Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ragnar Þór fer yfir stöðuna með lögfræðingum

Ragnar Þór fer yfir stöðuna með lögfræðingum
Ragnar Þór Ing­ólfs­son

Formaður VR vill ekki bregð­ast við kröfu fram­­kvæmda­­stjóra Sam­­taka at­vinnu­lífs­ins, SA, og for­­stöðu­­manns sam­­keppnis­hæfni­s­viðs SA, um að draga full­yrð­ingar sínar til baka. Hann seg­ist vera að fara yfir stöð­una með lög­fræð­ingum.

„Lög­menn fé­lags­ins og mínu per­sónu­legu lög­menn eru að fara yfir stöð­una,“ segir Ragnar Þór Ingólfs­­son, for­maður VR, í sam­tali við Frétta­blaðið, vegna yfir­lýs­ingar Hall­dórs Benja­míns Þor­bergs­sonar, fram­­kvæmda­­stjóra Sam­­taka at­vinnu­lífs­ins (SA), og Davíðs Þor­láks­sonar for­­stöðu­­manns sam­­keppnis­hæfni­s­viðs SA.

Halldór og Davíð sendu frá sér yfir­lýs­ingu í gær, sem birt­ist á heima­síða SA, þar sem þeir segja ásak­an­ir Ragnars á hend­ur sér ósann­ar. Ragnar hélt því fram í við­tali við Frétta­blaðið að margt benti til að þeir hafi beitt sér fyrir því að líf­eyr­is­sjóð­irnir fjár­mögn­uðu kaup Icelandair á fimm­tíu pró­sent hlut í Lind­ar­vatni, eig­anda Lands­símareits­ins. Í yfir­lýs­ing­unni rekja þeir Halldór og Davíð í nokkrum liðum af hverju ekk­ert af því sem Ragnar heldur fram fær stað­ist. Benda þeir meðal ann­ars á þeir hafi ekki verið komnir til starfa hjá SA þegar um­rædd endur­fjár­mögnun átti sér stað. Þeir störf­uðu þá báðir hjá Icelandair group.

„Það var því hvorki vilji, til­efni eða tæki­færi til að beita einn né neinn þrýst­ingi af okkar hálfu vegna fjár­mögn­unar fram­kvæmd­anna á Land­símareitnum. Öllum á­sök­unum um slíkt er al­ger­lega hafnað,“ segir í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu þeirra.

Beina Halldór og Davíð þeim til­mælum til Ragnars Þórs að hann dragi fyrr­nefndar full­yrð­ingar sínar til baka og biðji um leið alla hlut­að­eig­andi afsök­unar á þeim. „Ella er óhjá­kvæmi­legt að þau sem hafa orðið fyrir órök­studdum dylgjum hans íhugi rétt­ar­stöðu sína.“ Það geti ein­fald­lega ekki annað verið að hann geri það því það sé skýrt brot á lands­lögum að ásaka sak­laust fólk um svo alvar­lega hátt­semi sem hann hafi nú gert.

Í Frétta­blað­inu er Ragnar Þór nú spurður hvort ætli að verða við beiðni þeirra og draga um­mæli sín til baka. „Ég get ekki tjáð mig um þessa frétt öðru­vísi en þannig að við lög­menn okkar erum að fara yfir stöð­una,“ svarar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina