Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vill stjórnarteymi Icelandair burt

Vill stjórnarteymi Icelandair burt

Starfs­fólk þjón­ustu­vers Icelandair er ósátt við að 50 starfs­mönnum skuli hafa verið sagt upp í apríl þegar COVID-19 far­ald­ur­inn geis­aði á meðan fyr­ir­tækið heldur í 40 starfs­menn hjá þjón­ustu­fyr­ir­tæki á Fil­ipps­eyjum. Þeir gagn­rýna fyr­ir­tækið og VR fyrir að hafa stutt kjara­bar­áttu flug­freyja en þagað þunnu hljóði þegar starfs­fólki þjón­ustu­vers­ins missti vinn­una.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, seg­ist ekki vera haf­inn yfir gagn­rýni og þykir leitt að geta ekki hjálpað starfs­mönnum Icelandair betur en raun ber vitni. Honum finnst galið ef flug­fé­lagið ætli sér að halda áfram með núver­andi stjórn­endur og stjórn­ar­menn við stýrið. „Ég stend alveg fylli­lega við þá skoðun mína að ég tel félagið órekstr­ar­hæft með núver­andi stjórn og stjórn­endur Icelandair. Það verður órekstr­ar­hæft til fram­tíðar nema komi til breyt­inga þar á. Grimmi­leg fram­koma félags­ins við starfs­fólk, fyrst og fremst okkar félags­menn, hefur orðið til þess að ég fer ekki frá þeirri kröfu,“ segir Ragnar.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Ragnar finnur til með brottreknum starfs­mönn­unum en segir ósköp lítið sem stétt­ar­fé­lög geti gert þegar kjara­samn­ingar á almennum mark­aði verji ekki starfs­aldur. Hann telur algjör­lega óboð­legt að Icelandair úthýsi starf­semi hér og færi til Fil­ipps­eyja. „Þarna er verið að segja upp okkar fólki á meðan þjón­ustan er færð til landa sem þver­brjóta öll alþjóð­leg við­mið um lífs­gæði og launa­kjör. Mér finnst þetta sið­laust. Þetta er ein af ástæð­unum fyrir því að ég vil stjórn­enda­teymið þarna burt og mér finnst líka sið­laust af líf­eyr­is­sjóðum að fjár­festa í félagi sem kennir sig við að verja íslensk störf en fórnar störfum fyrir útvistun af þessu tagi,“ segir Ragnar.

„Öll mín gagn­rýni á Icelandair hefur verið í nafni okkar félags­manna. Við hjá VR styðjum bar­áttu allra stétta en það er sára­lítið sem við getum gert til að verja hag okkar félags­manna gagn­vart fyr­ir­tækjum sem starfa á almennum mark­aði og fara í mjög mis­kunn­ar­lausar upp­sagnir þar sem ekki er tekið til­lit til starfs­ald­urs. Þetta er skelfi­leg staða og ég hef óend­an­lega samúð með þessu fólki en það er ekk­ert sem við getum gert.“

Lestu meira um málið í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina