Bláa Lónið auglýsir nú fyrir Íslendinga endurnærandi helgi hjá sér. Um er að ræða þriggja daga slökun í töfrandi umhverfi. Verðið á manninn eru 172.600 krónur, miðað við tvo í herbergi.
Inni á Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar er að skapast eldheitar umræður um þetta tilboð Bláa lónsins. Til umræðunnar stofnar Hjördís Vilhjálmsdóttir. „Þurfa fyrirtæki ekki að leggja sig aðeins betur fram til að fá fólk til að koma og bjóða þá upp á þjónustu á íslensku þegar verið er að reyna að ná í viðskiptavini hér á landi og verðið frá litlar 172 þúsund á mann í 2 nætur?? Verð frá 172.600 kr. per einstakling, miðað við tvo í herbergi. Fyrirlestrar um heilsu og hreysti fara fram á ensku,“ segir Hjördís.
Skúli Rúnar Reynisson baklendingur bendir á að hægt er að nota ferðagjöfina til að greiða fyrir tilboðið. „Með ferðagjöf er þetta bara 335.200 krónur,“ segir Skúli Rúnar sem á þar við sameiginlegt verð fyrir tvo.
Jón Jóhannesson tekur einnig þátt í umræðunni og segir ljóst inn á hvaða þjóðfélagshóp Bláa lónið stílar tilboðið. „Væntanlega er þessi viðburður stílaður inn á ríka og fallega fólkið og það talar allt afburða góða ensku,“ segir Jón og bætir því við að hann skilji illa gagnrýni á viðburðinn.
Berglind Magnúsdóttir bendir á að hellingur sé innifalinn í tilboðinu. „Næ ekki alveg þessu nöldur og tuð dæmi. Aldrei er tuðað um fyrirtækin sem selja svo fáránlega dýra sófa að þeir kosti hvítuna úr augunum eða bíla upp á margar miljónir. Þetta er magnað hótel og hellingur innifalinn,“ segir Berglind.
Ert þú með ábendingu um neytendamál? Sendu póst á [email protected].































Athugasemdir