Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Enginn aðdragandi að því að ég missti sjónina“

„Enginn aðdragandi að því að ég missti sjónina“

Svavar Guð­munds­son sjáv­ar­út­vegs­fræð­ingur missti sjón­ina skyndi­lega haustið 2014 án þess að hægt væri að finna ástæðu þess. Það tók marga mán­uði að fá grein­ingu á sjúk­dómnum sem blind­unni olli, þrátt fyrir að sá sjúk­dómur sé arf­gengur.

Svavar segir fyrstu árin eftir að sjónin hvarf hafa verið mjög erfið en smám saman hafi hann farið að sætta sig við orð­inn hlut og fundið sköp­un­ar­gáf­unni útrás, þrátt fyrir allt. Hann vinnur nú að skrifum á bók­inni „Blindur á auga­bragði“ sem hann ætlar að ljúka við í vetur en hann hefur þegar sent frá sér nokkrar bækur, meðal ann­ars Sjón­prófs­bók­ina sem inni­heldur hug­leið­ingar og heil­ræði sem sett eru upp í gamla sjón­próf­inu.

„Það var eng­inn aðdrag­andi að því að ég missti sjón­ina,“ segir Svavar beð­inn að lýsa því sem gerð­ist, „nema þá kannski helst brjál­æð­is­leg utan­að­kom­andi streita. Ég á frændsystk­ini sem eru með arf­gengan augn­sjúk­dóm og hafa öll misst sjón­ina um tví­tugt en sjúk­dóm­ur­inn erf­ist í móð­ur­ætt og hvorki móðir mín né amma voru með hann þannig að það var ekki það fyrsta sem augn­lækn­unum datt í hug þegar þeir fóru að leita að ástæð­unni fyrir því að ég varð blindur. Þar að auki eru níu­tíu og fimm pró­sent fólks sem missir sjón­ina af völdum þessa sjúk­dóms á aldr­inum fimmtán til tutt­ugu og fimm ára þannig að það er mjög sjald­gæft afbrigði af sjald­gæfum sjúk­dómi að fá hann fjöru­tíu og sex ára gam­all.

„Það var eng­inn aðdrag­andi að því að ég missti sjón­ina, nema þá kannski helst brjál­æð­is­leg utan­að­kom­andi streita.“

Það var til dæmis tekin blóðprufa til að athuga hvort ég væri með erfða­gall­ann sem veldur þessum arf­genga sjúk­dómi og ég þurfti að bíða eftir nið­ur­stöð­unni í þrjá mán­uði því hún var send til Tékk­lands en hægt hefði verið að kom­ast að þess­ari nið­ur­stöðu hinum megin við göt­una á ein­ungis fjórum dögum. Loks kom í ljós að það hafði verið send blóðprufa úr röngum manni til rann­sóknar. Ég fékk reyndar afsök­un­ar­beiðni frá yfir­manni erfða­deildar Land­spít­al­ans, en svona á ekki að geta gerst. Og þetta er ekk­ert eina dæmið, það er mjög margt í sjúkra­sögu minni sem er algjör­lega galið en við geymum það þangað til bókin sem ég sagði þér frá kemur út.“

Vildi gleðja augnlækninn og aðra

Svavar gaf nýlega út bók þar sem sett eru upp nokkuð óhefð­bundin sjón­próf, segðu mér frá bók­inni þinni, hvernig kvikn­aði sú hug­mynd?

„Það kom nú til af því að mig lang­aði til að gleðja augn­lækn­inn minn,“ segir Svavar og brosir. „Hann er búinn að taka mig í svo mörg sjón­próf þannig að fyrsta sjón­prófið sem ég gerði var fyrir hann, hann hefur auk þess reynst mér frá­bær læknir enda með afburða sam­skipta­greind ólíkt mörgum í þeirri stétt. Menntun gerir þig ekki að mann­eskju, fólk verður að fara skilja þetta. Svo hélt ég ljós­mynda­sýn­ingu á bæj­ar­há­tíð í Vík í Mýrdal í fyrra og þar voru ljós­myndir mínar á öðrum veggnum en á veggnum á móti voru átta sjón­próf sem ég hafði búið til og eru núna í bók­inni Sjón, skynjun, skiln­ingur. Hug­myndin að bók­inni kom þannig til að fólk sem kom á sýn­ing­una sýndi sjón­prófs­heil­ræð­unum mik­inn áhuga og þau seld­ust upp svo að mér datt í hug að það væri snið­ugt að safna þeim saman í bók.“

Þegar lesið er úr sjón­próf­unum í bók­inni kemur í ljós að þau mynda hug­leið­ingar og heil­ræði, eru þau samin af þér sjálfum?

„Já, ég bý þetta allt til sjálfur,“ segir Svavar stoltur. „Það er tölu­verð kúnst að lesa úr sjón­próf­unum en fólk hefur virki­lega gaman af því að glíma við þau og mér finnst mjög skemmti­legt að takast á við þá ögrun að setja þessar hug­leið­ingar inn í það stranga form sem sjón­prófið krefst. Það er líka hægt að leika sér ótrú­lega mikið með orð sem tengj­ast sjón og augum, sem gefur þessu aukna vídd.“

Fólk býst ekki við bókaskrifum af blindum manni

Spurður hvernig honum hafi dottið í hug að fara að skrifa bækur segir Svavar að hann hafi langað til að sýna fram á að fatlað fólk gæti gert ýmis­legt sem eng­inn bygg­ist við af því og veita þannig öðrum fötl­uðum hvatn­ingu og inn­blástur til að hrinda því í fram­kvæmd sem þá langar að gera.

„Það er ekki það fyrsta sem manni dettur í hug þegar maður missir sjón­ina að fara að skrifa bækur,“ segir hann og glottir. „Það er senni­lega það síð­asta sem fólk býst við af blindum ein­stak­lingi en það er hægt með þeirri tækni sem við höfum í dag. Ég hugs­aði þetta líka sem hvatn­ingu fyrir aðra. For­dóm­arnir í sam­fé­lag­inu ganga út frá því að við sem erum fötluð getum fátt gert, sem er mik­ill mis­skiln­ingur og mig lang­aði að leggja mitt af mörkum til að opna augu fólks fyrir því að þeir sem búa við ein­hverja skerð­ingu, hver sem hún er, geta gert miklu fleira en sam­fé­lagið heldur. Og hafi mér tek­ist að opna augu ein­hverra fyrir því er ég ánægður.“

Myndir / Hallur Karlsson

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu