Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Glæsilegt hús Kormáks og Skjaldar á Flateyri

Glæsilegt hús Kormáks og Skjaldar á Flateyri
Mynd/Unnur Magna

Þorpið Flateyri stendur á eyri skammt utan við Sólbakka og byggð­ist það upp vegna mik­illar sjó­sóknar við Önund­ar­fjörð. Fyrsta íbúð­ar­húsið á Flateyri var byggt um 1820 og árið 1823 var Flateyri orðin lög­gildur versl­un­ar­staður. Bergur Rósinkranzson hóf versl­un­ar­rekstur á Flateyri rétt fyrir alda­mótin 1900. Byggði hann sér tví­lyft timb­ur­hús við Hafn­ar­stræti 3 þar sem timbrið kom til­höggvið frá Noregi. Húsið var fyrst og fremst ætlað til versl­un­ar­rekst­urs en þar var líka íbúð sem Bergur bjó í um nokk­urra ára skeið. Árið 1905 byggði Bergur sér svo annað hús við Hafn­ar­stræti 1 og fékk það nafnið Bergshús.

Mynd/Unnur Magna

Í dag er Bergshús í eigu fjög­urra fjöl­skyldna, þar á meðal fjöl­skyldna Kormáks Geir­harðs­sonar og Skjaldar Sig­ur­jóns­sonar. Fjöl­skyld­urnar keyptu húsið árið 2016 og gerðu það upp. Börnin þeirra tengj­ast einnig sterkum vina­böndum og má segja að hóp­ur­inn sé eins og stór ítölsk fjöl­skylda. Aðspurð segj­ast þau ekki hafa mikil tengsl við Flateyri að öðru leyti en að eitt þeirra hafi haft annan fót­inn á staðnum frá ung­lings­aldri, sinnt þar vinnu að hluta og verið með sitt eigið hús. Kormákur er einnig með­limur KK-bands­ins sem stofnað var á staðnum fyrir margt löngu, en fyrir algera til­viljun þó, og Flateyri hefur alltaf verið heima­völlur bands­ins. Hin í hópnum segj­ast í besta falli eiga ein­hver fjar­skyld ætt­menni á svæð­inu sem breyti því þó ekki að þau hafa vanið komu sína á stað­inn í um það bil átta ár og líkað vel.

Mynd/Unnur Magna

Eig­end­urnir hófu end­ur­gerð húss­ins haustið 2016 og var hönn­unin aðal­lega í umsjá tveggja úr hópnum, þeirra Dýr­leifar Ýrar Örlygs­dóttur og Þórunnar Ásdísar Ósk­ars­dóttur. Þær segja að loka­út­koman hafi kannski ekki alveg verið fyr­ir­séð strax í upp­hafi en segja að grunn­hug­myndin hafi þó alltaf verið sú að sýna þessu sögu­fræga húsi virð­ingu en á sama tíma að skapa þar nota­legt heim­ili.

„Húsinu hafði verið breytt tölu­vert á átt­unda og níunda ára­tugnum og okkur lang­aði „að finna gamla húsið aftur.“ Við byrj­uðum á að fjar­lægja spóna­plötur, plast­par­ket og lofta­þiljur úr fyrsta rým­inu og viti menn; undir leynd­ist gamli pan­ell­inn og gömlu gólf­borðin. Síðan tók hvert rými við af öðru. Húsið tal­aði til okkar allan tím­ann og við bara hlýddum af fullri virð­ingu við þetta frá­bæra hús og sögu þess,“ segja þær.

Mynd/Unnur Magna

Í Bergs­húsi er hátt til lofts og vítt til veggja og segja þær að það hafi verið eitt af því sem heill­aði þær hvað mest við húsið. Áhersl­una lögðu þær á að skapa heim­ili þar sem öllum liði vel og hefur þeim svo sann­ar­lega tek­ist vel til og auð­velt er að skynja að and­inn í hús­inu er góður.

„Við tíndum til það sem við áttum í okkar fórum og pass­aði inn og fylltum svo upp í með hinu og þessu. Þetta er bara eins og að elda góða kássu. Við vorum ekk­ert að velta endi­lega fyrir okkur frá hvaða tíma­bili hlutir voru, bara að þeir hefðu sál eða karakter og myndu passa inn í húsið. Upp­lifunin átti umfram allt að vera til­gerð­ar­laus, heim­il­is­leg og afslöppuð.“

Nánari umfjöllun og fleiri myndir er að finna í 9.tbl. Húsa og híbýla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni