ Hún segir mik­il­vægt að tengj­ast slíku kerfi, það sé mik­ill gæða­stimpil og veiti aðgang að stórum hópi við­skipta­vina, en nýt­ingin á ION Adventure Hotel hefur verið um og yfir 75 pró­sent á ári.

„Á hót­el­unum rekum við svo þrjá veit­inga­staði, Silfru, Sumac og Óx. Veit­inga­rekst­ur­inn er í sam­vinnu við Þráinn Frey Vig­fús­son sem er með­eig­andi okkar og hefur lengi unnið með kokka­lands­lið­inu, en það eru for­rétt­indi að vinna með fólki sem er sér­fræð­ingar á sínu sviði.“

Margt á boðstólum í sumar

Spurð hvað verði á boðstólum sér­stak­lega í sumar nefnir Sig­ur­laug jóga og göngu­ferðir alla föstu­daga og laug­ar­daga undir leið­sögn Me Time Iceland. „Þessi auka­lega þjón­usta er öllum gestum, sem nýta sér til­boðin okkar, að kostn­að­ar­lausu en við erum með sér­stök til­boð fyrir inn­lendan markað allar helgar í sumar. Svo höfum við verið með Sumac POP up á Silfru. Bjóðum þá upp á mat­seð­ill­inn frá Sumac á Nesja­völlum og Högni Egilsson tekur lagið fyrir gesti. Í byrjun vorum við aðeins með tvö svona skipu­lögð kvöld, en þau seld­ust upp á met­hraða og hafa því algjör­lega slegið í gegn.“
Nánari upp­lýs­ingar á www.ioniceland.is

ION hot­els í sam­starfi við Stúdíó Birtíng

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur