Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ánægður með að fá tækifæri – og stoltur yfir árangrinum

Ánægður með að fá tækifæri – og stoltur yfir árangrinum
Hjónin Kathira­van Nara­yanan og Priya Jay­ara­man, ásamt dótt­ur­inni Deekshita Kathira­van, fimm ára og syn­inum Shaam Kathira­van, sem er nokk­urra mán­aða. Öll hafa þau aðlag­ast vel íslensku sam­fé­lagi. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kathira­van Nara­yanan hefur blómstrað í starfi og einka­lífi síðan hann tók atvinnu­til­boði hjá líf­tækni­fyr­ir­tæk­inu Alvotech og sett­ist að á Íslandi ásamt fjöl­skyldu sinni árið 2017. Í byrjun gegndi hann stöðu deild­ar­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins en starfar nú sem aðstoð­ar­for­stjóri yfir lyfja­fram­leiðslu Alvotech.

„Ég er virki­lega ánægður, bæði í vinnu og einka­lífi, þannig að ég er mjög ánægður að hafa fengið hér vinnu,“ segir Kathira­van Nara­yanan, eða Kathir eins og hann er gjarnan kall­aður í dag­legu tali.

Kathir starfar sem aðstoð­ar­for­stjóri yfir lyfja­fram­leiðsl­unni hjá líf­tækni­fyr­ir­tæk­inu Alvotech. Hann ólst upp í bænum Raya­kottai á Indlandi og starf­aði í rúman ára­tug hjá ind­verskum stór­fyr­ir­tækjum á sviði líf­t­tækni, áður en hann tók starfstil­boði hjá Alvotech árð 2017 og flutti hingað til lands með fjöl­skyldu sína, eig­in­konu sinni, Priya Jay­ara­man, og tveggja ára dóttur þeirra, Deekshita Kathira­van. Fyrir tæpum þremur mán­uðum eign­uð­ust þau síðan sitt annað barn, son­inn Shaam Kathira­van og líður vel á Íslandi.

„Ég hef kunnað því mjög vel að starfa þar og það er ánægju­legt hversu vel er hugsað um starfs­fólk hér á landi.“

Vilja hvergi annars staðar búa

Kathir segir að hann og fjöl­skylda hans hafi líka aðlag­ast vel íslensku sam­fé­lagi og vilji nú hvergi ann­ars staðar búa en á Íslandi. „Þegar við fluttum hingað þá var breyt­ingin fyrir okkur mikil. Þetta eru gjör­ó­líkir menn­ing­ar­heimar. Á Indlandi er líka mjög heitt en hér er kalt og miklar breyt­ingar á birtu­skil­yrðum eftir árs­tíðum. En við hjónin völdum að láta veðrið ekki trufla okkur. Þess vegna vorum við ekki kvíðin fyrir flutn­ingnum. Litum hann bara jákvæðum augum. Hér er allt svo hreint og ferskt, til dæmis vatnið, og manni finnst heilsu­sam­legt og mjög gott að búa hér. Fólkið er líka mjög almenni­legt. Það er bara mjög ánægju­legt að búa á Íslandi. Fyrir utan fjöl­skyld­una á Indlandi þá er ekk­ert sem við söknum þaðan,“ segir hann.

Vel hugsað um starfsfólkið

Í upp­hafi gegndi Kathir deild­ar­stjóra­stöðu hjá Alvotech en er nú eins og áður segir aðstoð­ar­for­stjóri yfir lyfja­fram­leiðsl­unni hjá fyr­ir­tæk­inu sem er með fjölda líf­tækni­lyfja í þróun og stefnir á að koma fyrsta lyf­inu á markað á næsta ári. Hann seg­ist vera mjög ánægður með þann árangur sem deildin hefur náð. „Fram­leiðslu­deildin hefur náð mjög góðum árangri og fyrir það er ég bæði stoltur og þakk­látur. Ég hef kunnað því mjög vel að starfa þar og það er ánægju­legt hversu vel er hugsað um starfs­fólk hér á landi,“ segir hann glað­lega.

Flestir vilja vera til frambúðar

Hjá Alvotech á Íslandi starfa vís­inda­menn og sér­fræð­ingar af 50 ólíkum þjóð­ernum. Fyrstu tvö árin hjá var Kathir hluti af fámennum hópi Indverja hjá fyr­ir­tæk­inu en nú eru Ind­verjarnir sem þar starfa orðnir yfir 40 tals­ins. „Það hefur auð­vitað haft jákvæð félags­leg áhrif því þessi stóri hópur er mér bein­tengdur. Þau hafa öll komið hingað því við tölum svo vel um Ísland. Þá hefur þetta líka haft jákvæð félags­leg áhrif fyrir kon­una mína sem hefur getað hjálpað kon­unum í hópnum að koma sér fyrir hér. Allur hóp­ur­inn er mjög ánægður hér og ég er sann­færður flestir úr hópnum komi til með að vilja vera hér áfram til fram­tíðar.“

Langar að verða Íslendingur

Sjálfur stefnir Kathir á að sækja um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt innan fárra ára. Hann seg­ist líka ætla sér að ná betri tökum á íslensk­unni. „Í hrein­skilni sagt hef ég ekki haft nógu mik­inn tíma til að læra íslensk­una,“ játar hann, „en ég er með það mark­mið að bæta þar úr því eftir nokkur ár stefni ég á að sækja um rík­is­borg­ara­rétt. Mig langar til að verða Íslend­ingur. Eftir að ég kom hingað hef ég bæði þroskast mjög á mínu atvinnu­sviði en ég hef líka þroskast sem fjöl­skyldu­faðir. Það er mjög ánægju­legt að búa á Íslandi. Það er pínu kalt þar sem veðrið breyt­ist mjög hratt en hér er samt mjög gott að búa,“ segir hann og brosir.

Alvotech í sam­starfi við Stúdíó Birtíng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur