Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Allt sem hann kann í handbolta lærði hann af mér“

„Allt sem hann kann í handbolta lærði hann af mér“

„Ég skal koma í við­tal við Mannlíf en legg til að við göngum á Úlf­ars­fell og við­talið fari þar fram,“ svarar Guðni Th. Jóhann­es­son Mannlífi um við­tal fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar.

Þetta skil­yrði for­set­ans var í senn kær­komið og sjálf­sagt. Ég hafði tveimur árum fyrr farið þess á leit við for­set­ann að hann yrði eins­konar leynig­estur í göngu Fyrsta skrefs Ferða­fé­lags Íslands á fjallið. Það var með hálfum huga að ég bar upp erindið við hann þá daga en for­set­inn sam­þykkti mér til gleði. Guðni fór á kostum á efsta tindi þar sem hann flutti tölu fyrir 70 manna hóp og sagði frá næstum óbæri­legri feimni sinni á ung­lings­árum.

Alzheimer-buffið

Við göngum áfram stíg­inn í gegnum skóg­inn, áleiðis á Hákinn. Það rignir dálítið en ekki þó telj­andi. Hallur ljós­mynd­ari er him­in­lif­andi með að fá for­set­ann öðru­vísi en upp­stilltan í spari­fötum með bindi. Því meiri rign­ing, því betra. Guðni er með Alzheimer-buffið fræga um háls­inn. Mynd Sigurðar Boga blaða­manns af for­set­anum með buffið varð fræg. Guðni segir það hafa verið til­viljun að einmitt þetta buff með áletrun þeirra frómu Alzheimersamtaka hafi orðið fyrir val­inu þegar hann valdi sér buffið á sínum tíma þar sem hann var við­staddur vígslu á upp­lýs­inga­skilti við Skansinn á Bessa­staða­nesi, í hvass­viðri og kulda.

„Ég greip af hend­ingu buff sem lá í hrúgu heima og las á það. Alzheimersamtökin, það er gott að styðja þau, hugs­aði ég. Ég var hepp­inn að hafa ekki dottið niður á buff með föllnu bönk­unum,“ segir hann og hlær.

Við viljum ólmir sjá hann með buffið í enn­is­hæð. Eftir nokkrar for­tölur fellst for­set­inn á að setja það upp sem höf­uð­fat gegn því þó að þetta verði ekki for­síðu­mynd.

„Hugsaðu þér þau gæði sem við höfum inni í borg­inni með þennan unaðs­reit sem Úlf­ars­fellið er. Svo er það auð­vitað Heið­mörkin og Álfta­nesið,“ segir Guðni þegar við göngum áfram í gegnum skóg­inn.

Mynd á for­síðu / Hallur Karlsson

Ástúð og öryggi

Ég spyr um bernsku Guðna. Hann ólst upp með tveim bræðrum, Patreki og Jóhann­esi. For­eldrar hans eru Jóhannes Sæmunds­son, íþrótta­kenn­ari við Mennta­skól­ann í Reykja­vík og fræðslu­full­trúi hjá Íþrótta­sam­bandi Íslands, og Margrét Thorlacius barna­kenn­ari. Var hann ham­ingju­samt barn?

„Já, ég naut ást­úðar og öryggis. Lífið sner­ist um skól­ann þegar hann var í gangi og svo íþróttir og leiki utan­húss. Pabbi var íþrótta­þjálf­ari og fór meðal ann­ars með frjáls­í­þrótta­hóp okkar Íslend­inga á Ólymp­íu­leik­ana í München 1972. Hann var um tíma aðstoð­ar­lands­liðs­þjálf­ari í körfuknatt­leik hjá Einari Bolla­syni og í hand­bolt­anum með Jóhanni Inga Gunn­ar­syni. Við bræð­urnir ólumst því upp í heimi íþrótt­anna.“

Patrekur, yngri bróðir Guðna, varð þjóð­þekktur sem lands­liðs­maður í hand­bolta. Var ekk­ert erfitt fyrir Guðna að standa í skugga litla bróður síns?

„Allt sem hann kann í hand­bolta lærði hann af mér,“ segir Guðni og skelli­hlær.

Guðni stund­aði hand­bolta af kappi sem ung­lingur og stefndi langt í þeirri íþrótt.

„Þegar ég var á aldr­inum 16 til 17 ára og Patti 12 ára gerði ég mér grein fyrir að hann var orð­inn betri en ég í hand­bolta. Þá sá ég að það væri meira vit í að snúa mér að ein­hverju öðru. Ég get samt sagt með réttu að það varð mér sem tán­ingi mikið áfall þegar ég átt­aði mig á því að ég yrði aldrei lands­liðs­maður í hand­bolta. Þetta er eitt af því sem ég hef hug­leitt í emb­ætti mínu sem for­seti að við verðum að finna rétt jafn­vægi í líf­inu. Við viljum fá ung­menni til að hreyfa sig og hafa þau í skipu­lögðu æsku­lýðs- og íþrótta­starfi en við getum ekki ein­göngu búið til afreks­fólk. Hvað verður um fjöld­ann er það sem við þurfum að huga að. Íþrótta­fé­lögin verða að huga ögn meira að því að láta alla njóta sín í íþrótta­starfi á eigin for­sendum. Auðvitað viljum við hlúa að þeim sem skara fram úr en við sjáum of mikið brott­fall ung­linga, 15 til 16 ára. Þá verða skilin svo skörp milli þeirra sem ná lengst og hinna sem sjá að það er ekki þeirra braut. Það þarf að finna þeim far­veg. Þar að auki er nú alls ekki alltaf aug­ljóst hverjir munu í raun skara fram úr þegar á reynir.“

Lestu við­talið við Guðna í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu