Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Björgvin Ingi hleypur maraþon fyrir Guggu æskuvinkonu sína: Öryrki eftir fólskulega líkamsárás

Björgvin Ingi hleypur maraþon fyrir Guggu æskuvinkonu sína: Öryrki eftir fólskulega líkamsárás

Laug­ar­dag­inn 2. októ­ber 1993 breytt­ist líf Guðrúnar Jónu Jóns­dóttur til fram­búðar þegar hún varð fyrir árás þriggja ung­lings­stúlkna í miðbæ Reykja­víkur. Gugga var þá 15 ára gömul, og ger­endur á svip­uðum aldri. Eftir árás­ina hefur Gugga verið í hjóla­stól og þarf hún aðstoð við allar athafnir dag­legs lífs.

Baksíða Morg­un­blaðs­ins 3. októ­ber 1993

Gugga hefur gaman af því að fara á tón­leika, í leik­hús og að ferð­ast. Einn af vinum Guggu er æsku­vinur hennar, Björgvin Ingi Ólafsson, sem fyrir nokkrum árum stofn­aði Ferða­sjóð Guggu. Sjóð­ur­inn og fram­lög í hann gera Guggu kleift að ferð­ast til útlanda. Slík ferð er hvorki ódýr né ein­föld þar sem Gugga þarf tvo aðstoð­ar­menn með sér á ferða­lögum. Með fram­lögum í Ferða­sjóð Guggu hefur henni verið gert kleift að ferð­ast víða.

„Ég hef farið til Chicago í Banda­ríkj­unum á tón­leika með U2, Madonnu í London og til Parísar sem dæmi,“ segir Gugga í sam­tali við Mannlíf aðspurð um til hvaða staða hún hefur ferð­ast. Í ár ætlar hún að ferð­ast inn­an­lands og fara á Flúðir.

Gull af manni

Í ár ætlar Björgvin Ingi að hlaupa heilt mara­þon til styrktar Ferða­sjóði Guggu.

„Ég held það hafi verið Erla Björg bekkj­ar­systir okkar og bad­mint­on­hetja sem hafi fyrst komið með hug­mynd­ina um að taka þátt í Hlaupa­styrk. Þá var ég búsettur í Ameríku,“ segir Björgvin Ingi, en Gugga einmitt heim­sótti hann þegar hún fór á tón­leik­ana með U2.

„Við Gugga vorum saman í Breið­holts­skóla nán­ast alla grunn­skóla­göng­una, bara rosa góðir vinir og vorum til dæmis saman í nem­enda­ráði í 10. bekk og bröll­uðum alls konar. Við vorum saman í skóla­leik­ritum og ýmsum mis­heppn­uðum stutt­myndum og fleira skemmti­legu,“ segir Björgvin Ingi.

Síðan hann flutti aftur heim til Íslands hefur hann hlaupið mörgum sinnum fyrir Guggu.

„Fleiri hafa gert það, nokkrir vinir okkar eins og Arna Torfa­dóttir, sonur minn og nokkrir góðir til við­bótar eins og Andrés Jónsson almanna­teng­ill, svo ég nefni nokkra. Núna er ég sá eini sem er búinn að skrá mig á Hlaupa­styrkur.is til að hlaupa fyrir Guggu, en við von­umst til að ein­hverjir úr Facebook-grúbb­unni: Ferða­sjóður Guggu bæt­ist við. Svo mega aðrir líka hlaupa fyrir og með okkur sem það vilja,“ segir Björgvin Ingi.

Björgvin Ingi er eins og er í 2. sæti ein­stak­linga á Hlaupa­styrkur.is.

„Bjöggi er bara gull af manni, ómet­an­legt,“ segir Gugga aðspurð um hvernig henni finn­ist fram­tak og hlaup æsku­vinar hennar.

Björgvin Ingi á hlaupum.
Gugga og móðir hennar, Barbara Ármanns­dóttir, voru í við­tali í helg­ar­blaði Frétta­tím­ans 7. – 9. des­em­ber 2012. Mynd / skjá­skot tima­rit.is

Lesa má við­talið við mæðgurnar hér. 

Bæði maraþon gömul þegar hlaupið fer fram

Hlaupið í ár verður nokkuð sér­stakt þar sem Gugga og Björgvin Ingi verða bæði um mara­þons gömul þegar Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka fer fram. Þau eru bæði fædd árið 1978, 7. og 9. júní, og heilt mara­þon er 42,2 km.

„Það er eig­in­lega ekki hægt að gera annað en að hlaupa heilt mara­þon fyrir Guggu í ár,“ segir Björgvin Ingi kátur.

„Ég hef sett mér það metn­að­ar­fulla mark­mið að ná að safna einni milljón fyrir Guggu með mara­þon­hlaupi. Til að ná því þarf ég ekki bara að bögga alla vini og kunn­ingja heldur miklu fleiri,“ segir Björgvin Ingi. „Við værum afskap­lega þakk­lát ef þeir sem lesa þetta myndu leggja söfn­un­inni lið.“

Umfjöllun um árás­ina í Morg­un­blað­inu 5. októ­ber 1993

Eins og áður kom fram varð Gugga fyrir fólsku­legri árás þegar hún var ung­lingur. Mikið var fjallað um árás­ina í fréttum á þeim tíma, og vakti málið mik­inn óhug meðal almenn­ings. Þrátt fyrir að árin líði virð­ast árásir ung­linga á jafn­aldra sína og/eða yngri börn enn eiga sér stað, með sama eða svip­uðum hætti og árásin á Guggu.

„Þetta er bara hræði­legt,“ segir Gugga aðspurð um hvernig henni líði að lesa fréttir eða heyra af slíkum atvikum. „Þau vita ekk­ert hvað getur gerst.“

„Ég vil hvetja þá sem tök hafa á að hlaupa fyrir Guggu eða styrkja okkur með fram­lagi, svo hún geti áfram ferð­ast og skapað skemmti­legar og góðar minn­ingar,“ segir Björgvin Ingi.

Þeir sem vilja styrkja Ferða­sjóð Guggu geta lagt inn á:
Reikn­ingur: 515-14-405952
Kennitala 520511-0910

Björgvin Ingi er eins og er í 2. sæti ein­stak­linga á Hlaupa­styrkur.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við