Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ætlaði Ísland að fara galdraleið?- Páll prófessor segir íslensku COVID-stefnuna draumóra

Páll Þórð­ar­son, pró­fessor í efna­fræði við háskól­ann UNSW í Ástralíu, gagn­rýnir harð­lega hringl­anda­hátt rík­is­stjórn­ar­innar hvað varðar COVID. Hann segir rík­is­stjórna hafa skýlt sér á bak­við þrí­eykið svo­kall­aða og að stefna Íslands í sumar hafi verið aug­ljós töfra­leið, hvort sem það var vilj­andi eður ei. Hann segir ómögu­legt að eiga kök­una og borða hana, annað hvort sé hægt að opna á manna­mót eða hafa svæðið opið fyrir utan­að­kom­andi fólk. Bæði á sama tíma séu draum­órar.

Páll segir að þó það sé gott að hlusta á vís­inda­menn eigi ekki að láta þá um allar ákvarð­arnir. „Ég ætla að halda áfram með óvin­sælir skoð­anir: Þríeykið á ekki að standa eitt fram fyrir þjóð­inni – for­sæt­is­ráð­herra á alltaf að vera þarna líka til þess að útskýra hvaða leið hafi verið valin.Hvers vegna? Vegna þess í grófum dráttum eru í sumum til­fellum fleiri en einn mögu­leiki í stöð­unni frá lækn­is­fræði­legu og vís­inda­legu sjón­ar­horni séð. Það er of mikið til þess ætl­ast af lækna- og vís­inda­fólki að það hafi 100% svör við því hvað sé best að gera, sér í lagi þegar eru fleiri en einn val­mögu­leiki í stöð­unni og ekk­ert sér­stak­lega aug­ljóst hvor sé betri,“ segir Páll á Facebook.

Stjórnin þarf að velja leið

Hann segir að þetta hafi Íslend­ingar séð vel síð­ustu mán­uði. „Sumt er út af því að þekk­ing okkar er að breyt­ast: t.d. var ekki almennt ráð­lagt að vera með grímur í upp­hafi þar sem smitið var talið ber­ast aðal­lega „beint“ með hnerrum o.s.frv. eða snert­inu við yfir­borð (sbr. 2 metra regl­una, sápu og spritt dæmið). Og þá var talið að með því að ýta grímum að fólki, myndi það letj­ast til að fylgja fjar­lægð­ar­reglum og hrein­læt­is­á­bend­ingum. En núna er komið á dag­inn að úðaagnir með veirunni „hanga“ stundum í loft­inu í margar mín­útur og þó að þær grímur sem almenn­ingur notar séu ekki nema kannski að sumu leiti virkar (í og með að fólk kann ekki almenni­lega að nota þær), þá munar það tals­verðu og því eru núna flest vís­inda­fólk sam­mála um að kostir við grímunoktun séu mun mik­il­væg­ari en gall­arnir. En fyrir Vest­ur­landa­búa er hugs­unin um grímur enn frekar stórt stökk og því þarf líka svo­lítið pólítískt hug­rekki til að skylda noktun þeirra og það á ekki endi­lega að leggja það á sér­fræð­ing­ana að taka þá ákvörðun,“ segir Páll.

Hann segir að í raun séu bara þrjár leiðir færar til þess að draga úr smitum þar til bólu­efni kemur. „En hvað um það stærra vanda­málið sem engin hefur 100% svar við er hvernig heldur þú far­aldr­inum niðri þar til að bólu­efni er komið? Í því til­felli eru ca 3 aðal­leiðir ef maður horfir í kringum heim­inn.“

Asískaleiðin

Að sögn Páls sé það í fyrsta lagi ein­angr­un­ar­stefnan: „Ein­angr­un­ar­stefan eða það sem ég kalla Asíu-leið­ina með gríð­ar­legum ferða­tak­mörk­unum. Þ.e. í flestum til­fellum eru lönd og landa­mæri lokuð, jafn­vel stundum inn­an­lands eins og hér í Ástralíu.

Kostir: Hægt að „nán­ast“ að útrýma útbreiðslu COVID eins og dæmin sanna á Íslandi í vor, Nýja Sjálandi þar til núverið (en lík­lega ein­ungis stutt vesen hjá þeim og bundið við Auckland), Taiwan, Kína og 3/4 hlutar Ástralíu (Vestur og Suður fylkin, Norður svæðið og Tasmanía) og víðar. Þ.e. innan ein­angr­un­ar­svæða getur lífið nán­ast komið aftur í fyrra lag með manna­mót o.s.frv.

Gallar: Virkar aldrei 100% því að jafn­vel með lok­unum „lekur“ smit aftur inn eins og gerð­ist í Melbourne og á Nýja Sjálandi – en n.b. hægt að útrýma því þá auð­veld­lega aftur og slíkar seinni bylgjur verða yfir­leitt smáar (Melbourne er eina und­an­tekn­ingin á því en þar varð röð af mis­tökum…og þeir eru líka að byrja að sjá fyrir endan á sinni bylgju). Aðal­ó­kost­ur­inn er þó tak­mark­anir á ferða­frelsi utan ein­angr­un­ar­svæðis getur komið mjög illa niður á fjöld­skyldum ef þær þurfa að fara á milli svæða. Svo og nátt­úru­lega ferða­þjón­ustu ef hún getur ekki lifað á traffík innan ein­angr­una­svæðis.“

Evrópskaleiðin

Annar kostur er að tak­marka fólks­flutn­inga en ekki banna. „Tak­mörk­un­ar­stefnan eða það sem ég kalla Evrópsku leið­ina. Þá er ein­angrun ein­ungis beitt ef far­ald­ur­inn er í hámarki (eins og snemma í vor í Evrópu) en að öðru leiti stefnd að því að fólki geti ferð­ast. Á móti koma svo ýmsar mót­væg­is­að­gerðir, sér í lagi er yfir­leitt haldið í að nokkru tak­mark­anir á sam­skiptum fólks í sam­bandi við fjölda­sam­komur o.s.frv.

Kostir: fólk getur ferð­ast „nán­ast“ að vild ef að „bylgja“ er ekki í gangi.

Gallar: Jafnvel þegar að það er engin „bylgja“ í gangi eru ein­hverjar tak­mark­anir í gangi, amk á fjölda­sam­komum. Þessi leið þýðir líka að nýjar bylgjur koma reglu­lega og geta orðið ansi svæsnar ef ekki er að gáð (verður athygl­is­vert að sjá hvernig fer í Þýska­landi og fleiri löndum Evrópu þar sem smit eru greini­lega að aukast).  N.b. þetta er nokkurn vegin sú leið sem Íslend­ingar virð­ast hafa verið að fylgja þó að það sé svo­lítið óljóst (sjá að neðan). Athugið að innan Banda­ríkj­anna eru líka mörg ríki sem fylgja þess­ari stefnu eins og t.d. New York eftir ógn­ar­at­burð­ina þar í mars og apríl.

MAGA-leiðin

Þriðja leiðin sé svo í raun að fylgja eng­ari leið. „MAGA (Make America Great Again, slag­orð Trump) leiðin – það er að segja, gefa skít í ráð­legg­ingar lækna og vís­inda­manna og hafa allt meir og minna opið. Þetta gerðu t.d. rík­is­stjórar Texas og Flórída og fjölda ann­ara ríkja innan Banda­ríkj­anna. Og leið­togar landa eins og ekki bara Banda­ríkj­anna, heldur líka Braslíu hafa óspart hvatt sína lands­menn og fylkja/ríkja­stjórir til að fylgja þessu fyr­ir­komu­lagi. Murduch og hans fjöl­miðla­veldi (Fox, Sky…) er líka sterkt á þess­ari línu.

Kostir: Lífi almenn­ings eru ekki settar neinar sér­stak­legar skorður.

Gallir: Veiran grass­erar fram og aftur í miklum bylgjum með miklu óþarfa mann­tjóni og heilsutjóni sem bitnar líka ekki síst á minni­hluta­hópum og þeim sem eru fátæk­ari (og ekki bara gam­al­menn­unum). Einnig er ekki víst að efna­hags­á­vinn­ungur þess­ara stefnu sé eins mik­ill og áhagendur hennar halda fram því að fólk sem sér fullt að öðru fólki deyja í kringum það er kannski ekk­ert voða­lega spennt fyrir því að skreppa í nauta­steik á veit­ing­ar­stað. Og ekki er líka óal­gengt að þegar slær virki­lega í þessar bylgjur að þá sé gripið til hertra sam­skipta­að­gerða (og til hvers var þá af stað farið ef það er samt enda­punkt­ur­inn þegar nógu margir hafa dáið).“

Hringlandaháttur

Páll segir að það boði ekki gott að Ísland hafi tekið stundað um tíma tvær af þremur leiðum.  „Þetta er í grófum dráttum valið. Lang­flestir sér­fræð­ingar myndu aldrei ráð­leggja númer 3 (meir að segja hann Tegnel í Svíþjóð var í upp­hafi aldrei á línu 3 og fær­ist nú æ nær „hefð­bundn­ari“ línu 2). En hvor leiðin er betri: 1 eða 2? Það á EKKI að vera ákvörðun þrí­eyk­is­ins eða vís­inda­fólks yfir­höfð! Nei, það að láta stjórn­völdum í hendur eins miklar upp­lýs­ingar og hægt er á hverjum tíma um kosti og galla þess­ara leiða.

En það á vera leið­togar lands­ins sem ákveða hvor leiðin er farin. Og helst að ákveða frekar fyrr en hitt hvor leiðin skuli vera höfð að aðal­tak­marki og halda sig svo við það. Þetta hefur verið vanda­málið þarna heima á Íslandi finnst mér. Það hefur aldrei verið ljóst fyrr kannski núna síð­ustu daga hvað var stefnt á?“

Tveir valkostir

Hann segir að stjórn­mála­menn sem hafi verið sam­kvæmir sér hafi hlotið vin­sældir. „Eins og það lítur út frá mínum bæja­dyrum var byrjað á 1, en þegar það heppn­að­ist skipt í 2. Og núna farið að halla í 1 aftur. En ég er hreini­lega ekki viss hver stefnan var/er – kannski veit það ein­hver betur. Þeir leið­togar land­svæða sem hafa ákveðið að fylgja leið 1 tóku þá ákvörðun áður en að fyrsta bylgjan var að klár­ast. Og í lang­flestum til­fella hafa öðl­ast miklar vin­sældir fyrir. Sama gildir um þá sem voru skýr­in­orðnir um það að þeir ætl­uðu sér að fylgja númer 2.

En þeim sem hafa ekki verið stað­fastir og eru með hringl­anda­hátt farn­ast ekki eins vel. Af hverju? Jú, fólk þarf að vita að það sé ein­hver heild­ar­stefna og það þær fórnir sem mun þurfa að gera (hvort sem það er skert ferða­frelsi eða hömlur á manna­mótum) hafi eitt­hvert lang­tíma­mark­mið, jafn­vel þegar slær í á móti eins og er núna að ger­ast á Íslandi eða t.d. Nýja Sjálandi.  En vei þeim sem reynir að selja þá bábilju að það sé hægt að útrýma veirunni innan ein­hvers land­svæðis, koma manna­mótum aftur á til fyrra horfs OG hafa svæðið opið fyrir fólk sem er að koma ann­ars­staðar frá. Það er bara ekki hægt – slík töfra­lausn er ekki til. Ég ætla amk rétt að vona að það hafi ekki raun­veru­lega verið ætlun Íslenskra stjórn­valda að fara ein­hverja slíka galdra­leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina