Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Opna veitingastað fyrir íslendinga – „Ekki hægt að treysta á ferðamenn“

Opna veitingastað fyrir íslendinga – „Ekki hægt að treysta á ferðamenn“
Eigendur Hosiló, f.v: Atli Ottesen, Aðal­steinn Ragnar Bene­dikts­son og Númi Þorkell Thom­as­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hug­myndin var alltaf sú að höfða til Íslend­inga, segir eig­andi nýs veit­inga­staðar sem opnar um næstu mán­aða­mót í Reykja­vík. Hann segir ekki hægt að stóla á ferða­mennsku í veit­inga­geir­anum en vissu­lega sé hún kær­komin búbót.

„Nei, svo sem ekki,“ segir Aðal­steinn Ragnar Bene­dikts­son, kokkur og eig­andi Hosiló, þegar hann er spurður hvort hann sé ekk­ert smeykur við að opna nýjan veit­inga­stað í þessu árferði. „Enda getur maður ekki og á ekki að treysta á að ferða­menn haldi veit­inga­stöðum uppi, þótt ferða­mennska sé vissu­lega kær­komin búbót. Þú vilt fá við­skipta­vini sem koma oftar en einu sinni. Þess vegna var hug­myndin alltaf sú að reyna að höfða til Íslend­inga.“

Það eru Aðal­steinn og félagar hans Atli Ottesen og Númi Þorkell Thom­as­son sem standa að baki Hosiló. Í þessum mán­uði hafa þeir verið að prufu­keyra mat­seðil stað­ar­ins um helgar og síðan verður Hosiló opn­aður með form­legum hætti í byrjun næsta mán­aðar. Með hlið­sjón af góðum við­brögðum bindur Aðal­steinn vonir við að staðnum verði vel tekið. „Fólk er rosa­lega ánægt með mat­inn. Það var reyndar sett út á eitt fyrsta kvöldið, veg­ansúkkulaði­kök­una, við flýttum okkur nú bara að bæta hana og síðan þá hafa allir verið mjög glaðir. Við­tök­urnar hafa eig­in­lega farið langt fram úr björt­ustu vonum,“ segir hann léttur í bragði.

„Þú vilt fá við­skipta­vini sem koma oftar en einu sinni. Þess vegna var hug­myndin alltaf sú að reyna að höfða til Íslend­inga.“

En hvers konar matur er í boði? „Við leggjum í raun áherslu á minni mat­seðla, þriggja rétta mat­seðil en ekki smá­rétti. Það verða sex til tíu réttir á mat­seðli og mat­seð­ill­inn breyti­legur eftir árs­tíðum og fram­boði hrá­efnis. Með öðrum orðum vinnum við með þau hrá­efni sem eru í boði hverju sinni og gerum það sem okkur finnst gott og gaman að gera. Hráefnið verður þar af leið­andi alltaf ferskt. Við eig­end­urnir höfum síðan allir ákveð­inn bak­grunn í mið- og suð­ur­evr­ópskri mat­ar­gerð og verðum hlið­hollir henni að ein­hverju leyti. Við ætlum þó alls ekki að ein­skorða okkur við hana, það verður ýmis­legt fleira gott í boði,“ segir hann og kímir.

Kynntust á sögufrægum stað

Aðal­steinn, Atli og Númi hafa allir verið við­loð­andi veit­inga­geir­ann í áraraðir en leiðir þeirra lágu fyrst saman fyrir átján árum á hinum sögu­fræga veit­inga­stað, kaffi­húsi og skemmti­stað Cafe Oliver, sem var lengi til húsa við Laugaveg 20 a. Síðast unnu þeir saman á veit­inga­staðnum Snaps. Hvað varð til þess að þeir ákváðu loks að söðla um eftir öll þessi ár og opna eigin stað? „Ástæðan er ein­föld. Eftir að hafa unnið undir öðrum í átján ár fannst okkur bara orðið tíma­bært að opna eigin stað og hafa frjálsar hendur, okkur fannst bara tæki­færið vera núna, svona áður en við verðum of gamlir,“ segir Aðal­steinn og skellir upp úr.

Núna eða aldrei

„Nú getum við gert það sem við höfum gaman af og þar sem stað­ur­inn er ekki stór, tekur bara 23 gesti í einu miðað við núver­andi sótt­varna­reglur, en ann­ars 30, þá getum við boðið upp á fersk hrá­efni og höfum svig­rúm til að breyta mat­seðl­inum reglu­lega, sem gerir þetta fer­lega skemmti­legt. Við erum bara þrír að vinna á staðnum þannig að það er engin rosa­leg yfir­bygg­ing í gangi hérna. Í algjörri hrein­skilni fengum við þetta hús­næði með frekar stuttum fyr­ir­vara,“ við­ur­kennir hann, „og ákváðum bara að skella okkur á þetta.“

Hosiló opn­aður með form­legum hætti í byrjun næsta mán­aðar. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Óttast ekki samanburð við Dill

Talandi um það, þá vekur stað­setn­ingin, Hverf­is­gata 12, óneit­an­lega athygli. Dill var þar áður til húsa og naut mik­illa vin­sælda. Eru félag­ar­anir ekki hræddir um að Hosiló verði bor­inn saman við þann stað? „Nei, alls ekki,“ segir Aðal­steinn rólegur, „enda er hús­næðið í raun það eina sem tengir þessa tvo staði. Dill er auð­vitað mjög flottur staður, en við erum ekki að elt­ast við það sem gert er þar. Matseldin er ger­ó­lík. Við leggjum áherslu á að fólk hafi það á bak við eyrað, mæti hingað með opnum huga, njóti mat­ar­ins og hafi gaman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni