Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Farsímasamband fjölskyldunnar rofnaði skyndilega – Jóhann kannast ekki við klúður SR-sveitar

Farsímasamband fjölskyldunnar rofnaði skyndilega – Jóhann kannast ekki við klúður SR-sveitar
Jóhann var frétta­maður á Stöð 2.

Vinir egyp­sku fjöl­skyld­unnar segja að far­síma­sam­band við þau hafi rofnað skyndi­lega í gær, um svipað leyti og mót­mæli fóru fram í miðbæ Reykja­víkur. Þeir sem Mannlíf hafa rætt við segja að þeir hafi jafn­vel ótt­ast í fyrstu að lög­reglan hafi tekið þau úr umferð. Nú virð­ast aðrir vinir þó hafa komið þeim til bjargar. Svokölluð „stoð­sveit“ lög­regl­unnar fann ekki fjöl­skyld­una í morgun þegar það átti að fleygja þeim úr landi.

Jóhann K. Jóhanns­son, sam­skipta­stjóri hjá almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, kann­ast ekki við í sam­tali við blaða­mann Mannlífs að hvarf fjöl­skyld­unnar sé klúður.  Hann kom af fjöllum í fyrstu og sagð­ist ekk­ert vita. Seinna í morgun þegar sam­band náð­ist við hann vildi hann ekk­ert tjá sig um málið og vís­aði ítrekað í frétta­til­kynn­ingu sem hann sendi út í morgun. Hann vildi ekk­ert segja um hversu víð­tæk leitin af fjöl­skyld­unni væri en gaf í skyn að þau væru jafn­vel farin úr landi.

Yfirvöld hafa verið á flótta í allan morgun vegna máls­ins. Eldsnemma í morgun átti stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, SR, að sækja Kehdr-fjöl­skyld­una á Ásbrú og framan af fékkst ekki stað­fest hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra hvort þau hafi verið sótt og þeim fylgt út á flug­völl.

Nú hefur Jóhann gefið út nýja til­kynn­ingu, en þó ekki um hvarf fjöl­skyld­unnar. Til­kynn­ingin hljóðar svo:

Vegna full­yrð­inga Magnúsar D. Norðdahl, lög­manns egypskrar fjöl­skyldu sem sótti um alþjóð­lega vernd á Íslandi, um að Þor­steinn Gunn­ars­son sviðs­stjóri Útlend­inga­stofn­unar hefði ekki farið með rétt mál í Kast­ljósi í gær­kvöldi vill stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra koma eft­ir­far­andi á fram­færi.

Það er ekki rétt að stoð­deild ríkilög­reglu­stjóra hafi haft sex vikur til að flytja fjöl­skyld­una úr landi á gildum skil­ríkjum. Beiðni um fram­kvæmd ákvörð­unar barst stoð­deild frá Útlend­inga­stofnun þann 13.1.2020, tveimur vikum áður en skil­ríki tveggja fjöl­skyldu­með­lima runnu út (28.1.2020).

Úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála sem stað­festi ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að synja fjöl­skyld­unni um vernd var birtur 18. nóv­em­ber 2019. Fjöl­skyld­unni var veittur 30 daga frestur til sjálf­viljugrar heim­farar sem rann út 18. des­em­ber. Í milli­tíð­inni óskaði fjöl­skyldan eftir því að kæru­nefnd útlend­inga­mála frestaði rétt­ar­á­hrifum úrskurð­ar­ins til að fara með málið fyrir dóm­stóla en þeirri beiðni var hafnað af kæru­nefnd 10. jan­úar.

Þegar ljóst var að fjöl­skyldan hygð­ist ekki fara sjálf­viljug til heima­lands og að rétt­ar­á­hrifum yrði ekki frestað vís­aði Útlend­inga­stofnun mál­inu til stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra til fram­kvæmdar með beiðni dag­settri 13.1.2020.

Ekki var unnt að skipu­leggja flutn­ing fjöl­skyld­unnar til heima­lands á þeim tveimur vikum sem skil­ríki allra fjöl­skyldu­með­lima voru gild. Slíkar fylgdir krefj­ast lengri und­ir­bún­ings sem meðal ann­ars felst í því afla heim­ilda fyrir íslenska lög­reglu­menn til að ferð­ast til og í gegnum þau ríki sem ferða­leiðin gerir kröfu um.

Vinna við und­ir­bún­ing fylgd­ar­innar hófst eftir að málið kom á borð stoð­deildar og var strax ljóst að afla þyrfti gildra skil­ríkja, annað hvort með fram­leng­ingu eða útgáfu nýrra skil­ríkja. Stoð­deild átti í sam­skiptum við lög­mann fjöl­skyld­unnar um þessa stöðu og tók hún þá ákvörðun að óska ekki eftir fram­leng­ingu vega­bréf­anna eins og þegar hefur komið fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina