Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Íris tók ákvörðun um að hætta að drekka: „Ég set mig í fyrsta sæti“

Íris tók ákvörðun um að hætta að drekka: „Ég set mig í fyrsta sæti“

Íris Hólm tón­list­ar­kona tók þá ákvörðun fyrr á árinu að hætta að drekka og hefur nú verið án áfengis í 150 daga. Á mánu­dag, þegar dag­arnir voru orðnir 147, skrif­aði hún færslu á Facebook um hverju þessi ákvörðun hefði breytt fyrir hana.

„147 dagar er ekki langur tími í stóra sam­heng­inu en fyrir mig per­sónu­lega er þetta stór sigur og á allan hátt hefur þetta aukið ham­ingj­una og gleð­ina í líf­inu mínu,“ segir Íris og seg­ist hún hafa fengið margar spurn­ingar um hvers vegna hún ákvað að hætta að drekka.

,,Var eitt­hvað vesen?” ,,Þú getur nú alveg fengið þér einn drykk? Þú ert ekki alkó­hólisti!” voru á meðal spurn­inga sem Íris fékk, sem segir að það hafi aldrei verið vesen og hún geti ekki fengið sér einn.

„Ég drakk aldrei af því að mér fannst bjór svo góður eða hvítvínið gott. Ég drakk til að finna á mér, losa um hömlur og „vera skemmti­leg.“ Svo dag­inn eftir allt saman lang­aði mig að deyja,“ segir Íris og meinar það. „Mig lang­aði að hverfa. Mig lang­aði að gef­ast upp. Ég eyddi mörgum dögum í kvíða­kasti, þung­lyndi og allir draugar for­tíðar og fram­tíðar bönk­uðu upp á með öllum sínum niðr­andi far­angri og hatri í garð sjálfs­ins.“

Tók ákvörðunina fyrir sjálfa sig

Íris segir að ákvörð­unin um að hætta að drekka hafi verið tekin fyrir hana sjálfa.  „Mín ákvörðun um að hætta að drekka áfengi er fyrir mig. Og á meðan ég set mig í fyrsta sæti þá set ég barnið mitt í fyrsta sæti og allt fólkið í kringum mig.“

Hvað þýðir það að hætta að drekka?

Íris segir drykkju­menn­ingu vera merki­legt „consept“ og það að hætta að drekka hafi opnað augu hennar fyrir margs­konar við­horfum sem hún var sjálf sek um að hafa.

„Það að hætta að drekka þýðir ekki að ég hafi farið í með­ferð, en ef svo væri þá er það líka ótrú­lega stórt skref og virð­ing­ar­vert! Það krefst hug­rekkis að snúa við blað­inu og biðja um hjálp!

Það að hætta að drekka þýðir ekki að ég geti ekki verið í kringum fólk sem drekkur, þannig að ekki hætta að bjóða mér í partý.

Það að hætta að drekka þýðir ekki að ég vilji ekki kíkja niður í bæ.

Það að hætta að drekka þýðir ekki að ég sé einka­bíl­stjóri þeirra sem drekka. Það má spyrja, en ég má líka segja nei. Mig langar kannski bara að vera áfram í partý­inu.

Það að hætta að drekka þýðir ekki að þú megir ekki fá þér í glas. Og það að ég drekki ekki ætti ekki að skemma það fyrir þér. Og ef það gerir það, þá þarft þú kannski að skoða eitt­hvað hjá sjálfum þér.
Ég á ekki að þurfa að fylla bjór­flösku af vatni og þykj­ast vera að fá mér til þess að losna við leið­indin. Já, þetta er sönn saga. Pælið í því?!“

Margir sem sýna skilning og hrós

Íris segir ótrú­lega marga hafa sýnt ákvörðun hennar fullan skiln­ing, hrósað henni fyrir að standa með sjálfri sér og það þyki henni vænt um.

„Það eru líka ótrú­lega margir sem ég hef talað við sem gerðu sér ekki grein fyrir sama­sem­merk­inu á milli drykkju og van­líð­unar. Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrst. En því­líkt frelsi að hafa áttað mig á því.“

Færslu Írisar má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina