Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Nauðgað á unglingsárum, missti fimm vikna dóttur og dæmd úr leik með MS innan við þrítugt – María segir sögu sína

Nauðgað á unglingsárum, missti fimm vikna dóttur og dæmd úr leik með MS innan við þrítugt – María segir sögu sína

María Pét­urs­dóttur lista­kona seg­ist hafa verið dæmd úr leik 28 ára gömul þegar hún greind­ist með MS-sjúk­dóm­inn. Er hún var aðeins 14 ára gömul varð hún fyrir hrotta­fullu ofbeldi þegar ungur maður réðst á hana og kom fram vilja sínum. Nauðg­unin var áfall sem með tím­anum braut niður heilsu hennar. 

María segir sögu sína á Facebook-síð­unni Við erum hér líka, huldu­fólks­sögur úr nútím­anum, en það eru hjónin Alda Lóa Leifs­dóttir og Gunnar Smári Egilsson sem skrifa þar sam­tíma­sögur öryrkja á Íslandi.

Lista­konan segir lífið sífellt hafa brugðið fyrir sig fæti en hún hafi ávallt reynt að ögra því á móti. Dæmi um slíkt er þegar MS-sjúk­dóm­ur­inn lagð­ist á fingur hennar fór María að læra á píanó. „Ein teg­undin af MS kasti hjá mér er Tremor svipað og hjá Park­in­son­sjúk­ling sem lýsir sér þannig ef ég stíg á bens­ín­gjöf­ina þá fer fót­ur­inn að skjálfa eða hendin hrist­ist þegar ég lyfti kaffi­boll­anum. Ég ögraði þessum skjálfta og hef lært á píanó í fjögur ár“ segir María.

Vegna veik­ind­anna er María öryrki en hún seg­ist ekki geta lifað ofan í ein­hverri holu vegna þeirra og gera alls ekki neitt. „Engin getur gert ekki neitt“ segir María sem hefur und­an­farið verið að kljást við mátt­minnkun í fót­unum. MS sjúk­dóm­ur­inn brýst fram í köstum og kastið getur tekið tvo mán­uði að ganga til baka.

„Árið 2015 fór ég á lyf sem ég fæ í æð og er gam­alt eitlakrabba­meinslyf. Það var í fyrsta skipti sem að ég fékk lyf sem stopp­aði köstin mín en ég hef ekki fengið sýni­legt kast síðan. En á móti er ég með stöðuga krampa í fótum og þind sem ég heldi niðri með lyfjum sem ég tek inn á þriggja tíma fresti,“ segir María.

Þegar María var 14 ára gömul var henni nauðgað hrotta­lega. „Viðbragð mitt við áfall­inu var að afneita og þegja um atburð­inn. Ég var reið út í allt sem hafði verið mér kært. Ég faldi áfallið í lík­am­anum og reyndi bara að verða full­orðin sem fyrst. Ég forð­að­ist fólkið mitt og leit­aði út fyrir heim­ilið. Ég flutti inn í húsa­töku­hús og gisti alls­konar greni. Ég var auð­vitað þarna með áfallastreitu og mjög lík­lega þung­lynd. Sjálfs­traustið hvarf og ég kunni ekki að lifa fyrir mig sjálfa og beindi athygl­inni frá mér. Engum mátti þykja vænt um mig.“

Ári eftir áfallið fór María að búa með ungum manni og eign­að­ist hún stúlku­barn 17 ára gömul. Það lést vöggu­dauð aðeins fimm vikna gam­alt og segir hún áfallið hafa verið eins og nátt­úru­ham­farir. „Stúlkan okkar hún Vera lif­iði í fimm vikur. Í van­mætti mínum hugg­aði ég fólkið í kringum mig en náði sjálf ekki að syrgja eðli­lega. Ég hefði þurft hjálp strax.“

María útskrif­að­ist frá Mynd­lista- og hand­íða­skóla Íslands, hlaut kennslu­rétt­indi við Háskóla Íslands og stefndi á fram­halds­nám á Englandi. Áður hafði hún unnið sleitu­laust við leik­mynd- og bún­inga­hönnun fyrir mennta­skóla­sýn­ingu og þá dundu ósköpin yfir. „Tveim vikum síðar byrj­aði dofi í tánum sem á nokkrum dögum færð­ist upp eftir lík­am­anum að hálsi þar til að ég fann bók­staf­lega ekki fyrir lík­am­anum mínum lengur né lung­unum og allar fín­hreyf­ingar duttu út, mér leið eins og tækni­brellu. Tauga­lækn­ir­inn rispaði mig mig örygg­is­nælu en ég fann ekk­ert til, ég var greind með MS. Þarna fékk ég raun­veru­legt tauga­á­fall, ég starði bara á hvíta vegg­inn inn á sjúkra­stof­unni. Ég var 28 ára gömul og hafði verið á leið­inni til London í Goldsmith mynd­lista­skól­ann sem ég hafði kom­ist inn í af 15 manna úrtaki frá öllum heim­inum. Ég var búin að kaupa flug­mið­ann en var þess í stað dæmd úr leik.“

María segir skila­boðin í sam­fé­lag­inu til öryrkja vera þau að þeir séu baggi á sam­fé­lag­inu og með því sé öryrkjum haldið niðri. „Sjálf er ég alltaf sak­bitin yfir því að vera á örorku og á dýrum lyfjum. Ég er auð­vitað með stöðugar afkomu áhyggjur og sífelldar heilsu­fars­legar upp­á­komu. Öryrkjum hlotn­ast sjaldn­ast að verða fjár­hags­lega sjálf­stæðir sem er glatað fyrir sjálfs­mynd­ina, með þessar ömur­legu tekjur sem okkur er skammtað eru ég og jafn­vel börnin mín alltaf háð fjöl­skyld­unni og undir vernd­ar­væng þeirra og það jafn­vel út alla þeirra æfi. Börnin mín verða þannig líka börn for­eldra minna. Ég ræð bara ekki heilsu minni en vegna hennar líður mér hins vegar eins og ég ætti að vera með sam­visku­bit og lifa ofan í ein­hverri holu,“ segir María.

María á tvö börn, son­inn Viði og dótt­ur­ina Unu sem fædd­ist árið 2005. „Una var marg­vafin í nafla­streng­inn og alveg blá þegar hún kom út og dó í smá stund í fang­inu á mér. Mamma og Bragi og systir mín voru öll í áfalli á meðan lækn­ir­inn var að hjarta­hnoða barnið með tveim puttum og blása í hana lífi. En á þeirri stundu var ég sall­ar­ó­leg. Ég vissi að hún myndi lifa. Lífið er töff. En ég skynja þráð­inn, þetta sam­hengi í lífi mínu, það sem fyrir mig hefur komið hefur gjarnan verið und­ir­bún­ingur fyrir næstu lífs­reynslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina