Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Mikilvægustu húsgögn heimilisins

Mikilvægustu húsgögn heimilisins

Þekking sem kemur að góðum notum þegar inn­rétta á heim­ilið.

Stólar eru vafa­laust ein mik­il­væg­ustu hús­gögn heim­il­is­ins en þekkt­ustu hönn­uðir og arki­tektar heims hafa margir hverjir hannað stóla eða ein­hvers konar sæti á starfsævi sinni. Þegar velja á stóla fyrir heim­ilið er gott að hafa í huga hvaða þarfir þeir þurfa að upp­fylla. Fag­ur­fræði og nota­gildi þurfa því að tvinn­ast saman. Hug­myndir að baki stóla­hönn­unar geta verið af ýmsum toga og hefur sagan kennt okkur að upp­spretta hug­mynda er ótæm­andi. Hér eru þrír þekktir stólar sem hafa vakið heims­at­hygli.

Maurinn

Maurinn eftir Arne Jacobsen leit fyrst dags­ins ljós árið 1952. Hönnunin þótti nýstár­leg og féll ekki í kramið í fyrstu. Upp­haf­lega voru fætur stóls­ins aðeins þrír en Jacobsen sagði að til­gang­ur­inn hafi verið að gera stól­inn stöðugan á ójöfnu gólfi. Það þótti öðrum hins
vegar erfitt að skilja. Formið minnti á maur í upp­réttri stöðu en þaðan dregur hann nafn sitt. Í heima­landi Jacobsen þótti hönn­unin bæði vera upp­reisn­ar­gjörn og bylt­ing­ar­kennd sem var ekki við­eig­andi inni á dönskum heim­ilum. Stóllinn er fram­leiddur, líkt og fleiri stólar Jacobsen, úr form­beygðum kros­svið og er hann í dag fáan­legur hjá fram­leið­anda bæði með þremur fótum sem og fjórum fyrir þá sem það kjósa heldur. Einnig er hann fáan­legur í ýmsum lit­brigðum og við­ar­teg­undum og svo virð­ist sem hann hafi verið tek­inn í sátt því vin­sældir hans hafa auk­ist gríð­ar­lega á seinni árum.

Chaise Tout Bois

Chaise Tout Bois er eini stóll­inn eftir Jean Prouvé sem er hann­aður úr aðeins einu efni, viði, og er helsta ástæða þess að eftir seinna stríð var málmur af skornum skammti. Hönnuðir þurftu að leita í nærum­hverfi sitt og jókst þá notkun viðar í hús­gagna­smíði. Í Frakk­landi var mikið fram­boð af harð­viði, líkt og eik, á þessum tíma og nýtti Prouvé sér það. Hann kynnti sér vel manns­lík­amann og reikn­aði út að mesta álagið hvíldi á stól­bak­inu þegar setið er. Hann vildi því hanna stól sem var traustur, ekki ein­ungis í notkun heldur einnig í ásýnd. Form hans og efn­is­val mið­ast því við að skapa trausta ímynd. Stóllinn var upp­haf­lega fáan­legur í gegn­heilli eik þar sem setan var gerð úr eik­ar­krossviði en fest­ingar eru einnig úr viði. Litur stóls­ins var hinn nátt­úru­legi eik­ar­tónn. Við­skipta­vinir köll­uðu fljótt eftir því að Prouvé setti á markað fleiri útgáfur og stuttu síðar kom stóll­inn á markað í svart­bæs­aðri eik. Í dag er stóll­inn enn fáan­legur í sinni upp­runa­legu mynd.

Wishbone stóllinn

Þessi stóll er orð­inn að vöru­merki danska fram­leið­and­ans Carl Hansen & Søn en hann var hann­aður af Hans J. Wegner árið 1949 og hefur verið í stöðugri fram­leiðslu frá árinu 1950. Wegner hann­aði yfir 500 stóla á starfsævi sinni en Wishbonestóllinn er sá allra þekkt­asti. Hann hefur einnig gengið undir nafn­inu Y-stóll­inn sem er vísun í form stól­baks­ins. Sagt er að Wegner hafi sótt inn­blástur að hönn­un­inni til Ming-hér­aðs í Kína þar sem aldagamlar hand­verks­hefðir voru í hávegum hafðar og áhersla lögð á að efni­við­ur­inn fengi að halda sínu nátt­úru­lega útliti í ein­földum formum. Stólinn er gerður úr gegn­heilum við og er setan hand­vafin. Stólinn er tákn­mynd fal­legs hand­verks og er útlit hans bæði fágað og tíma­laust.

Myndir / Frá fram­leið­endum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni