Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segir lausnina í deilum Icelandair og flugfreyja vera eitur í beinum aðgerðarsinna

Segir lausnina í deilum Icelandair og flugfreyja vera eitur í beinum aðgerðarsinna
Björn virð­ist harður bóka­gagn­rýn­andi.

Björn Bjarna­son fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður lætur verka­lýðs­hreyf­ing­una heyra það. Segir að „jað­ar­settu verka­lýðs­rek­end­urnir sem vildu níð­ast á Icelandair með fé líf­eyr­is­sjóðs­eig­enda“ í kjara­deilu Icelandair og Flug­freyju­fé­lags Íslands hljóti að sæta rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

„Öfga­fullum and­stæð­ingum Icelandair verður tíð­rætt um „afleik“ Icelandair. Hann leiddi þó til nið­ur­stöðu og lausnar sem er eitur í beinum aðgerð­ar­sinn­anna,“ skrifar Björn Bjarna­son fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður meðal ann­ars í grein sem hann deilir á síðu sinni. Fyr­ir­sögnin er Óttinn við fjár­mála­eft­ir­litið.

Þar segir Björn meðal ann­ars að jað­ar­a­settir stjórn­endur ASÍ, Eflingar, VR og verka­lýðs­fé­lags­ins á Akranesi hafi farið ham­förum í mál­inu og hótað í nafni líf­eyr­is­sjóð­anna að gengið yrði að Icelandair dauðu. Að baki boð­skap þeirra hafi ómað „hat­ursá­róður sjálf­skip­aðs hug­mynda­fræð­ings sós­í­alista, Gunnars Smára Egils­sonar“. Annar sós­í­alisti, Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hafi orðið sér mest til skammar í mál­inu með ummælum sínum um Láru V. Júl­í­us­dóttur lög­fræð­ing. Þar hafi enn sann­ast að Sólveig Anna þoli ekki „að með skýrum rökum sé brugð­ist við öfgum hennar“. Þá segir Björn skrif Viðars Þor­steins­sonar, fram­kvæmda­stjórar Eflingar, um kjara­deil­una bein­línis vera níð um Icelandair.

„Þegar vakið var máls á því laug­ar­dag­inn 18. júlí að fjár­mála­eft­ir­litið ætti að hafa auga með beit­ingu líf­eyr­is­sjóð­anna, sett­ist Viðar Þor­steins­son við tölv­una og skrif­aði á Facebook:
„Verk­falls­að­gerðir og dóms­mál í Félags­dómi munu skýr­ast en vísar afleið­ingar af þessum afleik nú þegar eru þær að IcelandAir er ekki aðeins óvin­sælasta fyr­ir­tæki á land­inu heldur einnig það óálit­leg­asta fyrir inn­lenda fjár­festa, sér­stak­lega þá sem bundnir eru ein­hvers konar sam­fé­lags­á­byrgð. Sem er óheppi­leg staða því fyr­ir­tækið var á bið­ils­buxum gagn­vart fjár­fest­ingu frá eft­ir­launa­sjóðum verka­fólks.
Fram­kvæmda­stjór­inn [Halldór Benjamín Þor­bergs­son hjá SA] virð­ist nú mjög upp­tek­inn af því að hylma yfir sóða­skap­inn og mis­tökin, og kallar til Fjár­mála­eft­ir­litið í von um að það þaggi niður í félags­lega kjörnum leið­togum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og mál­efna­legri gagn­rýni þeirra.“

„Jað­ar­settu verka­lýðs­rek­end­urnir sem vildu níð­ast á Icelandair með fé líf­eyr­is­sjóðs­eig­enda hljóta að sæta rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins.“

Björn segir að fróð­legt verði að sjá hvernig Viðari muni ganga í þeirri rit­skoð­un­ar­her­ferð, en spyr hvort það fari ekki að verða spurn­ing um að menn líti sér nær. „Þetta níð um Icelandair er greini­lega skrifað áður en Icelandair og FFÍ gerðu kjara­samn­ing sinn. Viðar gengur að því sem vísu að Icelandair verði stefnt fyrir Félags­dóm og þykir ekk­ert sjálf­sagð­ara. Hann umturn­ast hins vegar þegar vikið er að því að fjár­mála­eft­ir­litið sinni skyldum sínum gagn­vart verka­lýðs­rek­endum og sama gerir Vil­hjálmur Birg­is­son á Facebook-síðu sinni.“

Björn telur hlá­legt að þessir menn telji sig sýna „sam­fé­lags­á­byrgð“ með fram­göngu sinni. „Jað­ar­settu verka­lýðs­rek­end­urnir sem vildu níð­ast á Icelandair með fé líf­eyr­is­sjóðs­eig­enda hljóta að sæta rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina