Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bogi sagði ríkisábyrgð fásinnu þegar WOW féll – enn óvissa með eignarhald Play

Þegar WOW var á barmi gjald­þrots sagði Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair í sam­tali við Vísi að erfitt væri að skilja að þeir sem ættu að leggja til áhættu­fjár­magn til WOW ættu ekki að eign­ast það að fullu. Þá sagði Bogi að í raun væri miklu ódýr­ara að stofna bara nýtt flug­fé­lag á grunni þess fallna. 

Bogi sagð­ist við sama til­efni hafa áhyggjur af við­skipta­lík­ani WOW air þar sem Ísland væri mjög dýrt land fyrir fyr­ir­tækja­rekstur og að Kefla­vík­ur­flug­völlur væri einn sá dýr­asti í Evrópu. Skúli Mogensen vildi ekki ræða við Mannlíf um rík­is­á­byrgð til handa Icelandair þegar eftir því var leitað.

Það er aðeins rúmt ár frá þess­ari sögu­legu for­síðu Frétta­blaðs­ins um fall WOW

Tugmilljarða björgunaraðgerð Icelandair í höndum almennings og ríkissjóðs

Nú hafa íslensk stjórn­völd ákveðið að veita Icelandair rík­is­á­byrgð á lána­línu sem nemur allt að 16,5 millj­örðum íslenskra króna. Sé horft til frétta­flutn­ings af mál­inu munu Lands­banki og Íslands­banki ekki skuld­breyta lánum sínum að fjár­hæð um 20 millj­arða króna í hlutafé og sama á við um aðra kröfu­hafa. Á sama tíma leit­ast Icelandair við að fá líf­eyr­is­sjóði til að leggja áhættu­fjár­magn til rekst­urs­ins til að freista þess að bjarga félag­inu frá gjald­þroti. Fjár­mála­stjóri Icelandair sagði nýlega að engar við­ræður væru við kröfu­hafa um skuld­breyt­ingu lána.

Nýlega til­kynnti Icelandair um frestun hluta­fjár­út­boðs fram í sept­em­ber en þá hyggst félagið selja nýja hluti fyrir 20 millj­arða króna á geng­inu 1. Gengi félags­ins við lok mark­aða í dag er 1,10. Komi til umfram­eft­ir­spurnar í hluta­fjár­út­boð­inu getur stærð útboðs­ins stækkað í 23 millj­arða króna.

Sjá nánar: Þjóðin situr uppi með Icelandair. 

Play bíður áttekta

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs fylgj­ast eig­endur og stjórn­endur Play flug­fé­lags­ins vel með stöðu mála og hversu mikið fjár­magn fæst til rekst­ur­ins. Takist Play að kom­ast á loft stendur það frammi fyrir því að keppa við rík­is­styrkt Covid-flug­fé­lag.

Arnar Már Magn­ús­son, hefur lýst því yfir að for­svars­menn hins boð­aða flug­fé­lags hafi nú aðeins dregið and­ann vegna Covid-19 og þeir gætu þess vegna beðið fram á vorið með að hefja flug. Aðal­eig­andi félags­ins, Skúli Skúlason, hefur gefið það upp að rekstur Play kosti á bil­inu 30-50 millj­ónir á mán­uði og félagið heldur áfram að ráða nýtt starfs­fólk þrátt fyrir að hafa enn ekki fengið flug­rekstr­ar­leyfi frá Sam­göngu­stofu eða gert leigu­samn­inga um flug­vélar.

Hverjir eru bakhjarlar Play?

Enn ríkir tals­verð óvissa um hlut­hafa Play og fjár­hags­legan styrk þeirra. Skúli Skúlason fjár­festir kom að rekstri félags­ins í lok síð­asta árs og er í dag skráður eini hlut­hafi félags­ins. Í við­tölum við Mannlíf hefur hann sagt að með honum séu þekktir og óþekktir fjár­festar. Skúli hefur varist allra frek­ari frétta um hlut­hafa félags­ins.

|Vignir Örn Guðnason

„Þessi hópur sem stendur að félag­inu í dag hefur alveg burði til að keyra þetta áfram, hvort sem aðrir bæt­ast svo við í hóp­inn eða ekki. Það eru bæði þekkt nöfn og óþekkt en ég verð að fá að halda smá­vegis dulúð yfir þessu,“ sagði Skúli í sam­tali við Mannlíf.

Líkt og Mannlíf hefur áður greint frá hafa fjár­fest­inga­fé­lögin Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar og Stoðir sýnt áhuga á að koma að fjár­mögnun félags­ins en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs hafa umræddir aðilar enn sem komið er ekki lagt fjár­muni til rekst­urs­ins. Umræddir aðilar hafa ekki gefið neinar skuld­bind­ingar um fjár­hags­legan stuðn­ing við félagið sam­kvæmt sömu heim­ildum.

Í sam­tali við Mannlíf í byrjun sum­ars vildi Júlíus Þor­finn­son, fram­kvæmda­stjóri Stoða, hvorki stað­festa né hafna því að við­ræður við Play flug­fé­lagið hafi átt sér stað um inn­komu fjár­fest­inga­fé­lags­ins á næst­unni. Hið sama var uppi á ten­ingnum þegar Mannlíf sló á þráð­inn til hans í dag. „Við gefum okkur út fyrir að fylgj­ast með því sem er að ger­ast í íslensku við­skipta­lífi. Við erum opnir fyrir öllu því sem er í gangi og svo kom­ast menn að ein­hverri nið­ur­stöðu á ákveðnum tíma­punkti. Við tjáum okkur ekki fyrr en um orðna hluti,“ segir Júlíus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina