Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég fyrirgaf mömmu stjórnsemina“

Mamma var alltaf stóri og sterki aðil­inn í minni fjöl­skyldu. Það var sama hvað gekk á það datt aldrei af henni né draup. Þessi styrkur mömmu fór oft í taug­arnar á mér, enda fylgdi honum stjórn­semi sem gat gengið út í öfgar. Rétt áður en mamma dó í fyrra skildi ég loks hvað henni hafði gengið til og ég fyr­ir­gaf henni stjórn­sem­ina.

Þegar bróðir minn slas­að­ist lífs­hættu­lega var það hún sem hugg­aði okkur hin og stapp­aði í okkur stál­inu. Allan þann tíma sem hann lá á sjúkra­hús­inu sáum við hana aldrei brotna saman eða gráta. Hún virt­ist ekki eitt and­ar­tak missa von­ina um að hann kæm­ist til með­vit­undar. Pabbi var beygður og utan við sig, nán­ast ekki með sjálfum sér, af sorg og við hin höfðum miklar áhyggjur af honum. Mamma aftur á móti skipu­lagði vaktir við sjúkra­beð bróður míns, sá um að allir fengju að borða og sinnti öllum nauð­syn­legum sam­skiptum.

Ég dáð­ist að henni þá en ég skildi ekki hvernig hún gat þetta. Mér fannst hún svo köld að ég sagði við systur mína: „Þykir henni virki­lega ekki vænna um börnin sín en þetta? Þarna liggur eitt þeirra milli heims og helju og hún fellir ekki einu sinni tár.“ Systir mín var sam­mála og við rifj­uðum upp sögur af kulda og til­finn­inga­leysi mömmu. Bróðir minn náði sér mjög vel eftir þessi veik­indi og mamma var við hlið­ina á honum allan tím­ann. Ég var hins vegar þá, og hef nán­ast alltaf verið hálf­reið henni fyrir að geta aldrei sýnt til­finn­ingar.

Gerði allt sjálf

Þegar ég var þriggja ára datt ég niður tröpp­urnar heima og fékk gat á haus­inn. Systir mín hljóp inn háskælandi og sagði mömmu hvað hefði gerst. Mamma hljóp út og þar lá ég í blóð­polli á stétt­inni. Hún sagði ekk­ert heldur tók mig í fangið og bar mig inn. Hún þvoði það mesta úr and­lit­inu á mér, vafði hand­klæði um höfð­uðið á mér og setti utan um mig teppi. Síðan fór hún með okkur systur báðar upp á slysa­deild. Þar kom í ljós að ég hafði fengið vægan heila­hrist­ing og sauma þurfti sjö spor við gagn­augað.

Systir mín grét og barm­aði sér meðan ég var saumuð en mamma sat með hana í fang­inu og tal­aði rólega við hana. Hún hélt líka í hönd­ina á mér og taldi í mig kjarkinn. Talaði um að bráðum yrði þetta búið og ég væri sterk stelpa sem þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur. Sjálf man ég bara óljóst eftir þessu en sagan er svo vel­þekkt í fjöl­skyld­unni að mér finnst ég muna þetta allt. Lækn­arnir unnu sitt verk og við fórum aftur heim. Pabbi átti ekki orð þegar hann kom heim um kvöldið og spurði mömmu aftur og aftur: „Af hverju hringd­irðu ekki í mig?“ Hún sagð­ist ekki hafa talið neina þörf á því að trufla hann. Þá sagði hann óskap­lega sár: „Ég hefði komið strax.“

„Það er eng­inn óhepp­inn fjórum sinnum. Það er eitt­hvað að þessum manni.“

En svona var mamma. Hún leysti allt sjálf og gerði allt sem þurfti að gera. Þegar ég var ung­lingur komst ég aldrei upp með neitt múður. Mamma hringdi til mæðra vin­kvenna minna til að athuga hvort ég væri örugg­lega hjá þeim og hún sá til þess að ég kæmi heim á réttum tíma því ef það brást kom hún ein­fald­lega og sótti mig. Ég lét það ekki henda nema tvisvar, enda stríddu krakk­arnir mér upp frá því og sögðu að mamma mín kæmi og sækti mig ef ég væri ekki stillt.

Enginn er óheppinn fjórum sinnum

Ég kynnt­ist fyrri mann­inum mínum aðeins átján ára og fór að búa með honum eftir aðeins þriggja mán­aða kynni. Kannski hefur það haft sitt að segja að ég vildi sleppa frá mömmu. Þessi kær­asti hlaut ekki náð fyrir augum mömmu sem var­aði mig hvað eftir annað við honum. Hann var tíu árum eldri en ég og átti þrjár fyrr­ver­andi eig­in­konur og eina fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu.

Mamma sagði þegar hún heyrði það: „Það er eng­inn óhepp­inn fjórum sinnum. Það er eitt­hvað að þessum manni.“ Mikið ofboðs­lega varð ég reið. Ég hélt að ég myndi aldrei fyr­ir­gefa mömmu þessi en nokkrum mán­uðum seinna komst ég að því að svo sann­ar­lega hafði hún haft rétt fyrir sér. Sam­býl­is­maður minn var óáreið­an­legur á öllum sviðum. Hann laug, sveik og blekkti, ekki bara að mig heldur líka vinnu­veit­anda sinn, for­eldrum sína og aðrar konur sem hann var í sam­bandi við fram hjá mér.

Það tók mig tæp tvö ár að við­ur­kenna ósigur minn og skríða heim til mömmu. Þangað kom ég klukkan sex að morgni með bólgna vör og blá og marin um allan skrokk­inn. Sam­býl­is­maður minn taldi það ósvífni að ég skyldi gera athuga­semd við það að hann kom heim með hóp af blind­fullum félögum sem lögðu undir sig heim­ili okkar. Til að sýna þeim að hann léti kerl­ingar nú ekki kom­ast upp með að stjórna sér kýldi hann mig í and­litið og henti mér síðan niður stiga og út úr íbúð­inni. Þá gafst ég end­an­lega upp.

Ég náði í leigu­bíl skammt frá hús­inu og grét alla leið­ina heim til mömmu og pabba. Mamma kom til dyra þegar ég hringdi dyra­bjöll­unni. Hún sagði ekki orð, sótti bara veskið sitt borg­aði bíl­inn og fylgdi mér svo inn í stofu. Ég grét með ekka­sogum og hún hélt utan um axl­irnar á mér. Þegar ég loks­ins var búin að gráta nóg, lét hún mig leggj­ast út af í sófann og breiddi yfir mig teppi. Um leið og hún gekk út úr stof­unni sagði hún: „Guði sé lof að þú átt ekki barn með honum.“ Þar með var málið útrætt af hennar hálfu og aldrei framar var minnst á sam­býl­is­mann minn eða neitt honum við­kom­andi.

Komin í örugga höfn

Pabbi og bróðir minn fóru skömmu síðar og sóttu dótið mitt og þá sat sam­býl­is­maður minn grát­andi í stof­unni. Ég svar­aði ekki sím­tölum frá honum og neit­aði að taka á móti honum þegar hann kom. Hann reyndi þess vegna að telja pabba og bróður minn á að styðja sig og fá mig til að taka við sér aftur. Pabbi svar­aði honum kurt­eis­lega en ákveðið að eng­inn úr fjöl­skyld­unni vildi sjá hann framar og ef hann myndi nálg­ast mig yrði hringt á lög­reglu. Upp frá því lét hann mig í friði, enda voru nógar aðrar til­búnar til að gang­ast upp við smjaðrið í honum því ekki vant­aði að hann var tungulipur og aðlað­andi þegar hann var að byrja ást­ar­sam­band við konur.

„Umhyggja mömmu fyrir okkur var svo mikil að hún setti sjálfa sig og sínar þarfir ævin­lega í annað sætið.“

Ég bjó ekki lengi heima hjá mömmu og pabba. Ég vildi standa á eigin fótum og leigði mér því litla íbúð og seinna keypti ég mitt eigið hús­næði. Ég kynnt­ist mann­inum sem ég er gift í dag þannig að hann bjó á móti mér í hús­inu þar sem ég keypti. Hann var mjög elsku­legur og almenni­legur. Þess vegna leit­aði ég til hans þegar þvotta­vélin bil­aði hjá mér og vatn flæddi um allt. Hann brást vel við og redd­aði mál­unum ótrú­lega fljótt og vel. Upp frá því fórum við að tala saman á göng­unum og hann kom í kaffi til mín. Eitt leiddi af öðru og fyrr en varði var hann fluttur inn til mín.

Hann var sann­ar­lega ekki líkur mínum fyrr­ver­andi og varla hægt að hugsa sér betri eða traust­ari mann. Að þessu sinni var mamma sam­mála og hún virt­ist telja að ég væri komin í örugga höfn. Oft fór í taug­arnar á mér hversu hrifin hún var af tengda­syn­inum því ef ein­hverjar skærur voru okkar á milli stóð hún alltaf með honum. Pabbi hló bara þegar ég kvart­aði undan þessu og benti á að mamma væri bara að reyna að fá mig til að sjá fleiri hliðar á mál­unum. Ég þoldi það hins vegar illa því ég taldi mig ekki í vand­ræðum með að sjá fleiri hliðar á mál­unum. Mik­il­væg­ara væri að ein­hver stæði með mér.

Í fyrra fékk mamma að vita að hún væri dauð­veik. Hún tók á veik­ind­unum, eins og öllu öðru, með miklu jafn­að­ar­geði. Oftast var það hún sem hugg­aði okkur en ekki öfugt. Ein­hverju sinni var hún mjög veik og lá á sjúkra­húsi. Ég vildi sitja hjá henni en hún bað mig að fara heim og sagð­ist þurfa að vera ein. Ég varð mjög sár og keyrði heim til pabba. Þar hágrét ég við eld­hús­borðið og sagði honum að ég þyldi ekki hvernig hún héldi manni alltaf í ákveð­inni fjar­lægð.

„Það tók mig tæp tvö ár að við­ur­kenna ósigur minn og skríða heim til mömmu.“

Þá sagði pabbi: „Mamma þín varð snemma að taka ábyrgð á öllu í eigin lífi. Amma þín var ein­fald­lega þannig að ef erf­ið­leika bar að höndum gafst hún upp. Hún veikt­ist og dó þegar mamma þín var mjög ung, eins og þú veist, en það var mamma þín sem varð að sjá um að halda öllu gang­andi meðan á veik­ind­unum stóð og eftir að hún féll frá. Mamma þín var alltaf ákveðin í að þið börnin hennar mynduð aldrei þurfa að ganga í gegnum það sama og hún.“ Og þá loks­ins skildi ég allt. Umhyggja mömmu fyrir okkur var svo mikil að hún setti sjálfa sig og sínar þarfir ævin­lega í annað sætið. Ég fyr­ir­gaf henni umsvifa­laust stjórn­sem­ina og þegar ég kvaddi hana nokkrum vikum seinna kvaddi ég af ein­lægri ást og virð­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu