Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimsfrægar fyrir að borða sushi

Heimsfrægar fyrir að borða sushi

Sushi-klúbb­ur­inn Súsí er gagn­merkur félags­skapur sem stofn­aður var í Horsens í Danmörku fyrir tíu árum og telur félags­konur á breiðu ald­urs­bili sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa ein­hvern tíma búið í Horsens. Klúbb­ur­inn hefur þó löngu flutt starf­semi sína til Íslands og blómstrar sem aldrei fyrr að sögn Lenu M. Ara­dóttur, einnar af félags­kon­unum.

„Það voru fjöl­margir Íslend­ingar í námi í VIA-háskóla í Horsens, konur og karlar, meðal ann­ars í bygg­ing­ar­fræði, alþjóða­við­skiptum, Value Chain Mana­gement eða upp­eld­is­fræði. Aðrir fóru í snyrti­aka­dem­í­una eða út á vinnu­mark­að­inn, eða hugs­uðu um heim­ilið á meðan mak­inn var í námi,“ útskýrir Lena. „Meiri­hlut­inn af þeim sem voru í nám­inu voru karl­menn en þeir áttu margir fjöl­skyldur og Íslend­inga­fé­lagið í Horsens var mjög aktíft. Einhvern tíma kom upp sú hug­mynd að hitt­ast heima hjá einni af íslensku kon­unum og búa til sushi saman. Ein okkar var mjög fróð um sushi-gerð og fræddi okkur hinar og lengi framan af vorum við alltaf með heima­til­búið sushi þegar við hitt­umst.“

Sushi-kvöldin urðu geysi­vin­sæl meðal íslensku kvenn­anna, hóp­ur­inn stækk­aði sífellt og á end­anum var svo komið að þær þurftu að fá mat­sal­inn í skól­anum lán­aðan fyrir fund­ina.

„Það bjuggu allir í frekar litlu hús­næði þarna úti svo það var ekki pláss fyrir okkur allar í heima­húsum lengur,“ segir Lena og hlær. „Við stofn­uðum klúbb­inn form­lega 2009 og það merki­lega er að þótt stöðugt bætt­ist í hóp­inn þá er alltaf sami kjarn­inn.“

Best að kynnast konum úr ólíku umhverfi

Lena segir mark­mið klúbbs­ins hafi alltaf verið að leyfa öllum sem vildu að vera með og þótt það séu bara konur í honum sé það ekki vegna þess að karl­menn séu bann­aðir, þeir hafi bara aldrei sótt um inn­göngu. En hvað er það sem hefur haldið hópnum saman í öll þessi ár?

„Ég spurði einmitt hinar að því þegar ég vissi að ég væri að fara í þetta við­tal hvað þeim fynd­ist best við að vera í Súsí,“ útskýrir Lena. „Flestar voru sam­mála um að það besta væri að þar kynnt­ust þær konum sem þær hefðu ekki ann­ars kynnst. Við erum á mjög dreifðu ald­urs­bili, með mjög mis­mun­andi menntun, vinnum mis­mun­andi störf og þetta er rosa­lega fjöl­breyttur hópur. Okkur finnst ofboðs­lega gaman að hitt­ast í jákvæðu umhverfi og byggja hver aðra upp með fólki sem við myndum ekki ann­ars umgang­ast.“

„Þegar við fórum í bústað­inn síð­ast gerði hún sushi-pítsu sem var alveg brjál­æð­is­lega góð. Það hefur hver sinn smekk á því hvernig hún vill hafa sitt sushi.“

Í upp­hafi var alltaf borið fram heima­gert sushi þegar klúbb­ur­inn hitt­ist en eftir að kon­urnar fluttu heim, höfðu meira að gera og meiri fjár­ráð var farið að bjóða upp á aðkeypt sushi.

„Við erum bara komnar í aðeins meiri lúx­uslífs­stíl, orðnar aðeins eldri,“ segir Lena og glottir. „En það er enn þá mjög spes að hitt­ast og búa til sushi saman og það gerum við alltaf ein­stöku sinnum. Förum til dæmis í bústað einu sinni á ári og gerum sush-ið sjálfar að minnsta kosti í annarri hverri ferð, það er alveg ynd­is­legt.“

Hvað er hóp­ur­inn orð­inn stór?

„Í hópnum okkar á Facebook eru tutt­ugu og sjö með­limir í augna­blik­inu,“ segir Lena. „Þær eru ekki allar mjög virkar en það eru alla vega um tutt­ugu konur sem eru mjög dug­legar að mæta.“

Blaðamaður frá Varsjá mætti á staðinn

Í sumar fagn­aði Súsí tíu ára afmæl­inu með því að hóp­ur­inn fór saman til Póllands þar sem lifað var í vellyst­ingum. Hvers vegna varð Pólland fyrir val­inu?

„Við erum búnar að tala um það í mörg ár að við þyrftum að fara eitt­hvað út og gera eitt­hvað skemmti­legt saman,“ útskýrir Lena. „Tvær úr hópnum tóku svo af skarið, pönt­uðu sér flug­miða til Wroclaw í Póllandi og hvöttu okkur hinar til að koma líka. Þátt­takan fór fram úr þeirra björt­ustu vonum, á end­anum vorum við tutt­ugu sem fórum í þessa helg­ar­ferð.“

„Eig­and­inn verður alveg upp­veðr­aður yfir því hvað þetta sé merki­legt og kallar til blaða­mann sem mætti og mér skilst að hann hafi setið í lest frá Varsjá í tvo til þrjá tíma bara til að koma og taka við­tal við okkur.“

Og borð­uðuð þið bara sushi allan tím­ann?

„Nei, við gerðum það nú ekki,“ segir Lena og skelli­hlær. „En við borð­uðum á algjör­lega frá­bærum sushi-stað þar sem mat­ur­inn var ynd­is­legur og við fengum alveg fram­úr­skar­andi þjón­ustu.“

Heimsókn hóps­ins til Wroclaw vakti svo mikla athygli þar­lendra að kall­aður var til blaða­maður sem tók við þær við­tal og mynd­aði í bak og fyrir. Hvernig kom það til?

„Já, það er óend­an­lega fyndin saga,“ segir Lena og skellir aftur upp úr. „Við skildum bara ekk­ert hvað við vorum komnar út í. Þannig var að ein okkar sendi tölvu­póst á veit­inga­stað til að bóka borð og þar kemur fram að það sé að koma tutt­ugu kvenna hópur frá Íslandi, sushi-klúbb­ur­inn Súsí. Eig­and­inn varð alveg upp­veðr­aður yfir því hvað þetta væri merki­legt og kall­aði til blaða­mann sem mætti og mér skilst að hann hafi setið í lest frá Varsjá í tvo til þrjá tíma bara til að koma og taka við­tal við okkur. Hann birti síðan grein með myndum og eftir á vorum við allar alveg á útopnu yfir því að nú yrðum við heims­frægar. Í gríni auð­vitað. En þetta var mjög skemmti­legt.“

Ekkert mál að borða vegan-sushi

Það er greini­lega mikið fjör þegar hóp­ur­inn hitt­ist en hafa mynd­ast ein­hver við­var­andi vin­áttu­tengsl í gegnum starf­semi klúbbs­ins?

„Já, algjör­lega,“ segir Lena með sann­fær­ingu. „Það eru litlir hópar innan stóra hóps­ins. Til dæmis erum við nokkrar á mínum aldri með lít­inn sauma­klúbb sem hitt­ist enn þá reglu­lega. Við höfum allar búið í Horsens og vorum nánar þar og svo héldum við vin­átt­unni eftir að við komum til Íslands.“

Hvað finnst mökum ykkar um þetta upp­á­tæki ykkar?

„Þeir voru mjög margir með okkur úti líka og þekkj­ast vel,“ segir Lena. „Maðurinn minn fer til dæmis í veiði­ferðir með mönnum nokk­urra úr hópnum, þannig að í raun­inni er þetta stór vina­hópur. Mér finnst þetta alveg ein­stakt. Það eru allir alltaf vel­komnir og maður kann­ast við alla og alltaf jafn­gaman að hitta hóp­inn.“

Eruð þið ekki orðnar algjörir sushi-sér­fræð­ingar eftir öll þessi ár?

„Ég veit nú ekki hvort við telj­umst sér­fræð­ingar,“ segir Lena sposk. „Það eru þarna nokkrar sem eru ofboðs­lega klárar í sushi-gerð og þær eru dálítið í því að leið­beina okkur hinum. Ég kann alveg að rúlla sushi-rúllur, en einn sér­fræð­ing­anna okkar er kom­inn út í alls kyns til­rauna­starf­semi. Þegar við fórum í bústað­inn síð­ast gerði hún sushi-pítsu sem var alveg brjál­æð­is­lega góð. Það hefur hver sinn smekk á því hvernig hún vill hafa sitt sushi. Við erum til dæmis tvær í hópnum sem eru vegan, borðum ekki fisk, en það er ekk­ert mál að fá vegan-sushi með græn­meti og ávöxtum. sumum finnst skrýtið að kalla það sushi en orðið þýðir hrís­grjón svo það er engin þver­sögn í því að borða sushi án fisks.“

„Það væri ekk­ert smá­flott að fara til Japans á tutt­ugu ára afmæl­inu.“

Það hlýtur að vera lang­þráður draumur allra sushi-unn­enda að kom­ast til Japans, stefnið þið á að fara þangað?

„Það væri reyndar alveg geggjað mark­mið,“ segir Lena og brosir. „Ég tek þetta mál upp í sum­ar­bú­staða­ferð­inni í febr­úar. Reyndar er það ansi langt ferða­lag og margar okkar enn þá með ung börn en kannski við setjum bara stefn­una á að hafa það sem fram­tíð­ar­mark­mið. Það væri ekk­ert smá­flott að fara til Japans á tutt­ugu ára afmæl­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu