Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stebbi Jak hefur fyrirgefið árásarmönnum sínum: Ást, friður og fyrirgefning allt sem þarf“

Stebbi Jak hefur fyrirgefið árásarmönnum sínum: Ást, friður og fyrirgefning allt sem þarf“

Stefán Jak­obs­son söngv­ari rokksveit­ar­innar DIMMU fór í aðgerð í dag vegna afleið­inga áverka sem hann hlaut eftir lík­ams­árás árið 2000, þegar Stefán var tví­tugur. Tólf manns réð­ust á Stefán og veittu honum tölu­verða áverka, og sam­kvæmt lýs­ingum Stefáns er í raun mildi að hann hafi lifað árás­ina af.

Stefán sagði frá atvik­inu í færslu á Facebook í gær­kvöldi og hefur hún vakið mikla athygli og fjölda vina hans skrifað undir, og nokkrir þeirra sagt frá eigin reynslu sem er sam­bæri­leg reynslu Stefáns.

„Fyrir „mis­skiln­ing“ réð­ust á mig að ég best veit 12 manns með spörkum þar sem ég kraup á kné með einn árás­armanna sem skjöld á vinstri hlið lík­am­ans. Það bjarg­aði mér senni­lega frá frekara tjóni,“ segir Stefán, sem seg­ist hafa getað komið sér í skjól eftir að vinir hans og dyra­verðir höfðu náð árás­ar­mönn­unum af Stefáni. Árásin átti sér stað við Dátann fyrir ofan Sjallann á Akureyri.

Stefán segir að hann hafi verið sann­færður um að hafa sloppið nokkuð vel þar sem hann fann hvergi til, það hafi hins vegar breyst. „Nefið lág flatt út á kinn, annað augað var alveg lokað, hæl­far eftir göngu­skó á enn­inu og skó­för frá höfði, niður hægri hlið, allt bakið, fætur og niður á ökkla,“ segir Stefán og bætir við. „Sárin á lík­am­anum greru á nokkrum vikum en sárin á sál­inni tóku tölu­vert lengri tíma að gróa og munu kanski aldrei gróa að fullu.“

Árásin var kærð en málið var fellt niður, og segir Stefán það meðal ann­ars hafa verið vegna þess að hann gat ekki sagt með vissu hver olli hvaða áverka og mögu­lega hafi hann sagt eitt­hvað sem kom atburða­rásinni af stað.

Eftir árás­ina tók við tíma­bil þar sem Stefán forð­að­ist að vera einn á ferli, forð­að­ist að sækja ákveðan staði og var var um sig á öðrum. Ein vin­kona hans á Facebook bendir á að hann hafi lík­lega þjáðst af áfallastreituröskun, og svarar Stefán að svo gæti vel verið, hann hafi bara ekki vitað hvað það var á sínum tíma.

„Í tvö og hálft ár forð­að­ist ég að vera einn á ferli, gekk um í hettu­peysu ef ég var einn og gekk hratt með höf­uðið niður. Ég fór ekki í hrað­banka og aðra staði sem hægt var að króa mig af. Á vet­inga­stöðum og börum valdi ég mér sæti þar sem ég hafði góða yfir­sýn og örugga flótta­leið ef ske kynni að ein­hver hlut­eig­andi skyldi birt­ast,“ segir Stefán og segir þennan tíma hafa ein­kennst af hót­unum um frek­ari lík­ams­meið­ingar, jafn­vel líf­láts­hót­anir.

Búin að fyrirgefa árásarmönnunum

Stefán seg­ist hafa fyr­ir­gefið árás­ar­mönn­unum í eigin huga á þeim árum sem liðin eru frá árásinni, nokkur þeirra hafi verið á slæmum stað þegar hún átti sér stað, sumir séu enn á slæmum stað og aðrir látnir. Ekki kemur fram í færslu Stefáns að árás­ar­menn­irnir hafi sjálfir haft sam­band og beðið hann afsök­unar.

Sjö árum eftir árás­ina var gerð til­raun til að rétta nef Stefáns og opna fyrir vinstri nös­ina, sú aðgerð skil­aði ekki árangri og því var önnur fyr­ir­huguð í morgun sem Stefán seg­ist hafa frestað um ansi mörg ár. Segist hann von­ast til að hún beri árangur.

„Árið 2007 fór ég í aðgerð á nefi þar sem gerð var tilaun til að rétta það af og opna fyrir Vinstri nös­ina sem var nán­ast alveg lokuð. Sú aðgerð skil­aði ekki til­skyldum árangri og er nösin 80% lokuð enn þann dag í dag. Þetta hefur haft þær afleið­ingar að ég stífl­ast auð­veld­lega og losna illa við kvef. Ég fæ haus­verk útfrá þessu fyrir utan það þá háir þetta mér við söng. Silli Geirdal og fleiri sem hafa tekið mig upp í gegnum tíð­ina hafa þurft að eyða miklum tíma í að klippa burt blíst­ur­hljóð sem heyr­ast í studioupptökum.“

Stefán segir að lokum að honum finn­ist erfitt að rifja þetta tíma­bil upp, hins vegar sé ást, friður og fyr­ir­gefn­ing allt sem þarf.

„[Ég] ber samt engan sér­stakan kala til þessa fólks sem olli þessum skaða. Þetta var og er reynsla sem hefur gert mig sterk­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina