Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sema um leik Skallagríms og Berserkja: „Hvenær ætlar KSÍ að fara að taka á kynþáttafordómum?“

Sema um leik Skallagríms og Berserkja: „Hvenær ætlar KSÍ að fara að taka á kynþáttafordómum?“
Sema Erla Serdar.

Bar­áttu­konan Sema Erla Serdar og stofn­andi Solaris, hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, tjár sig um atvikið sem átti sér stað í leik Skalla­gríms og Ber­serkja. Hún veltir fyrir sér hvenær KSÍ ætli að taka sig á og fara að taka á kyn­þátta­for­dómum í bolt­anum af alvöru með skil­virku fræðslu- og for­varn­ar­starf.

„Hvað þarf til, ef atvik og umræður síð­ustu vikur erlendis sem og hér­lendis, duga ekki til? Ef ekki núna, hvenær í ósköp­unum þá,“ spyr Sema Erla á Facebook.

Tilefni skrif­anna er atvik sem kom upp í fyrra­kvöld í leik Skalla­gríms og Ber­serkja í 4. deilda­karla í fót­bolta, þar sem leik­maður Skalla­gríms er sagður hafa kallað leik­mann Ber­serkja apa­kött og sagt honum að drull­ast heim til Namibíu. Skalla­grímur hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins þar sem segir að Knatt­spyrnu­deild Skalla­gríms muni ekki líða það að leik­menn við­hafi ummæli sem fela í sér kyn­þátta­for­dóma. Félagið muni grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana í sam­ráði við KSÍ.

„Viðbrögð sumra leik­manna, þjálf­ara, fyr­ir­mynda og yfir­manna í knatt­spyrnu­sam­fé­lag­inu hér á landi ein­kennd­ust af með­virkni, skiln­ings­leysi og aðgerð­ar­leysi.“

Sema Erla tjáir sig um yfir­lýs­ing­una. Hún segir að það sé gott og vel að Skalla­grímur ætli að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana í sam­ráði við KSÍ. Viðbúið sé að umræddur leik­maður sem ekki hafi beðist afsök­unar á ras­ism­anum, verði dæmdur í langt bann fyrir ítrek­aða kyn­þátta­for­dóma í leiknum í gær (og áður), strax eftir helgi, þar sem það er yfir­lýst stefna beggja aðila að kyn­þátta­for­dómar sé ekki liðnir og að honum hefur áður verið refsað fyrir slíkt. „Þá má einnig búast við því að hann fái fræðslu og kennslu sem hjálpi honum að kom­ast yfir ras­isma sinn, áður en hann fær að snúa til baka í leik­inn,“ skrifar Sema.

Sema telur að eflaust væri þó aðeins meiri trú­verð­ug­leiki í orðum Skalla­gríms ef umrædddur leik­maður hefði ekki árið 2015 verið dæmdur í tveggja ára vall­ar­bann af KSÍ fyrir ras­isma af áhorf­enda­bekkj­unum í garð dóm­ara í leik sem hann horfði á.

Hún segir að kyn­þátta­for­dómar í knatt­spyrnu hafi lengi verið vanda­mál í bolt­anum og íslensk knatt­spyrna sé engin und­an­tekn­ing þar á. „Ekki er langt síðan leik­maður var dæmdur í nokk­urra leikja bann hér á landi fyrir rasísk ummæli í beinni útsend­ingu. Viðbrögð sumra leik­manna, þjálf­ara, fyr­ir­mynda og yfir­manna í knatt­spyrnu­sam­fé­lag­inu hér á landi ein­kennd­ust af með­virkni, skiln­ings­leysi og aðgerð­ar­leysi. Ummæli þeirra voru meðal ann­ars á þá leið að „þetta væri nú óþarfi, það þarf ekki að refsa mönnum fyrir svona „mis­tök“ og að það er nú ýmis­legt sagt í hita leiks­ins.“ Allt eru þetta dæmi um ummæli sem afsaka, ýta undir og við­halda ras­isma í fót­bolta og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Ég vona að þessir aðilar hafi eitt­hvað lært af umræð­unni síð­ustu vikur og átti sig á að við­brögð þeirra voru ekki í lagi.“

Þegar þetta átti sér stað segir hún að hún og fleiri hafi hvatt Knatt­spyrnu­sam­band Íslands til þess að bregð­ast við ras­isma í fót­bolta á Íslandi með skil­virkum hætti. „Til dæmis með því að setja skýrar verk­lags­reglur, reglur um við­brögð við ras­isma og við­eig­andi refsi­að­gerðir og einnig, og sér­stak­lega, að auka fræðslu innan knatt­spyrnu­sam­fé­lags­ins á fjöl­menn­ingu, mann­rétt­indum og ras­isma og alvar­leika og hættu­legum afleið­ingum ras­isma fyrir ein­stak­linga sem og sam­fé­lagið í heild sinni, sem ég veit ekki betur en að sé ekki nein í dag. Við­brögðin við þessum áskor­unum og boð frá mér og fleiri sér­fræð­ingum um að aðstoða með slíkt, voru engin.“

Hún von­ast til að fer­ill við­kom­andi leik­manns Skalla­gríms hafi sýnt yfir­mönnum knatt­spyrnu­sam­fé­lags­ins á Íslandi að refs­ingar dugi ekki til, að þær lækni ein­stak­linga ekki af ras­isma, þó þær séu vissu­lega nauð­syn­legar, ekki frekar en að ein­stak­lingar sem búa ekki yfir ras­isma láti frá sér rasísk ummæli (ítrekað) í hita leiks­ins.

Loks spyr Sema hvenær KSÍ ætlui að taka sig á og fara að taka á kyn­þátta­for­dómum í bolt­anum af alvöru með skil­virku fræðslu- og for­varn­ar­starfi. „Hvað þarf til, ef atvik og umræður síð­ustu vikur erlendis sem og hér­lendis, duga ekki til? Ef ekki núna, hvenær í ósköp­unum þá? Eins og áður stendur aðstoð mín ykkur til boða. Þetta er alls ekki stórt skref að taka. Það er ekk­ert að hræð­ast. Það er bara að byrja!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við