Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

KIA gullhringurinn fór fram í gær – Met slegin í frábærri keppni

KIA gullhringurinn fór fram í gær – Met slegin í frábærri keppni

Nýir sig­ur­veg­arar voru krýndir í KIA Gull­hringnum í gær á Laug­ar­vatni og braut­ar­metið féll í karla­flokki. Sam Gateman frá Hollandi, keppn­isliði Sensa, sigr­aði á tím­anum 02:28:51 sem er 10 mín­útum betri tími en fyrra braut­ar­met. Elín Björg Björns­dóttir, keppn­isliði Airport Direct, sigr­aði í kvenna­flokki á tím­anum 02:53:35. Það var Birkir Snær Ingvason sem átti fyrra braut­ar­met, en hann setti það í fyrra.

Sig­ur­veg­arar í karla­flokki

Þá vakti sér­staka athygli að norskur afreks­hjól­reiða­maður Ole Bjorn Smi­s­et­hjell, sem var á ferða­lagi um Ísland þessa vik­una ákvað að skella sér í Silf­ur­hring­inn á fjalla­hjóli og gerði sér lítið fyrir og sigr­aði flokk­inn hjá körlum. Ekki er hægt að miða tím­ana þar við fyrri ár þar sem keppt var í annarri braut en síð­ustu átta ár. Margrét Páls­dóttir, keppn­isliði Hálf­systra, sigr­aði kvenna­flokk­inn.

Sig­ur­veg­arar í kvenna­flokki

Þá voru það Guð­mundur Arason Öfjörð og Þóra Katrín Gunn­ars­dóttir sem sigr­uðu Brons hring­inn í ár og þá var í fyrsta sinn keppt í flokki raf­magns­hjóla, en sig­ur­veg­arar þar voru Freyr Hákon­ar­son og Helga Guðrún Elvars­dóttir og ljóst að sá hópur mun fara vax­andi kom­andi ár.

Mótið var vel heppnað í alla staði að mati skipu­leggj­enda en keppnin hefur verið haldin síðan 2012. Það viðr­aði vel á kepp­endur, milt veður og lít­ill ef nokkur vindur. Mikið var um vega­fram­kvæmdir á svæð­inu og ein­hverjar þeirra ekki komnar eins langt og gert var ráð fyrir í vetur þegar dag­setn­ing keppn­innar var ákveðin. Breyta þurfti leið­inni í Silfur hringnum þetta árið með sól­ar­hrings fyr­ir­vara í sam­ráði við þjóð­garðs­vörð Þing­valla, Vega­gerð­ina, lög­reglu og við­bragðs­að­ila og er þeim öllum þakkað fyrir frá­bært sam­starf við keppn­ina.

„Við viljum þakka veg­far­endum í upp­sveit­unum fyrir sýndan vel­vilja og þol­in­mæði. Laug­vetn­ingum og rekst­ar­að­ilum hér fyrir frá­bærar mót­tökur enn eitt árið og öllum sjálf­boða­lið­unum sem gera þetta að veru­leika með okkur,“ segir Þórir Erlings mót­stjóri.

„Kepp­endur hjól­uðu braut­ina af yfir­veg­uðu öryggi en um leið af fullum krafti og það var tekið eftir því af dóm­urum og braut­ar­gæslu­fólki hversu mik­inn keppn­is­þroska kepp­endur sýndu. Það er auð­vitað mik­ill þáttur í öryggi kepp­enda, rýmið og til­lit­semi sem þeir sýna hver öðrum.”

Stuttu fyrir start

Keppn­is­brag­ur­inn og veðrið gerðu þetta að ein­stökum degi á Laug­ar­vatni. „Við áttum svo inni­lega fal­legan dag hér í gær og það voru ekki bara sig­ur­veg­ar­arnir sem áttu frá­bæran dag heldur líka allir þeir sem unnu sína per­sónu­legu sigra. Ungir og aldnir kepp­endur af öllum styrk­leika­flokkum hjól­uðu hérna skæl­bros­andi í mark og nutu dags­ins alveg í botn. Svo bussluðu allir í Fontana og við grill­uðum ofan í alla og við áttum bara alveg frá­bæran dag og kvöld hérna,“ segir Þórir, en mótið er orðið eins­konar fjöl­skyldu­skemmtun í hugum hjól­reiða­fólks.

Það er Askja, KIA á Íslandi sem er aðal­kostandi keppn­innar en það sam­starf gerir keppn­ina mögu­lega á hverju ári. „Það er ómet­an­legt að hafa svona sam­starfs­að­ila með sér í svona verk­efni og við erum þeim ein­læg­lega þakk­lát.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina