Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sólveig Anna vill sameinaða baráttu: „Enginn glæpur er stærri en sá er kona í verkalýðsbaráttu fremur“

Sólveig Anna vill sameinaða baráttu: „Enginn glæpur er stærri en sá er kona í verkalýðsbaráttu fremur“
| Mynd: / Hallur Karlsson

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, tjáir sig um mál Icelandair, Samtaka atvinnu­lífs­ins og Flug­freyju­fé­lags Íslands í færslu á Facebook-síðu sinni. Segir hún að allir hljóti að vera þungt hugsi yfir mál­inu og „þá sam­stilltu árás á flug­freyjur sem við höfum orðið vitni að.“

„Vinnandi fólk á Íslandi hefur und­an­farna daga og vikur enn á ný fengið inn­sýn í hug­ar­heim með­lima auð og valda­stétt­ar­innar, sem telja sig eig­endur íslensks sam­fé­lags. Við hljótum öll að vera þungt hugsi eftir þá sam­stilltu árás á flug­freyjur sem við höfum orðið vitni að. Ljóst er að stétta­á­tökin fara harðn­andi. Við verðum bæði að berj­ast af fullum krafti fyrir því að auð­valdið fari hér ekki sínu fram eins og því sýn­ist, og einnig verja með kjafti og klóm okkar áunnu rétt­indi. Við verðum að berj­ast sam­einuð fyrir efna­hags­legu lýð­ræði og rétt­læti á Íslandi.“

„Svona er ástandið í kvennaparadísinni“

Sólveig Anna segir IcelandAir og Samtök atvinnu­lífs­ins hafa gengið fram af ótrú­legri hörku gagn­vart FFÍ og með­limi félags­ins hafa þurft að þola kúgun og ógn­ar­stjórnun milljón krónu-mann­anna.

„Kvenna­stétt sem notar hjarta, hendur og heila við sína vinnu hefur þurft að þola það að vera sagt upp störfum, kastað í ruslið, vegna þess að með­limir hennar vildu ekki hlýða skip­unum frá þeim sem telja sig eig­endur alls á þess­ari eyju,“ segir Sólveig Anna.

„Svona er ástandið í kvennaparadís­inni; vinn­andi konur eiga von á því að vera útmál­aðar sem galnar og haldnar skemmd­ar­fýsn, eiga von á því að vera hæddar og smán­aðar fyrir það eitt að reyna að standa vörð um rétt­indi sín og berj­ast fyrir eðli­legum launum fyrir sína unnu vinnu. Í þeirri atlögu taka þátt ríkir og valda­miklir karlar, sem svífast nákvæm­lega einskis. Ljóst er að kven-vinnu­aflið verður að standa saman nú sem aldrei fyrr.“

Skulda afsökunarbeiðni vegna eftirminnilegrar hörku

Sólveit Anna segir full­trúa IcelandAir og tals­menn Samtaka atvinnu­lífs­ins skulda frug­freyjum afsök­un­ar­beiðni, harka þeirra sé einnig til hábor­innar skammar og verði lengi í minnum höfð.

„Í aðför­inni að FFÍ réð­ust IcelandAir og SA gegn rétti vinn­andi fólks á Íslandi til að bind­ast sam­tökum í stétt­ar­fé­lagi og semja sam­eig­in­lega um kjör sín. Harkan sem sýnd var af þessum aðilum er til hábor­innar skammar og verður lengi í minnum höfð. Full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins og tals­menn SA skulda flug­freyjum afsök­un­ar­beiðni vegna fram­komu sinnar.“

Tekur Sólveig Anna að með fram­komu sinni hafi Samtök atvinnu­lífs­ins lýst yfir stríði við grunn­rétt vinn­andi fólks, samn­ings­rétt þeirra, sem kostað hafa fórnir, verk­falls­að­gerðir og hörð átök yfir margra ára­tuga tíma­bil.

„Þessi réttur er for­senda þeirra kjara og lífskil­yrða sem náðst hafa fyrir almenn­ing á Íslandi. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa nú lýst yfir stríði við þennan grunn­rétt. Fram hjá því er ekki hægt að líta.“

„Samn­ings­réttur vinn­andi fólks á Íslandi er horn­steinn vinnu­mark­að­ar­ins. Við sem seljum aðgang að vinnu­afl­inu okkar treystum fyrst og fremst á sam­taka­mátt okkar. Aðeins með því að bind­ast sam­tökum eigum við mögu­leika á því að standa gegn því æðis­gengna valdi sem auð­ur­inn færir eig­endum atvinnu­tækj­anna og fjár­magns­ins. Það er stað­reynd sem við hljótum öll að skilja og við­ur­kenna. Að vinna þann rétt kost­aði stór­kost­legar fórnir fyrir íslenskt verka­fólk, meðal ann­ars verk­falls­að­gerðir og hörð átök við atvinnu­rek­endur yfir margra ára­tuga tíma­bil. Þessi réttur er for­senda þeirra kjara og lífskil­yrða sem náðst hafa fyrir almenn­ing á Íslandi. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa nú lýst yfir stríði við þennan grunn­rétt. Fram hjá því er ekki hægt að líta.“

„Auðvaldið á ekki eftirlaunasjóði okkar“

Sólveig Anna tjáir sig einnig um hugs­an­lega þátt­töku líf­eyr­is­sjóð­anna í áform­uðu hluta­fjár­út­boði IcelandAir. Segir hún vinni­andi fólk ekki munu sam­þykkja að eft­ir­launa­sjóðir þess verði nýttir til fjár­mögn­unar fyr­ir­fækja sem ráð­ast að grunn­rétt­indum vinnu­aflsins.

„Þrátt fyrir að tals­menn stór-kap­ít­als­ins vilji láta sem svo að lög­mál auð­söfn­unnar og arð­ráns séu nátt­úru­lög­mál er það auð­vitað ekki rétt. Auð­valdið á ekki vinn­andi fólk og auð­valdið á ekki eft­ir­launa­sjóði okkar. Það er afskap­lega óheppi­legur mis­skiln­ingur, svo vægt sé tekið til orða, að ein­hver skuli láta sér detta það til hugar,“ segir Sólveig Anna.

„Stað­reyndin er sú að vinn­andi fólk á Íslandi getur ekki og mun ekki sam­þykkja að eft­ir­launa­sjóðir þess verði nýttir til að fjár­magna árásir á grunn­rétt­indi vinnu­aflsins eða til fjár­mögn­unar á fyr­ir­tækjum sem standa í far­ar­broddi slíkra árása. Að for­ystu­fólk í verka­lýðs­fé­lögum bendi á þessa aug­ljósu stað­reynd er full­kom­lega sjálf­sagt og eðli­legt. Það er ein­hvers­konar úrkynjun að skilja það ekki,“ segir Sólveig Anna og segir að for­maður í verka­lýðs­fé­lagi eigi að sjálf­sögðu að lýsa yfir algjörri and­stöðu við að sjóðir launa­fólks séu not­aðir til að gefa auð­vald­inu frítt spil til að inn­leiða nýja og ógn­væn­lega tíma á Íslandi.

„Það er ekk­ert annað en hans eða hennar sið­ferði­lega og póli­tíska ábyrgð. Við sem erum í for­svari fyrir sam­tök vinn­andi fólks munum ekki sætta okkur við að fram­ferði sem stríðir gegn okkar grund­vall­ar­sjón­ar­miðum nái fram að ganga. Þeir þögg­un­ar­til­burðir sem birst hafa okkur und­an­farið og beinst hafa sér­stak­lega að for­manni VR eru ekk­ert annað en árás á tján­ing­ar­frelsi og heil­brigða sam­fé­lags­um­ræðu í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Emb­ætt­is­menn hins opin­bera og aðrir með­limir borg­ara­stétt­ar­innar ættu að hugsa sinn gang og velta því fyrir sér hvort ekki sé kom­inn tími til að end­ur­skoða hug­myndir þær er náð hafa að festa svo ræki­lega rætur, um að hags­munir og vilji auð­stétt­anna séu það sem öll skuli við­ur­kenna og til­biðja, sama hvaða afleið­ingar það hafi,“ segir Sólveig Anna.

Hún bætir við að hún telji það móðgun við sig og aðra með­limi stéttar verka og lág­launa­fólks „að þurfa að hlusta á það úr fíla­beinsturnum hinna hátt­settu að ekki megi berj­ast gegn því að líf­eyr­is­sjóðir okkar séu nýttir í að láta óra auð­valds­ins ræt­ast. Hvað heldur fólk eig­in­lega að það sé?“

Sólveig Anna endar orð sín á því að hún vori að flug­freyjur séu sáttar við nýund­ir­rit­aðan samn­ing, sem skrifað var undir nú um helg­ina og verður kynntur félags­mönnum til sam­þykktar.

„Þær hafa þurft að ganga í gegnum ömur­lega atburða­rás. En þær hafa sýnt fádæma hug­rekki, þor og þol. Ég þekki hvernig það er að lifa við árásir og skít­kast fyrir það að vilja berj­ast fyrir hags­munum vinnu­aflsins. Það getur tekið á, enda ekk­ert annað en and­legt ofbeldi.“

„Það virð­ist því miður vera þannig á Íslandi í kreðsum þeirra sem ráða í krafti fjár­magns að eng­inn glæpur er stærri en sá er kona í verka­lýðs­bar­áttu fremur. Það er ógeðs­legt að verða vitni að því. Ég vona af öllu hjarta að við getum staðið saman í því sem koma skal. Aðeins með því munum við geta tryggt að hags­munir almenn­ings verði ekki und­ir­seldir órum, frekju og fauta­skap auð­stétt­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina