Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Dagarnir mínir verða sífellt lengri og innihaldslausari“

Und­an­farin ár hef ég fylgst með sigrum vin­kvenna minna og gam­alla skóla­systra á vinnu­mark­aðnum og satt að segja dauð­öf­unda ég þær. Hitt er annað mál að sumar þeirra myndu eflaust vilja vera í mínum sporum, heima­vinn­andi hús­móð­ur­innar með börnin tvö og vel mennt­aða eig­in­mann­inn í góðu stöð­unni.

Sann­leik­ur­inn er sá að ég vildi gera hvað sem er til þess að vera í þeirra sporum, vera innan um fólk á dag­inn, vinna utan heim­ilis og nýta menntun mína. Það eru sjö ár síðan ég kynnt­ist mann­inum mínum og sex ár síðan dóttir okkar fædd­ist. Fyrir þremur árum bætt­ist svo lít­ill herra­maður í hóp­inn. Auðvitað veit ég að það eru for­rétt­indi að fá að njóta þess að vera með börn­unum sínum öllum stundum en slíkt líf getur verið ein­mana­legt.

Mamma, vin­konur mínar og kunn­ingja­konur eru und­an­tekn­ing­ar­laust úti­vinn­andi og þegar ég fylgist með þeim og spjalla við þær finnst mér ég lifa í allt öðrum veru­leika en þær. Með hverju árinu sem líður finnst mér sjón­deild­ar­hringur minn þrengj­ast og mér líður sífellt verr innan um konur sem lifa líf­inu sem mig langar að lifa.

Erfið fyrirmynd

Nú hugsið þið sem lesið þetta eflaust sem svo: Af hverju í ósköp­unum finnur konan sér ekki vinnu? En málið er ekki svo ein­falt. Maðurinn minn, sem er vel mennt­aður og í góðu starfi, er alinn upp sam­kvæmt ævafornum sið. Mamma hans, kona á besta aldri, hefur aldrei unnið úti og hefur helgað líf sitt manni og börnum. Í fjöl­skyldu manns­ins míns er það talið til fyr­ir­myndar. Hún og mað­ur­inn hennar, bæði rétt rúm­lega fimm­tug, lifa líf­inu á sama hátt og amma og afi gerðu; hann kemur heim í hádeg­inu, borðar heitan mat sem bíður hans á dúk­uðu borði, ropar, leggst upp í sófa og fær sér blund.

Á meðan má eng­inn svo mikið sem hvísl­ast á. Að vinnu­degi loknum bíður hans kvöld­mat­ur­inn og á kvöldin sitja þau hjónin saman og horfa á sjón­varpið. Mér til mik­illar skelf­ingar komst ég fljót­lega að því að mað­ur­inn minn vill hafa sama hátt­inn á. Um leið og ég varð ófrísk krafð­ist hann þess að ég hætti að vinna.

Gæsahúð og óbragð í munni

Ég er satt að segja orðin dauð­hrædd um það að ég eigi eftir að verða eins og hún tengda­móðir mín. Hún kemur gjarnan í heim­sókn upp úr þurru, hringir og seg­ist vera á leið­inni og spyr aldrei hvernig standi á hjá mér. Hún þiggur kaffi og með­læti og á meðan talar hún enda­laust um það að hún skilji ekk­ert í því hvernig aukakílóin hlað­ist á hana. Hún sem borði bara hollan mat og fari í sund á hverjum degi.

„Ég er farin að fá gæsa­húð og óbragð í munn­inn þegar hún kemur í heim­sókn.“

Alltaf þegar eitt­hvað ger­ist í fjöl­skyld­unni þarf hún að segja sögur af sjálfri sér. Að eigin sögn séu hæfi­leik­arnir ótelj­andi, hún hafi alltaf verið best í öllu, að hennar sögn hafi alltaf verið til þess tekið hvað hún hafi fal­lega söng­rödd, hún hafi alltaf verið í aðal­hlut­verk­inu í skóla­leik­rit­unum og staðið fremst í öllu sem við­kom íþróttum.

Ég er farin að fá gæsa­húð og óbragð í munn­inn þegar hún kemur í heim­sókn og segir: „Gjugg í borg, er ein­hver heima?“ og svo kemur þessi dill­andi litlu­stelpu­hlátur sem smýgur í gegnum merg og bein.

Hrokafullur tengdapabbi

Tengdapabbi er alveg sér á parti. Hann er með eigin atvinnu­rekstur og mokar inn pen­ingum. En samt er ekki hægt að segja að þau hjónin lifi skemmti­legu lífi. Þau eiga reyndar hús­eignir hér­lendis og erlendis og aka um á flottum og dýrum bílum en þau fara sjaldan og nær aldrei út fyrir land­stein­ana. Það er vegna þess að tengda­mamma getur ekki hugsað sér að vera fjarri drengj­unum sínum þremur” sem allir eru giftir eða komnir í sam­búð.

Ein­hverra hluta vegna gengu þeir allir mennta­veg­inn, jafn­vel þótt tengdapabbi haldi því fram að menntun sé ekk­ert annað hroki og lestur bóka ekki til neins ann­ars fall­inn en að rugla fólk í rím­inu. Lista­menn eru að hans mati ónytj­ungar sem nenna ekki að vinna og lifa á styrkjum. Sjálf er ég mik­ill lestr­ar­hestur og menntuð á lista­braut­inni en ég er fyrir löngu farin að hafa vit á því að minn­ast ekki á bók­menntir og listir í nær­veru tengdapabba.

Erfitt að bæla skoðanir sínar

Það versta af öllu er sú stað­reynd að mað­ur­inn minn trúir hverju orði sem for­eldrar hans segja og skoð­anir þeirra eru skoð­anir hans. Hann tekur aldrei ákvörðun án þess að bera málið fyrst undir þau. Mamma hans hefur meira að segja aðgang að banka­reikn­ingnum hans og fylgist náið með því í hvað pen­ing­arnir okkar fara. Ég hins vegar reyni að berj­ast á móti og hafa mínar eigin skoð­anir.

„Mig dreymdi um að fara í eins árs fram­halds­nám en hann var fljótur að kæfa þann draum í fæð­ingu.“

Mér er það eft­ir­minni­legt þegar tengda­mamma hélt því fram að það væri stór­hættu­legt að hafa börn í bíl­stólum og það tók mig langan tíma að fá mann­inn minn til þess að skilja að því væri alveg öfugt farið. Annað gott dæmi um visku tengda­mömmu er full­vissa hennar um að breið­ari end­inn á stautum sem settir eru í enda­þarm veikra barna ætti að fara fyrstur inn. Það kost­aði nærri því handa­lög­mál þegar ég, í við­ur­vist tengda­mömmu og drengs­ins hans, hafði minn hátt­inn á.

Þú mátt!

Und­an­farið hef ég staðið í samn­inga­við­ræðum við mann­inn minn. Ég er að reyna að fá hann til að sam­þykkja að ég megi fara að nota hæfi­leika mína og menntun til ein­hvers ann­ars en að elda mat, halda heim­il­inu hreinu og hugsa um börnin. Dóttirin er komin í skóla og litli mað­ur­inn hefði gott að því að fara í leik­skóla og umgang­ast önnur börn. Dagarnir mínir verða sífellt lengri og inni­halds­laus­ari.

Ég ját­aði líka fyrir mínum heittelskaða að mig dreymdi um að fara í eins árs fram­halds­nám en hann var fljótur að kæfa þann draum í fæð­ingu. Hann sagði að ég hefði sjálf kosið að eign­ast mann og börn og ég yrði að haga lífi mínu eftir því. Að vel íhug­uðu máli hefur hann nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu og ég ,,megi” vinna hálfan dag­inn. Guð veit hvað tengda­for­eldrar mínir segja um þá ákvörðun. En kannski hann hafi gefið mér leyfið með þeirra sam­þykki. Það kæmi mér ekki á óvart.

Þolinmæðin þrautir vinnur allar

Ég er í raun­inni stein­hissa á sjálfri mér að vera ekki löngu búin að skilja við mann­inn minn og losna í leið­inni við tengda­for­eldra mína. En sann­leik­ur­inn er sá að ég get ekki hugsað mér að lifa án hans, þrátt fyrir það hvernig hann sér lífið í gegnum gler­augu for­eldr­anna.

Ég vil trúa því að með því að beita þol­in­mæð­inni geti ég fleytt mann­inum mínum inn í tutt­ug­ustu og fyrstu öld­ina. Sýnt honum fram á að hjón verða mun ham­ingju­sam­ari ef þau gefa hvort öðru lausan taum­inn og fá bæði að njóta sín. Ég get ekki hugsað mér að láta börnin mín alast upp í þeirri trú að konur hafi ekk­ert að segja um eigið líf. Það er ein­fald­lega gömul og löngu úrelt saga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una