Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Steinunn Ólína minnist Stefáns Karls: „Ekki líður sá dagur að ég hugsi ekki til hans“

Steinunn Ólína minnist Stefáns Karls: „Ekki líður sá dagur að ég hugsi ekki til hans“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

„Það eru tæp tvö ár síðan hann dó. Ekki líður sá dagur að ég hugsi ekki til hans, oftar en ekki er það vegna ein­hvers hvers­dags­legs sem ég veit að hann hefði fundið ástæðu til að snúa upp í grenj­andi fyndið grín­at­riði,“ skrifar Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona og rit­stjóri í pistli á vef sínum, Kvenna­blað­inu. Þar minn­ist Steinunn eig­in­manns­ins Stefáns Karls Stef­áns­sonar leik­ara, sem hefði orðið 45 ára í dag, væri hann á lífi, en Stefán lést árið 2018, 43 ára að aldri eftir tveggja ára bar­áttu við ill­vígt gall­ganga­krabba­mein.

Segir Steinunn Ólína Stefán Karl hafa haft þann fágæta eig­in­leika að geta vaknað hvern dag eins og honum hefði verið gefið nýtt tæki­færi. „Ekki skyldi dvelja and­ar­tak við hið liðna þótt illa gengi eða að hann hefði hlaupið eitt­hvað á sig. Stundum stapp­aði þessi eig­in­leiki hans nærri ábyrgð­ar­leysi,“ skrifar hún, „en ég veit að nákvæm­lega þessi hæfi­leiki til að hugsa alltaf fram á við og berja sig ekki niður fyrir mis­tök eða fljót­færni var líka hans gæfa. Hann áork­aði svo miklu á stuttum tíma, eilíf­lega áhuga­samur um að skapa eitt­hvað nýtt og spenn­andi með þessar góðu gáfur og ein­stak­lega frum­legu og frjóu hugsun í fartesk­inu.“

„Að elska og vera elsk­aður er það eina sem skiptir máli. Allt annað er drasl.“

Segist henni verða þungt fyrir brjóst­inu þegar hún um bar­áttu Stefáns við gall­ganga­krabbann sem dregur nær alla sem fá þann dóm til dauða, henni hrylli við þeirri lík­am­legu þján­ingu sem hann þurfti að þola í veik­indum sínum. „Þar stendur upp úr með­líðan með honum og hans óupp­fylltu draumum fremur en sjálfs­vor­kunn. Ég hef ekk­ert leyfi til að vor­kenna sjálfri mér, ég fékk að lifa áfram og ég hef fyrir börnum að sjá.

Mín sátt nú, ef það er hægt að kalla það sátt, felst held ég í því að ég veit að ég lagði mig fram í ómögu­legum aðstæðum, ég gerði það sem ég gat til að vera honum góð á erf­iðum stundum, lét allt eftir honum og lagði nán­ast allt annað til hliðar. Það gerði ég ekki bara hans vegna heldur ekki síður mín vegna. Brjóst­vitið sagði mér að ég gæti ekki lifað áfram með sjálfri mér og börn­unum okkar og orðið framar til nokk­urs gagns ef ég gerði ekki veik­indi hans og bar­áttu að algjöru aðal­at­riði.“

Steinunn Ólína kveðst ekki sjá eftir því, engu hafi hún áorkað um dag­anna sem er lær­dóms­rík­ara og gjöf­ulla. „Og ef ein­hver velk­ist í vafa hvers vegna við yfir­leitt fæð­umst þá er svarið: Við erum hér til að vera eins góð og við getum við þá sem þurfa á okkur að halda. Ég hef sagt þetta áður. Að elska og vera elsk­aður er það eina sem skiptir máli. Allt annað er drasl.“

Hvetur hún fólk til að fá sér súkkulaði­köku. Í til­efni af fæð­ing­ar­degi Stefáns ætli fjöl­skyldan að baka „Betty Fucker“ súkkulaði­köku sem hún geti ekki gert eins vel og hann þrátt fyrir að fara eftir skot­heldum leið­bein­ingum á pakk­anum. „Hún verður bökuð og við fáum okkur sneið og drekkum kalda mjólk með.“

Hægt er að lesa pistil­inn í heild sinni á vef Kvenna­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina