Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sólveig lætur Björn heyra það: „Aumkunarverð kvenfyrirlitning“

Sólveig lætur Björn heyra það: „Aumkunarverð kvenfyrirlitning“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra. Mynd / Samsett

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar hjólar í Björn Bjarna­son fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og sakar hann um and­legt ofbeldi.

„Það er ein­hver partur af mér orð­inn vanur þessu, reyndar hefur hann dregið aðeins í land, til dæmis með þær ásak­anir að ég hafi kom­ist til valda í Eflingu til að mis­nota sjóð­ina, en þessa strengja­brúðu pæl­ing er mjög lif­andi og mér finnst þetta bara voða­lega leið­in­legt. Ég er nú ekki eitt­hvað við­kvæmt blóm, en mér finnst þetta hrika­lega ómál­efna­legt og rætið og bara sjúk­lega yfir­læt­is­legt hvernig sem á það er litið. Og ef ég tek mig í burtu sem per­sónu þá stendur eftir ein­hver ein­kenni­lega köld sýn á konur,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, um ummæli Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra.

Á föstu­dag birti Björn pistil á heima­síðu sinni undir yfir­skrift­inni Skugga­stjórn ASÍ þar sem hann segir Sólveigu Önnu í raun vera strengja­brúðu tveggja karla, Gunnars Smára Egils­sonar og Viðars Þor­steins­sonar, fram­kvæmda­stjóra Eflingar. Tilefnið skrif­anna er við­tal við Drífu Snædal, for­seta ASÍ, sem birt­ist í DV síð­ast­lið­inn föstu­dag. Með hlið­sjón af því segir Björn orð­rétt að Drífa vilji „knýja fram öfga­full mark­mið í anda Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, sós­í­alist­ans í for­mennsku Eflingar-stétt­ar­fé­lags, strengja­brúðu Viðars Þor­steins­sonar og Gunnars Smára Egils­sonar, höf­uðsmiða Sós­í­alista­flokks Íslands.“ Þar sé skugga­stjórn ASÍ.

Í sam­tali við Mannlíf segir Sólveig Anna að þessi ummæli Björns lýsi kven­fyr­ir­litn­ingu. „Það eru risa­vaxin hug­mynda­fræði­leg póli­tísk átök í gangi í þjóð­fé­lag­inu og af þeim sökum ætti fólk að ríf­ast út fra hug­mynda­fræði­legri sýn. Ég þoli það vel og fagna því og þess þá heldur finnst mér þessi ummæli lýsa ótrú­lega aumk­un­ar­verðri kven­fyr­ir­litn­ingu,“ segir hún.

„Ég ætla ekki að breyt­ast. Það sem ég ætla að gera er að berj­ast fyrir því að kven-hatandi menn­irnir með ljótu orðin og hugs­an­irnar missi völdin sín.“

Í kjöl­far skrifa Björns hefur Sólveig Anna birt færslu á Facebook þar sem hún seg­ist meðal ann­ars hafa hugsað hvað það sé und­ar­legt að þrátt fyrir ævi hennar og fyrri störf skuli hún samt ekki vera neitt nema strengja­brúða í augum sumra manna, gerð út af karl­mönnum.

„Og ég við­ur­kenndi fyrir sjálfri mér að það er partur af mér sem verður dapur þegar þessi orð eru notuð. Einhver konu-partur sem hugsar um konur sem hafa lifað, gert, sagt, hugsað en samt aldrei fengið að verða neitt annað en „strengja­brúður“ í hugum valda­mik­illa manna. Þessi konu-partur veit og við­ur­kennir að svona orð­færi er and­legt ofbeldi. Notað til að kúga og þagga. Notað til að særa og lít­il­lækka,“ segir Sólveig Anna á Facebook.

„Ég veit að ég er ekki strengja­brúða eins né neins og ég veit að það er frá­leitt að halda því fram. Ég veit líka að því verður aldrei hætt, skrifar hún en játar að henni sárni að vera kölluð strengja­brúða.

„Ég upp­lifi van­mátt þegar það ger­ist. Mér finnst leið­in­legt að mamma mín sjái og heyri svona tal. Mér finnst leið­in­legt að dóttir mín sjái það og heyri. Og mér finnst það leið­in­legt mín sjálfrar vegna; leið­in­legt vegna þeirrar stelpu sem ég var, ungu konu og nú full­orðnu konu.“

Segist Sólveig Anna hins vegar ekki ætla að bæla niður til­finn­ingar sínar. Til­finn­ingar kvenna hafi verið not­aðar gegn þeim og það hafi verið „verk­efni“ kvenna að „láta“ ekki særa sig.

„Ég tel að það sé partur af þeirri kven-fyr­ir­litn­ingu sem enn grass­erar. Partur af upp­reisn okkar gegn feðra­veld­inu er að leyfa ekki að til­finn­ingar okkar séu not­aðar gegn okkur. Við rísum upp gegn þeirri mis­notkun með því að við­ur­kenna til­finn­ingar okkar fyrir okkur sjálfum, og láta aðra sjá þær og heyra.“

Segir hún kven-fjand­sem­ina leyn­ast víða og bar­áttan gegn henni sé þess vegna háð úti um allt, „líka inn í okkar eigin heilum og hjörtum,“ skrifar hún og seg­ist oft hafa fyr­ir­litið sjálfa sig fyrir að vera „of við­væm“. „En ég er hætt því. Það eru kven­rétt­indi mín að verða leið. Ég ætla ekki að breyt­ast. Það sem ég ætla að gera er að berj­ast fyrir því að kven-hatandi menn­irnir með ljótu orðin og hugs­an­irnar missi völdin sín. Það er bar­átta sem er þess virði að taka þátt í.“

Hægt er að lesa færslu Sól­veigar Önnu í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina