Í byrjun árs voru innflytjendur á Íslandi rúm 15 prósend mannfjöldans. Alls eru innflytjendur hér á landi 55.354 talsins sem er fjölgun frá árinu áður. Á síðustu átta árum hefur fjöldi innflytjenda nánast tvöfaldast á Íslandi.
Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofunnar. Árið 2012 voru innflytjendur átta prósent mannfjöldans á meðan þeir eru 15.2 prósent allra í dag. Samkvæmt skilgreiningu Hagstofunnar er innflytjandi einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra, báða afa og ömmur, sem öll eru fædd erlendis.
Líkt og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennastir meðal innflytjenda hérlendis. Af heildarfjöldanum eru rúmlega 20 þúsund Pólverjar eða því sem nemur 37 prósent allra innflytjenda. Næstir koma einstaklingar frá Litháen og Filippseyjum.
Eins og áður sagði eru innflytjendur nú orðnir rúm 15 prósent mannfjöldans á Íslandi. Það hlutfall hækkar talsvert þegar aðeins er horft til Suðurnesja. Þar búa nú tæp 65 prósent allra innflytjenda á landinu eða nærri 28 prósent allra þeirra íbúa sem á svæðinu búa. Á Vestfjörðum er hlutfall innflytjanda næsthæst eða tæp 20 prósent mannfjöldans.































Athugasemdir