Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskar ullarsængur og ullarkoddar fá góðar viðtökur

Íslenskar ullarsængur og ullarkoddar fá góðar viðtökur

Lopi­draumur er ný vöru­lína frá Ístex hf sem hefur notið mik­illa vin­sælda síðan hún var sett á markað. Í lín­unni eru sængur, koddar og yfir­dýnur fyllt með íslenskri ull.

„Ég sef betur með ull­ar­sæng­ina heldur en aðrar sængur sem ég hef átt því mér er mátu­lega hlýtt og aldrei of heitt,“ segir Sigríður Jóna Hann­es­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Ístex.

„Við­brögðin hafa verið góð og við erum þakk­lát fyrir við­tök­urnar. Við byrj­uðum að selja sæng­urnar á síð­asta ári og þær seld­ust upp fyrir jól. Margir sem hafa fengið sér sæng­urnar koma aftur og kaupa fleiri, fyrir fjöl­skyld­una eða í gjafir. Við áttum von á að við­tök­urnar yrðu góðar en þetta hefur farið fram úr okkar björt­ustu vonum,“ segir Sigríður Jóna Hann­es­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Ístex, um Lopi­draumur-vöru­lín­una og getur þess að fyr­ir­tækið sé í frek­ari vöru­þróun og komið með dreif­ing­ar­að­ila í Evrópu.

Um er að ræða hágæða sængur, kodda og yfir­dýnur úr íslenskri ull frá íslenskum bændum. „Við erum með þrjár gerðir af sængum; Emblu-heils­árs­sængur, Iðunni-vetr­ar­sæng og Bestlu sem er afar ull­ar­mikil sæng. Fólk getur valið á milli eftir því hversu heit­fengt það er,“ segir Sigríður.

„Fólk er ánægt með hvað sæng­urnar eru léttar og hvað þær anda vel. Ullin er temprandi þannig að manni líður alltaf vel.“

„Embla kemur í barna- og full­orð­ins­stærðum, extra langri útgáfu, amer­ískri „queen-size“ og bráðum munu fleiri tví­breiðar sængur bæt­ast við úrvalið. Vörurnar má þvo í þvotta­vél og setja í þurrkara, en búið er að vinna ull­ina þannig að hún er mjúk og þófnar ekki. Ytra byrði á vör­unum er hrein bóm­ull.“

„Ullin býr yfir þeim eig­in­leikum að geta dregið í sig raka, allt að 30 pró­sent af eigin þyngd. Ullin flytur því hita og raka til og frá lík­am­anum og við­heldur réttu og þægi­legu hita­stigi,“ segir Sigríður.

Vetr­ar­sængin Iðunn inni­heldur meiri ull en Embla og er auk þess með loft­hólf milli margra fín­kembdra ull­ar­laga sem eykur ein­angr­un­ar­gildi hennar án þess að þyngja hana. „Iðunn er létt sæng fyrir þá sem eru kul­sæknir. Fyrir þá sem kjósa ull­ar­miklar þyngri sængur er Bestla kjörin,“ segir hún.

Ull­ar­kodd­inn Mosi kom á markað í vor en hann er fylltur sér­þró­uðum ull­ar­hnoðrum, að sjálf­sögðu úr hreinni íslenskri ull. „Það er hægt að fjar­lægja eða bæta við ull­ar­hnoðrum úr innra veri kodd­ans. Ytra ver kodd­ans er klætt með ull sem er auð­velt að taka af og þvo. Á því er leyni­hólf þar sem hægt er að setja t.d. kæli­poka eða hita­bakstur. Þannig getur hver og einn aðlagað kodd­ann eftir sínu eigin höfði.“

Í sumar bætt­ust við vand­aðar yfir­dýnur í þremur stærðum og einnig nýjar fal­legar værð­ar­voðir sem eru hann­aðar af Védísi Jóns­dóttur. „Teppin eftir Védísi eru sum með nýrri vef­gerð, eins og teppið Ró úr Léttlopa sem flestir kann­ast við sem hand­prjóna­band. Hægt er að skoða allt úrval okkar af teppum á Istex.is og þær fjöl­mörgu fal­legu myndir sem þar eru.“

Umhverfisvænn kostur úr náttúrulegum efnum

En hvernig útskýrir Sigríður þessi góðu við­brögð? „Ull er gull! Íslend­ingar þekkja ull­ina vel og vita hvað hún er ein­stakt hrá­efni. Fólk er ánægt með hvað sæng­urnar eru léttar og hvað þær anda vel. Ullin er temprandi þannig að manni líður alltaf vel,“ segir hún og bætir við að sjálf eigi hún vetr­ar­sæng og -kodda sem hún er hæstá­nægð með. „Ég sef betur með ull­ar­sæng­ina heldur en aðrar sængur sem ég hef átt því mér er mátu­lega hlýtt og aldrei of heitt.“

„Svo er allir vel­komnir í heim­sókn til okkar á Völuteig 6 í Mos­fellsbæ, við erum með opið alla virka daga frá klukkan 8-16.“

Hún seg­ist jafn­framt hafa heyrt að fólk sem er haldið ofnæmi, astma og gigt hafi tekið vör­unum mjög vel. Í því sam­hengi nefnir hún að vör­urnar séu umhverf­is­vænn kostur úr nátt­úru­legum efnum og OEKO-TEX 100-vott­aðar.

Íslenskt hráefni og hugvit

Eins og áður segir er línan fram­leidd úr íslenskri ull sem er þvegin á Íslandi í ull­ar­þvotta­stöð fyr­ir­tæk­is­ins á Blöndu­ósi. Þaðan er ullin að lokum send til Þýska­lands, þar sem vör­urnar eru saum­aðar hjá litlu fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki. Sigríður segir að hér­lendis skorti tæki til að full­vinna vör­urnar, en að hrá­efnið, ullin, eigi sér enga hlið­stæðu. Hug­myndin hafi kviknað fyrir þónokkru síðan innan veggja Ístex og eru fleiri vörur í þróun.

Hvar er hægt að nálg­ast vör­una? „Á vef­síð­unni okkar Lopi­draumur.is,“ svarar hún. „Svo er allir vel­komnir í heim­sókn til okkar á Völuteig 6 í Mos­fellsbæ, við erum með opið alla virka daga frá klukkan 8-16.“

„Embla er heils­árs­sæng sem er nátt­úru­legur kostur fyrir heil­næman svefn,“ segir Sigríður. „Sængin er létt og við­heldur þægi­legu og réttu raka­stigi.“

Hún bætir við að fyr­ir­tækið bjóði fría heim­send­ingu inn­an­lands. „Sem var svo­lítið fyndið um síð­ustu jól, þá var svo mikið að gera fram á síð­ustu stundu að Sigurður fram­kvæmda­stjóri tók sjálfur að sér að keyra vör­urnar til við­skipta­vina. Stemn­ingin var mjög heim­il­is­leg, eins og þú heyrir,“ segir hún og hlær.

Þess má geta að 10 pró­sent afsláttur er dag­ana 10. – 14. sept­em­ber með afslátt­ar­kóð­anum svefn10.

Ístex í sam­starfi við Stúdíó Birtíng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur