Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mitt nafn var framan af nær aldrei nefnt í tengslum við forsetaembættið“

„Mitt nafn var framan af nær aldrei nefnt í tengslum við forsetaembættið“

„Ég skal koma í við­tal við Mannlíf en legg til að við göngum á Úlf­ars­fell og við­talið fari þar fram,“ svarar Guðni Th. Jóhann­es­son Mannlífi um við­tal fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar.

Þetta skil­yrði for­set­ans var í senn kær­komið og sjálf­sagt. Ég hafði tveimur árum fyrr farið þess á leit við for­set­ann að hann yrði eins­konar leynig­estur í göngu Fyrsta skrefs Ferða­fé­lags Íslands á fjallið. Það var með hálfum huga að ég bar upp erindið við hann þá daga en for­set­inn sam­þykkti mér til gleði. Guðni fór á kostum á efsta tindi þar sem hann flutti tölu fyrir 70 manna hóp og sagði frá næstum óbæri­legri feimni sinni á ung­lings­árum.

Mynd á for­síðu / Hallur Karlsson

Enginn nefndi Guðna

Þegar dró að kosn­ingum árið 2016 var vin­sæll sam­kvæm­is­leikur að benda á hugs­an­lega fram­bjóð­endur. Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, hafði lýst yfir að hann myndi hætta eftir 20 ár á Bessa­stöðum. Ýmsir voru nefndir framan af en ekki þó Guðni.

„Mitt nafn var framan af nær aldrei nefnt í tengslum við for­seta­emb­ættið. Það er stundum sagt í gamni að í aðdrag­anda for­seta­kjörs sé það nán­ast móðgun ef maður er ekki orð­aður við fram­boð,“ segir Guðni í léttum dúr.

En svo breytt­ist allt og skyndi­lega var nafn Guðna komið í umræð­una. Í apríl 2016 komust upp­ljóstr­anir tengdar Panama-skjöl­unum í hámæli. Guðni var þá kall­aður til álits­gjafar í fréttum sem sagn­fræð­ingur og fékk þjóð­ar­at­hygli. Honum hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa notað Rík­is­út­varpið sem stökk­pall á Bessa­staði.

„Ég get aðeins svarað sann­leik­anum sam­kvæmt að ég sá ekki fyrir frekar en aðrir þessa upp­ljóstrun. Ég varð við beiðni ýmissa fjöl­miðla­manna, eins og margoft áður, um að segja skoðun mína á rás við­burða. Á þessum tíma í aðdrag­anda for­seta­kjörs höfðu margir stigið fram og lýst áhuga eða fram­boði til þessa emb­ættis. Enginn hafði fengið mik­inn byr í seglin. Ég var þarna í ákveðnu sviðs­ljósi og fékk áskor­anir og hvatn­ingu um að bjóða mig fram. Þarna stóð ég and­spænis því að ef ég myndi bjóða mig fram til for­seta væru ágætis líkur á því að ég hefði erindi sem erf­iði. Ég lét kanna jarð­veg­inn og við tóku ævin­týra­legir dagar. Eftir að ég til­kynnti fram­boð mitt sá þáver­andi for­seti, Ólafur Ragnar Grímsson, sig um hönd og sótt­ist eftir end­ur­kjöri. Davíð Oddsson, rit­stjóri og fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var í hópi fram­bjóð­enda. Ég sá því fram á að keppa við þessar tvær stór­kanónur. Báðir áttu þeir að baki magn­aðan feril og mikla reynslu. Seinna hætti Ólafur Ragnar aftur við en margir öfl­ugir fram­bjóð­endur tók­ust á um emb­ættið.“

„Davíð á merkan feril í stjórn­málum að baki.“

Davíð og ósigurinn

Guðni sigr­aði með nokkrum yfir­burðum eða með rúm­lega 39 pró­senta fylgi. Athygli vakti að Davíð Oddsson, sem rak mjög harð­skeytta bar­áttu, sér­stak­lega gegn Guðna, fékk aðeins brot af því fylgi sem stuðn­ings­menn hans höfðu reiknað með. Fleyg urðu ummæli Guðna þegar hann spurði Davíð hvort hann hefði enga sóma­kennd. Guðni segir átök þeirra tveggja ekki hafa skilið eftir nein ör af sinni hálfu. Davíð hafn­aði í fjórða sæti með aðeins 13,75 pró­senta fylgi og stærsta tapið á ferli hans varð að veru­leika. Guðni segir Davíð hafa tekið ósigri sínum vel.

„Mér fannst Davíð rísa hátt á kosn­inga­kvöld­inu þegar ósigur hans blasti við. Okkar leiðir hafa ekki legið mjög saman síðan en við höfum þó hist og ég geri mér ekki far um að forð­ast hann. Davíð á merkan feril í stjórn­málum að baki. Þegar sagan verður skrifuð mun hann telj­ast í hópi þeirra stjórn­mála­manna sem mót­uðu okkar sam­fé­lag mest á seinni hluta 20. aldar og fram á þá 21.“

Lestu við­talið við Guðna í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu