Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Steinunn heldur útgáfuhóf

Steinunn heldur útgáfuhóf
Steinunn Sig­urð­ar­dóttir

Á fimmtu­dag verður Hjarta­staður, skáld­saga Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur end­ur­út­gefin. Af því til­efni verður haldið útgáfu­hóf í Bóka­kaffi á Selfossi klukkan 19.30 sama dag.

Hjarta­staður er ein þekktasta skáld­saga Stein­unnar og hefur verið ófá­an­leg lengi. Guðni Elísson ritar eft­ir­mála. Steinunn hlaut Íslensku bók­mennta­verð­launin árið 1995 fyrir bók­ina og jafn­framt var bókin til­nefnd til Evrópsku Aristeion Bók­mennta­verð­laun­anna og til Bók­menta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs.

Fyrir utan Íslensku Bók­mennta­verð­launum hefur Steinunn hlotið Verðlaun Jónasar Hall­gríms­sonar, Ljóða­verð­laun Guð­mundar Böðv­ars­sonar, Bók­sala­verð­launin og Fjöru­verð­launin.

Steinunn mun lesa upp úr bók­inni í bók­inni, auk þess mun Harpa Rún kynna hana og Kristján B. Jónasson, bóka­út­gef­andi, flytja erindi um bók­ina.

Bóka­kaffi er á Aust­ur­vegi 22, Selfossi.

Bókin Hjarta­staður

Hjarta­staður er mögnuð ferða­saga þar sem leiðin liggur jafnt um stór­brotna nátt­úru við þjóð­veg­inn og hrjóstrugt lands­lag hug­ans.

Harpa Eir flýr úr borg­inni til að bjarga dóttur sinni úr hæpnum félags­skap. Með mæðg­unum í för er vin­kona Hörpu sem ekur bílnum og stefnan er sett á ætt­ar­óð­alið fyrir austan. En ferðin snýst brátt upp í fleira en að bjarga barn­inu, því óaf­vit­andi er Harpa Eir á leið til fundar við sann­leik­ann um sjálfa sig. Bókin er nú end­ur­út­gefin við þær sér­stöku aðstæður, að Íslend­ingar hafa í bili end­ur­heimt landið sitt úr „greipum“ erlendra ferða­manna. En bókin kom út fáeinum árum áður en ferða­manna­bylgjan reið yfir, og eru vega- og nátt­úru­lýs­ingar í sam­ræmi við frið­sæld­ina sem var glötuð og ríkir nú aftur.

Steinunn hóf feril sinn sem ljóð­skáld, en einnig hefur hún sent frá sér tólf skáld­sögur. Hin fyrsta var Tíma­þjóf­ur­inn, sem er ein umræddasta skáld­saga síð­ari ára­tuga á Íslandi. Bókin naut einnig hylli fyrir utan land­stein­ana, í Frakk­landi sér­stak­lega, þar sem hún var kvik­mynduð með þar­lendum stjörnum. Meðal ann­arra skáld­sagna Stein­unnar má nefna Sól­skins­hest, Ástina fiskanna, Jökla­leik­húsið, Jójó, og Gæða­konur. Skáld­sögur Stein­unnar hafa um langt ára­bil komið út í þýð­ingum í helstu Evr­ópu­löndum og verið vel tekið. Meðal ljóða­bóka Stein­unnar eru Verksum­merki, Hugástir og Að ljóði munt þú verða. Á síð­asta ári kom út ljóða­bókin Dimmumót, ástar- og sorg­aróður um hverf­andi Vatna­jökul. Hún var til­nefnd til Íslensku Bók­mennta­verð­laun­anna. Steinunn hefur einnig sent frá sér smá­sagna­söfn, barna­bók og leik­verk. Meðal þeirra er sjón­varps­myndin Lík­am­legt sam­band í norð­ur­bænum. Tvær af bókum Stein­unnar eru sann­sögur, um Vigdísi Finn­boga­dóttur, meðan hún gegndi emb­ætti for­seta Íslands, og bókin um Heiðu sauð­fjár­bónda á Ljót­ar­stöðum sem kom út árið 2016. Bók Stein­unnar um Vigdísi Finn­boga­dóttur, Ein á for­seta­vakt, skrifuð meðan hún var í emb­ætti, var end­ur­út­gefin í apríl síð­ast­liðnum í til­efni af nítíu ára afmæli Vigdísar. Auk þess að vera rit­höf­undur gegndi Steinunn starfi Jónasar Hall­gríms­sonar í rit­list við Háskóla Íslands síð­ast­liðið haust. Þar vann hún með meist­ara­nemum að ljóða­gerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina