Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Erum farin að drekka til að njóta en ekki til að gleyma“

„Erum farin að drekka til að njóta en ekki til að gleyma“
Andri Davíð Pét­urs­son heldur úti hlað­varp­inu Happy Hour. Hann er líka með eigin síðu á Instagram og Facebook.

Happy Hour með the Viceman er skemmti­legt hlað­varp sem fram­reiðslu­meist­ar­inn og bar­þjónn­inn Andri Davíð Pét­urs­son stýrir. Í hverri viku fær hann til sín nafn­tog­aða bar­þjóna og sér­fræð­inga og áhuga­fólk um vín, kok­teila og bjór til að veita skemmti­lega inn­sýn inn í vín-, kok­teila- og bjór­menn­ing­una á Íslandi.

Happy Hour fór af stað í októ­ber á síð­asta eru þætt­irnir orðnir 45 tals­ins.

„Þær hafa verið mjög góðar, fólk tekur þessu fram­taki vel,“ segir Andri, þegar hann er spurður hvernig Happy Hour hafi verið tekið. Ég geri þetta ekki í ein­hverju stúd­íói heldur mæti sjálfur með græj­unar á stað­inn og tek við­tölin upp,“ tekur hann fram. „Maður er auð­vitað ekki þjóð­þekktur ein­stak­lingur eins og Sölvi Tryggva eða Hjörvar Hafliða en þetta hefur slíp­ast til frá því að fyrsti þátt­ur­inn fór í loftið og mér finnst ég er orð­inn sæmi­lega góður.“

Aðpurður segir hann að hér sé á ferð hlað­varp sem veiti skemmti­lega og fróð­lega inn­sýn í vín- og bjór­menn­ingu þjóð­ar­innar. „Þegar ég fór af stað með hlað­arpið í októ­ber á síð­asta ári fannst mér ein­fald­lega vanta fag­legt hlað­varp fyrir áhuga­fólk um drykki. Ég var orð­inn svo þreyttur að sjá enda­lausar vef­síður með röngum upp­skriftum sem ein­hverjir nýgræð­ingar standa á bak­við og vildi bjóða upp á vett­vang þar sem fólk getur sótt sér fag­lega fræðslu í bland við skemmti­sögur fag­manna. Til­gang­ur­inn er sá að áhuga­fólk um drykki geti fengið inn­sýn í það sem við gerum dags dag­lega í okkar fagi,” segir Andri, sem er sjálfur fram­leiðslu­meist­ari og bar­þjónn og hefur verið við­loð­andi veit­inga­geir­ann á Íslandi síð­ustu fimmtán ár.

„Ég var orð­inn svo þreyttur að sjá enda­lausar vef­síður með röngum upp­skriftum sem ein­hverjir nýgræð­ingar standa á bak­við og vildi bjóða upp á vett­vang þar sem fólk getur sótt sér fag­lega fræðslu í bland við skemmti­sögur fag­manna.“

„Þetta er í raun við­tals­þáttur, oft­ast viku­lega, þar sem ég fæ til mín nýjan gest, yfir­leitt einn en stundum fleiri, bar­þjóna, vín­gerð­ar­fólk og sér­fræð­inga og áhuga­fólk um vín, kok­teila og bjór og ræði meðal ann­ars við þá um þetta sam­eig­in­lega áhug­mál,“ heldur hann áfram léttur í bragði.

„Síðan skipt­ist þetta niður í fimm mis­mun­andi ser­íur. Í Hrist­ar­anum spjalla ég við bar­þjóna. Í Bjór­dæl­unni hitti ég að máli brugg­ara og áhuga­fólk um bjór. Vín­heim­ur­inn er til umfjöll­unar í Vín­karöfl­unni. Í fljót­andi formi fjallar um alls konar áhuga­verða hluti, allt frá Tefé­lag­inu til romm­fram­leiðslu í Venús­ú­ela og í ser­í­unni Fyrir framan bar­inn fæ ég til mín gesti, oft þjóð­þekkta ein­stak­linga, sem eru ekki með bak­grunn úr bar- eða veit­inga­brans­anum, og spjalla við þá um þessa hluti. Bransinn þarf líka að heyra hvað almenn­ingi finnst, hver afstaða viðkipta­vina er og á hverju þeir hafa áhuga. Ef ég er spurður hvers konar þáttur þetta sé þá segi ég oft að Happy Hour snú­ist ekki bara um áfengi heldur allar fljót­andi veigar. Að þetta sé hlað­varp í fljót­andi formi.“

Snorri í Reykja­vík Distill­ery og Andri Davíð.

Síðan Andri fór af stað með Happy Hour í októ­ber á síð­asta eru þætt­irnir orðnir 45 tals­ins. Hefur eitt­hvað komið honum á óvart við gerð þeirra? „Já, hvað það eru margir sterkvíns­fram­leið­endur á Íslandi, það hefur meðal ann­ars komið mér svo­lítið í opna skjöldu,“ játar hann. „Það hefur mikið verið fjallað um litlu íslensku brugg­húsin síð­ustu ár en sterkvíns­fram­leiðsl­unni hefur verið gef­inn lít­ill gaumur, sem er svo­lítið áhuga­vert þar sem á Íslandi er verið að fram­leiða gin og brenni­vín og líkkjöra sem eru alveg á heims­mæli­kvarða.“

Andri segir að það sé sömu­leiðis gaman að greina þær breyt­ingar sem séu að verða á bjór- og vín­menn­ingu þjóð­ar­innar. „Hún hefur tekið stakka­skiptum, kok­teila­menn­ingin sömu­leiðis, gæði kok­teila eru miklu meiri en áður,“ bendir hann á. „Svo erum við í auknum mæli farin að drekka til að njóta en ekki til að gleyma. Erum meira farin að leita að gæðum og erum með­vituð um að gæði kosta aðeins meira og erum alveg til í að láta það eftir okkur frekar en að kaupa eitt­hvað ódýrt áfengi bara út af áhrif­unum.“

Hann hvetur áhuga­sama að kynna sér Happy Hour á vef­síðu sinni Viceman, þar sé líka hægt að nálg­ast fréttir úr „bar­heim­inum“, fróð­leik og upp­skriftir. Eins sé megi finna Happy Hour með the Viceman á Spotify og öllum helstu hlað­varpsveitum „Ég legg áherslu á að fólk geti gleymt sér í ein­hverju skemmti­legu þegar það fer inn á síð­una, mark­miðið er að það fræð­ist og hafi gaman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni