Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Að sýna mjúku hliðina í sjálfum þér þýðir ekki að þú sért minni manneskja“

„Að sýna mjúku hliðina í sjálfum þér þýðir ekki að þú sért minni manneskja“

Ólafur Darri Ólafsson leik­ari við­ur­kennir að hann sé for­dekraður, feitur og frægur mið­aldra karl sem geti grátið yfir BYKO-aug­lýs­ingum. Hann seg­ist þola illa frekju og hroka og vill halda í sak­leysið í sjálfum sér.

Í við­tali við Mannlíf ræðir hann sveifl­urnar á leik­ara­ferl­inum, meðal ann­ars prufu fyrir stór­mynd­ina Hobbit­ann þar sem hann seg­ist hafa gert upp á bak. Í gær kom út Netflix-kvik­myndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga þar sem Ólafur Darri leikur á móti kvik­mynda­stjörn­unum Will Ferrell og Rachel McAdams. Leik­ar­inn segir það auð­vitað kitla að tugir ef ekki hund­ruð millj­óna áhorf­enda víða um heim horfi á hann leika. Og ef honum finnst hann þurfa klapp á bakið fari hann á Heathrow-flug­völl í Lundúnum.

„Ég á mjög erfitt með freka mið­aldra karla enda er ég einn af þeim.“
Aðspurður segir Ólafur Darri það algengt að vera stopp­aður til að koma í spjall eða mynda­tökur af áhuga­sömum. Hann hoppar á milli erlendra og inn­lendra verk­efna og við­ur­kennir að þau inn­lendu togi ekki minna í sig.

Frekir karlar

Beðinn um að lýsa sjálfum sér segir Ólafur Darri það ekki flókið mál. „Ég myndi lýsa mér sem stórum, feitum mið­aldra karl­manni. Sem nær stundum að fá fólkið sitt til að hlæja. Og ekki bara alltaf að sér, líka stundum með sér. Mér finnst aðeins of gaman í vinn­unni og ég vil hafa álag. Geðslag mitt er yfir­leitt ágætt en þessa dag­ana á ég í mestu vand­ræðum með mitt eigið kyn. Ég á mjög erfitt með freka mið­aldra karla enda er ég einn af þeim,“ segir Ólafur Darri. „Okkur finnst svo­lítið mikið eins og allir eigi bara að stoppa og hlusta þegar við byrjum að tala. Það er best að byrja á sjálfum sér svo ég er að reyna að vera minni frekja og meiri mann­eskja. Mér finnst að við mið­aldra karlar eigum að taka okkur allir saman og hætta að vera svona frekir.“

Getur alveg farið í megrun

„Hér áður fyrr þurfti fólk að hrista allt af sér, það mátti ekki sýna við­kvæmni heldur bara styrk. Vonandi er þessi tími lið­inn. Ég vil reyna að vera eins lít­ill og brot­hættur og ég get því ég vil inn­byrða allt til­finn­inga­mynstrið sem lífið býður upp á. Ég get lítið breytt útliti mínu, jú ég gæti svo sem farið í megrun eða eitt­hvað en ég verð alltaf það stór að ég rek mig utan í hluti,“ bætir Ólafur Darri við.

„Ég er sáttur við mig. Ég er stór og feitur og mér finnst það bara allt í lagi. Við eigum líka að vera alls konar. Mér hefur sjaldan verið strítt vegna vaxt­ar­lags­ins. Ég er alveg með munn­inn fyrir neðan nefið og þannig náði ég líka að snúa upp á fólk áður fyrr til að koma í veg fyrir stríðn­ina.

Ég gleymi því aldrei sem Guðrún Ásmunds­dóttir leik­kona sagði: „Það er svo gaman að sjá stóra menn létta á sviði.“

Grætur yfir auglýsingum

Um leið og Ólafur Darri lýsir sér sem stórum og miklum manni seg­ist hann samt svo brot­hættur á sama tíma. Að geta grátið, beðist afsök­unar og verið auð­mjúkur finnst honum merki um styrk. „Eig­in­lega hreyki ég mig af því að gráta yfir bíó­myndum og undir ákveðnum kring­um­stæðum þá get ég grátið yfir BYKO-aug­lýs­ing­unum. Ég held til dæmis að ýmsir aðilar mættu treysta okkur, sam­borg­urum sínum, fyrir mis­tökum sínum. Við erum, jú öll, alltaf að gera mis­tök og ég er ekki und­an­skil­inn því,“ segir hann.

„Það að eitt­hvað heppn­ist ekki eins og til stóð verður oft til þess að hlut­irnir verði miklu meira spenn­andi og safa­rík­ari. Mistök eru hluti af líf­inu, hvort sem okkur líkar betur eða verr og það er eins gott að gera það besta úr þeim.“

Lestu við­tal við Ólaf Darra í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una