Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Óvíst með frí Höllu forseta á árinu

Erfitt er að festa frí­daga vegna anna sam­kvæmt ráð­gjafa hjá emb­ætt­inu

Óvíst með frí Höllu forseta á árinu
Halla Tóm­as­dóttir og Björn Skúlason, eig­in­maður hennar Hann var gagn­rýnd fyrir frí í jan­úar Mynd: Aldís Pálsdóttir / Skrifstofa forseta Íslands

Óvíst er hversu marga frí­daga Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, mun taka á þessu ári sam­kvæmt Unu Sig­hvats­dóttur, sér­staks ráð­gjafa hjá for­seta­emb­ætt­inu. Erfitt sé fyrir for­seta að fast­setja sam­fellda frí­daga vegna anna en Halla var gagn­rýnd þegar hún fór í frí fyrr á árinu í stað þess að mæta á minn­ing­ar­at­höfn um hel­för­ina í Auschwitz.

„Ekki er enn búið að fast­setja neitt sam­fellt frí fyrir for­seta á árinu 2025,“ segir í svari Unu til Mannlífs um málið. „Hún mun taka sér nokkra daga í tengslum við útskriftir barna hennar úr háskóla í sum­ar­byrjun, en þeir dagar verða jafnan flétt­aðir saman við vinnu­tengda fundi.

Reynslan er sú að það reyn­ist jafnan erfitt í emb­ætti for­seta að fast­setja sam­fellda frí­daga vegna mik­illa anna, en þó er reynt að tryggja að for­seti geti tekið sér eitt­hvað orlof með fjöl­skyld­unni þegar hægt er að koma því við. Gera má ráð fyrir að svo verði í sumar.“

Mannlíf spurði einnig um frí­töku Guðna Th. Jóhann­es­sonar en hann var for­seti í átta ár á undan Höllu, sem tók við emb­ætt­inu í fyrra.

Guðni Th. Jóhann­es­son fyrrum for­seti Íslands

„Ég er ekki með upp­lýs­ingar á reiðum höndum um frí­töku á fyrra kjör­tíma­bili Guðna Th. Jóhann­es­sonar, en á síð­ara kjör­tíma­bil­inu tók hann sér að jafn­aði sum­ar­frí í um tvær vikur sam­fleytt hvert, sam­tals sex vikur á árunum 2021-2023,“ sagði Una um Guðna. „Árið 2021 var hann í fríi frá 19.-29. júlí þegar fjöl­skyldan ferð­að­ist saman inn­an­lands. Árið 2022 var hann í sum­ar­fríi frá 3.-18. ágúst þegar fjöl­skyldan ferð­að­ist saman til Kanada og árið 2023 fór fjöl­skyldan einnig saman til Kanada og var for­seti þá í sam­felldu sum­ar­fríi frá 18. júlí til 2. ágúst. Árið 2024 tók hann sér ekk­ert sam­fleytt sum­ar­frí áður en hann lét af emb­ætti þann 31. júlí.“

Halla verður á flakki um heim­inn eins og algengt er hjá for­seta Íslands og mun fara meðal ann­ars til Japan, Kanada og Sví­þjóðar á þessu ári.

„Ég get stað­fest að framundan á árinu er önnur rík­is­heim­sókn, að þessu sinni til Sví­þjóðar nú í byrjun maí í boði Karls XVI. Gústafs Svía­kon­ungs,“ segir Una um stað­festar ferðir Höllu á þessu ári.

„Þá fer hún í nokkrar opin­berar ferðir og heim­sóknir sem þó eru ekki rík­is­heim­sóknir. Til dæmis ferð­ast hún til Japan í lok maí í til­efni af Íslands­deg­inum í sam­nor­ræna sýn­ing­ar­skál­anum á heims­sýn­ingu EXPO í Osaka. Þá ferð­ast hún til Kanada í ágúst þar sem hún verður heið­urs­gestur Íslend­inga­dags­há­tíð­ar­innar í Manitóba. Í ár eru liðin 150 ár síðan fyrsti stóri hópur Íslend­inga kom til Manitóba og stofn­aði þar Nýja-Ísland og verður þess sér­stak­lega minnst á hátíð­inni.“

Þá megi búast við fleiri ferðum í haust og vetur en það sé ótíma­bært að grein frá þeim að svo stöddu. Slíkt verði gert þegar nær dregur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

PólitíkForseti Íslands

Halla heldur til Sví­þjóðar og Noregs

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, hefur ákveðið að þiggja boð um rík­is­heim­sókn til Noregs og Sví­þjóðar en greint er frá þessu í frétta­til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu. Í henni segir að mark­mið beggja heim­sókna er að styrkja enn frekar sögu­leg tengsl þjóð­anna og vinna að sam­eig­in­legum hags­munum og hefð sé fyrir því að nor­rænir þjóð­höfð­ingjar fari sínar fyrstu rík­is­heim­sóknir eftir emb­ætt­is­töku milli Norð­ur­landa...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ