Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Jón Ívar segir hættuna af COVID ofmetna: „Ekki heillavænlegt að keyra á hræðsluáróðri“

Jón Ívar segir hættuna af COVID ofmetna: „Ekki heillavænlegt að keyra á hræðsluáróðri“

Grein sem Jón Ívar Ein­ars­son, pró­fessor við lækna­deild Harvard-háskóla í Boston, birti í Morg­un­blað­inu í dög­unum vakti tals­verða athygli en í henni gagn­rýndi hann íslensk stjórn­völd fyrir hertar aðgerðir á landa­mærum vegna kór­ónu­veirunnar. Sú grein vakti bæði hrifn­ingu og harða gagn­rýni.

Í Morg­un­blað­inu í dag er birt nýr pist­ill eftir Jón Ívar og gefur hann ekk­ert eftir. Hann segir að sé dán­ar­tíðni COVID skoðuð þá kemur í ljós að hættan sé minni en látið er. Hann seg­ist skrifa grein­ina til að skýra atriði sem hafi mis­kilist í fyrri grein.

„Fyrst vil ég kynna til sög­unnar tvö mik­il­væg hug­tök sem eru e.t.v. ekki á allra vörum; case fata­lity rate (CFR) og infection fata­lity rate (IFR). CFR sýnir hversu margir sem hafa greinst deyja. IFR gefur hins vegar raun­hæf­ari mynd, því það sýnir hversu margir sem sýkj­ast deyja. Ísland er í öfunds­verðri stöðu (takk DeCode) því við höfum mótefna­mælt stærri hluta þjóð­ar­innar en flestir og vitum því nokkuð vel hversu margir hafa raun­veru­lega sýkst,“ segir Jón Ívar.

Hann heldur áfram og segir Ísland ein­stakt hvað þetta varðar. „Við höfum líka grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um Covid-tengd and­lát. Það er senni­lega ein­stakt á alþjóða­mæli­kvarða. Vegna þess er hægt að reikna út með nokk­urri vissu raun­veru­lega dán­ar­tíðni hér­lendis (IFR), sem er eins og áður sagði 0,21% (95% vik­mörk 0,1025-0,39305). CFR hér­lendis er hins vegar 10/2107 (0,47%). Glæný rann­sókn Decode sýnir reyndar Covid IFR upp á 0,3%, en 0,1% hjá yngri en 70 ára. WHO áætl­aði 3,2% dán­ar­tíðni í mars, sem var klár­lega ofmat. Til sam­an­burðar er dán­ar­tíðni (IFR) inflú­ensu 0,1-0,2% og er það þrátt fyrir til­vist bólu­efnis. Covid er meira smit­andi en inflú­ensa og með aðeins hærra IFR og því hættu­legri sýk­ing,“ segir Jón Ívar.

Lægri dánartíðni hjá hraustum

Jón Ívar segir mik­il­vægt að horfa á aldur þeirra sem falla frá. „Það sem skiptir mestu máli varð­andi raun­veru­lega dán­ar­tíðni (IFR) er sam­setn­ing þýðis m.t.t. ald­urs og áhættu­þátta. Covid er mjög alvar­legur sjúk­dómur hjá eldra fólki og við­kvæmum hópum. T.d. sýnir nýleg rann­sókn þar sem tekin eru saman gögn frá mörgum löndum (m.a. Íslandi) að IFR fyrir 0-34 ára er 0,01% (1/10.000) og 35-44 ára 0,06% (1/1.666). Hins vegar er IFR fyrir ald­urs­hóp­inn 75-84 ára 7,3% og fyrir 85 ára og eldri 27,1%. Þetta tekur ekki inn í mynd­ina áhættu­þætti. Þannig myndi hraustur ungur ein­stak­lingar hafa enn lægri dán­ar­tíðni, en eldri ein­stak­lingur með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma enn hærri dán­ar­tíðni,“ segir Jón Ívar.

Hann segir að nú smit­ist hlut­falls­lega fleira ungt fólk. „Það er hlut­falls­lega fleira yngra fólk að smit­ast í þess­ari bylgju og það skýrir senni­lega að mestu að hún virð­ist væg­ari. Nýleg rann­sókn frá Oxford-háskóla byggð á gögnum Medical Research Council Biostatistics Unit á Englandi sýnir líka að IFR hefur farið lækk­andi í sumar, en á tíma­bil­inu júní til ágúst 2020 lækk­aði IFR úr u.þ.b. 0,7% niður í 0,3% og virð­ist enn á nið­ur­leið. Það er ekki ólík­legt að þetta sé a.m.k. að hluta vegna þess að nú séu hlut­falls­lega fleiri ungir og hraust­ari ein­stak­lingar að sýkj­ast.

Gæta meðalhófs

Jón Ívar segir að þrátt fyrir þetta sé mik­il­vægt að hafa í huga að ekki er vitað um alla afleidda kvilla COVID. „Þetta gefur til­efni til ákveð­innar bjart­sýni og skýrir e.t.v. að hluta þá stað­reynd að á meðan tíðni smita á heims­vísu hefur verið í línu­legum vexti, hefur kúrfa dauðs­falla verið flöt. IFR er einn af þeim þáttum sem þarf að taka til­lit til þegar teknar eru ákvarð­anir um sam­fé­lags­legar aðgerðir út frá heild­rænu sjón­ar­miði. Vissu­lega eru afleiddir kvillar Covid líka mik­il­vægir og þarf að rann­saka það betur. Það er hins vegar ekki heilla­væn­legt að keyra á hræðslu­á­róðri til lengdar því fólk á Íslandi er skyn­samt og vel upp­lýst og ef gögn styðja ekki skila­boðin þá fjarar smám saman undan sam­stöð­unni. Það er líka mik­il­vægt að stjórn­mála­menn taki ákvarð­anir sínar byggðar á nýj­ustu og bestu upp­lýs­ingum,“ segir hann.

Jón Ívar seg­ist alls ekki vera mót­fall­inn smit­vörnum inn­an­lands. „Það er áfram mjög mik­il­vægt að halda áfram aðgerðum inn­an­lands, þ.e.a.s. iðka smit­varnir, vernda við­kvæma hópa o.s.frv. Mér finnst raunar sums staðar að ekki hafi verið nægi­lega langt gengið, t.d. ættu þeir sem sinna aðhlynn­ingu á hjúkr­un­ar­heim­ilum alltaf að vera með grímu í vinn­unni. Það var ekki gert lengi vel en von­andi hefur það breyst. Hins vegar þykja mér aðgerðir á land­mærum ekki í sam­ræmi við þá stöðu sem við erum í nú og utan með­al­hófs. Það gæti því miður verið of seint að breyta um stefnu þar því skað­inn er e.t.v. að mestu skeður, en þó skora ég á stjórn­völd að end­ur­meta þær ákvarð­anir. Ég tek það skýrt fram að ég er ekki að tala fyrir því að opna landa­mærin upp á gátt, heldur að halda áfram með tvö­falda skimun í bili og taka upp heim­komusmit­gát í stað sótt­kvíar,“ segir hann.

Bandaríkin víti til varnaðar

Hann segir það víðs­fjarri að hann sé tals­maður stefnu Banda­ríkja­manna. „Loks vil ég að gefnu til­efni taka fram eft­ir­far­andi. Ég er alls ekki fylgj­andi því stefnu­leysi sem hefur verið uppi í Banda­ríkj­unum gagn­vart Covid. Þvert á móti er það víti til varn­aðar. Þó að lífið sé komið í nokkuð eðli­legt horf í mínu umhverfi og hjá vinum og kol­legum víðs vegar um Banda­ríkin á það alls ekki við alls staðar og margir eiga um sárt að binda þar enda eru Banda­ríkin stórt land með fólki sem býr við mis­jafnar aðstæður,“ segir Jón Ívar.

Hann segir svo að lokum: „Það er mik­il­vægt að litið sé heild­rænt yfir sviðið og að opna umræð­una. Ég hef per­sónu­lega engra hags­muna að gæta, nema það að ég vona að teknar séu ákvarð­anir sem eru heilla­væn­legar fyrir okkar frá­bæra land og þjóð. Við vitum að það er óraun­hæft að við komum til með að búa í veiru­fríu landi og nei­kvæð umræða sem elur á ótta er ekki heilla­væn­leg til lang­frama. Ég tel að nýj­ustu gögn bendi til að dán­ar­tíðni Covid hafi verið ofmetin, en við erum nú að ganga í gegnum eitt mesta efna­hags­á­fall sög­unnar og því afar mik­il­vægt að hlúa að innviðum, and­legri heilsu og lág­marka skað­ann fyrir sem flesta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina