Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég lærði að hafa áhuga á lífinu“

Þegar ég var ung­lingur fannst mér til­veran flöt. Ég fann sjaldn­ast til nokk­urra til­finn­inga gagn­vart neinu. Ég var aldrei glöð, ekki beint döpur en alltaf hálf­ergi­leg út af öllu. Þessi líðan varð við­var­andi eftir að ég varð full­orðin og ég beið alltaf eftir þessu eina full­komna and­ar­taki þegar allt breytt­ist til hins betra. Það kom ekki fyrr en ég gerði mér grein fyrir að ég yrði að skapa það sjálf.

Ég var gott og hlýðið barn. Mamma segir að ég hafi mikið leikið mér ein og alltaf verið dug­leg við að finna mér eitt­hvað að gera. Kannski átti ég þess vegna svo erfitt með að sætta mig við leið­indin sem ég fann fyrir eftir að ég varð ung­lingur. Mér leidd­ist í skól­anum. Félagar mínir voru, að mínu mati, upp­teknir af alls konar hlutum sem mér fannst engu skipta. Ég gat til dæmis aldrei fundið fyrir ein­hverjum óskap­legum áhuga á fötum eins og sumar aðrar stelpur.

„Ég varð ekki yfir mig skotin í ein­hverjum strákum eins og þær vin­konur mínar urðu.“

Ein besta vin­kona mín var mikið fatafrík og hún gat talað dögum saman um ein­hverja skó sem hana lang­aði í eða flottu peys­una í búð­inni niðri á Lauga­vegi. Mér fannst þetta leið­in­legt tal en verð að við­ur­kenna að mig lang­aði svo sem ekk­ert til að tala um eitt­hvað annað. Ég varð ekki yfir mig skotin í ein­hverjum strákum eins og þær vin­konur mínar urðu. Ég kunni vel við suma strák­ana og fannst nokkrir sætir en ég hafði engan sér­stakan áhuga. Ég átti tvo kærasta í skóla en það var fremur vegna þess að ég vildi falla í hóp­inn en að ég væri yfir mig hrifin af þeim.

Þegar ég lít til baka finnst mér að á þessum árum hafi ég flotið með straumnum, skoð­ana­laus og til­finn­ingaköld. Ég gerði það sem hinir gerðu en ég fann ekki til neinnar ánægju eða gleði yfir neinu. Mér leið heldur ekk­ert illa. Ef ég hefði verið döpur og leið hefði ég senni­lega talið mig vera þung­lynda og leitað læknis. Þannig var þetta ekki heldur miklu frekar eins og ég væri gestur í eigin lík­ama, ein­hver geim­vera sem væri tíma­bundið á þessum stað og biði bara eftir að kom­ast aftur heim.

Var alls staðar utangarðs

Ég hafði engan áhuga á íþróttum og hreyfði mig lítið. Samt fitn­aði ég ekki því ég hafði litla löngun til að borða og borð­aði sann­ar­lega ekki af nautn. Mér fannst ég alls staðar standa utan­garðs. Í hvert sinn sem fjöl­skyldan kom saman um hátíðir eða við önnur tæki­færi stóð ég ein­hvers staðar afsíðis og tal­aði helst ekki nema á mig væri yrt. Mér fannst erfitt að brydda upp á sam­ræðum og vissi tæp­ast hvernig ég átti að fara að því. Það er líka erfitt þegar maður hefur svo sem ekki áhuga á neinu að finna eitt­hvað til að tala um. Oft leið mér svona líka innan um vini mína og ég var sú í vin­kvenna­hópnum sem hlust­aði á allar hinar segja frá vanda­málum sínum en sagði sjaldn­ast nokkuð sjálf.

Það und­ar­lega var að eng­inn tók eftir að ég væri neitt öðru­vísi en aðrir. Jú, mamma og sumar vin­konur mínar höfðu orð á því af og til að ég væri svo róleg. Ég held að fáir hafi velt fyrir sér af hverju róleg­heit mín stöf­uðu. Stundum er talað um að sumt fólk hafi mik­inn lífs­þorsta og ég ímynda mér að það sé eins og góð mat­ar­lyst eða græðgi. Við­kom­andi er þá vænt­an­lega gráð­ugur í að lifa líf­inu til fulls. Ég var einmitt and­stæða þessa fólks. Ég hafði litla lyst á að lifa og var sátt við að sjá dag­ana renna hjá.

Ég var ekki kvíða­full eða ótta­slegin fyrir fram­tíð­inni heldur þvert á móti. Ég var viss um að í fram­tíð­inni biði eitt­hvað sem myndi vekja mig af þessum Þyrni­rós­ar­svefni og dag nokkurn myndi ég upp­götva til­gang með líf­inu. Ég ætl­aði að bíða eftir því að á vegi mínum yrði sá sem ég vildi eyða líf­inu með, vinnan sem ég vildi vinna og áhuga­mál sem myndi gagn­taka mig.

Ýmist öfundsjúk eða reið

Næstu ár liðu eins og í hálf­gerðum draumi. Ég vann við hitt og þetta en fann til lít­illar gleði. Ég kynnt­ist strák sem ég var með um tíma en það var eins með sam­band okkar og allt annað, ég var hálf­volg en varla meira en það. Allt í kringum mig var fólk að gera áhuga­verða og skemmti­lega hluti. Vinkonur mínar luku námi, eign­uð­ust eig­in­menn og börn. Þær voru óskap­lega upp­teknar af því sem þær voru að gera og töl­uðu varla um annað en nýja starfið, íbúð­ina sína, karl­inn og krakk­ana. Stundum öfund­aði ég þær af þess­ari gleði og áhuga en þess á milli var ég hrein­lega reið og pirruð yfir því hvað þær gátu gert mikið úr því sem í raun var nauða­ó­merki­legt.

„Ég veit ekki af hverju ég var eins og ég var. Kannski að sumu leyti vegna þess að heima hjá mér var lítið talað um til­finn­ingar og hver og einn fjöl­skyldu­með­limur var að mestu lát­inn í friði með sitt.“

Sjálf­sagt hefði ég getað farið í gegnum lífið án þess að finna nokkurn tíma til heitra til­finn­inga en þegar ég var um þrí­tugt ákvað ég að taka þátt í nám­skeiði sem ég sá aug­lýst í blöð­unum. Fyr­ir­lestr­arnir á því nám­skeiði breyttu lífi mínu. Ég fór að gera mér grein fyrir að aðrir voru ekki alltaf stöðugt fullir af orku, gleði og áhuga. Það koma stundir í lífi allra þar sem þeir þurfa að gera sér upp gleði og ánægju. Áhugi á ein­hverju við­fangs­efni er líka eitt­hvað sem kemur og fer aðal­at­riðið er að sýna þraut­seigju og halda sig við efnið þar til áhug­inn grípur fólk að nýju.

Ég veit ekki af hverju ég var eins og ég var. Kannski að sumu leyti vegna þess að heima hjá mér var lítið talað um til­finn­ingar og hver og einn fjöl­skyldu­með­limur var að mestu lát­inn í friði með sitt. Bróðir minn var í fót­bolta og við fórum aldrei á leiki hjá honum og það var ekki talað um það neitt sér­stak­lega ef honum gekk vel. Jú, mamma sagði til ham­ingju þegar hann sagði henni frá ein­hverju slíku en við tókum lít­inn þátt hvert í ann­ars gleði.

Breytt um lífsviðhorf

Upp frá þessu ákvað ég hins vegar að breyta um lífs­við­horf og neyða sjálfa mig til að finna fyrir áhuga og gleði gagn­vart því sem ég var að gera. Á hverjum degi tal­aði ég við sjálfa mig um það hversu gaman mér þætti að þessum og hinum verk­efnum í vinn­unni og hvað önnur væru mun óáhuga­verð­ari. Ég fór líka að stunda lík­ams­rækt og ákvað að mér þætti gaman að því. Brátt fór að bera á ýmsum breyt­ingum á lífi mínu og þeim sem voru í kringum mig.

Yfir­maður minn kom einn dag­inn og hrós­aði mér fyrir vel unnin störf. Hann sagð­ist hafa tekið eftir auknum áhuga og meiri vand­virkni hjá mér. Nokkru seinna var mér boðin stöðu­hækkun og nýja starfið reynd­ist enn skemmti­legra en það gamla. Mér gekk líka mjög vel í lík­ams­rækt­inni og ég náði góðum árangri. Það hvatti mig áfram og ég kynnt­ist fólki sem stund­aði ákveðna íþrótt í sömu lík­ams­rækt­ar­stöð og ég var í og slóst í hóp­inn. Þetta varð skemmti­legra og skemmti­legra eftir því sem ég tók lengur þátt í því og skyndi­lega var ég komin með áhuga­mál sem ég tal­aði nán­ast lát­laust um.

„Dag nokkurn kom hann hins vegar til mín og bauð mér á kaffi­hús og þar með varð ekki aftur snúið.“

Ég kynnt­ist mann­inum mínum í lík­ams­rækt­inni og við áttum margt sam­eig­in­legt. Ég var búin að horfa á hann lengi áður en hann leit á mig. Þegar mér leidd­ist æfing­arnar stytti ég mér stundir við að ímynda mér að við værum að kyss­ast og allt varð umsvifa­laust bæri­legra. Hann sýndi mér engan sér­stakan áhuga og ég var alltof feimin til að þora að gefa eitt­hvað í skyn. Dag nokkurn kom hann hins vegar til mín og bauð mér á kaffi­hús og þar með varð ekki aftur snúið.

Í dag eigum við tvö börn og ég er sjálf­sagt alger­lega óþol­andi því ég tala svo mikið um þau. Bæði eru í íþróttum og það skemmti­leg­asta sem ég geri er að fara og horfa á kapp­leiki hjá þeim og öskra mig hása. Við hjónin stundum enn sportið okkar og það eru frá­bærar stundir. Við höfum líka gaman af að ferð­ast með börnin en eitt af því sem okkur finnst mik­il­væg­ast af öllu er að hvetja hvort annað og að öll fjöl­skyldan taki þátt í því sem fjöl­skyldu­með­limir hafa áhuga á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu