Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vilja hafa af láglaunafólki 288 þúsund krónur – „Verður mætt af hörku sem ekki hefur áður sést“

Vilja hafa af láglaunafólki 288 þúsund krónur – „Verður mætt af hörku sem ekki hefur áður sést“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son

Samkvæmt lífs­kjara­samn­ingnum svo­kall­aða eiga félags­menn VR að hljóta almenna launa­hækkun upp á 15.750 krónur frá næstu ára­mótum. Það gera nærri 190 þús­und krónur á ári sem atvinnu­rek­endur vilja því sleppa við að greiða launa­fólki sínu. Lægstu taxtar hækka hins vegar enn frekar eða því sem nemur 24 þús­undum á mán­uði frá ára­mótum. Það þýðir að atvinnu­rek­endur vilja sleppa því að borga sínum lægst­laun­uðu 288 þús­und á ári.Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er afar ósáttur við full­yrð­ingar þess efnis að ekki sé inni­stæða fyrir launa­hækk­unum kjara­samn­inga um ára­mótin. Hann segir mál­flutn­ing­inn ein­fald­lega óboð­legan.

Mál­flutn­ing­ur­inn sem hér um ræðir eru skrif Þor­steins Víglunds­sonar, for­stjóra Eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins, í Frétta­blaðið. Þar segir hann for­sendur kjara­samn­inga brostnar enda ráði atvinnu­lífið ekki við þær launa­hækk­anir sem samið hefur verið um vegna Covid-krepp­unnar. Þor­steinn segir inni­stæðu­lausar launa­hækk­anir aðeins auka atvinnu­leysi og verð­bólgu. Áhyggju­efni sé að við þessar kring­um­stæður virð­ist for­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar ætla að stinga höfð­inu í sand­inn að mati ráð­herr­ans fyrr­ver­andi.

mörg fyr­ir­tæki eru með metaf­komu

Ragnar Þór bendir á að Þor­steinn er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri SA og reki í dag BM Vallá sam­steypuna sem skili lík­lega metaf­komu í kór­ónu­veiru­far­ald­inum. „Þessi mál­flutn­ingur er algjör­lega óboð­legur, sér­stak­lega kom­andi úr þeirri átt að þarna talar stjórn­andi öfl­ugrar fyr­ir­tækja­sam­steypu. Ég reikna með því að hans fyr­ir­tæki, önnur fyr­ir­tæki í bygg­inga­geir­anum og versl­anir almennt séu að skila metaf­komu. Þau hafa því sann­ar­lega burði til að standa undir þessumhækk­unum,“ segir Ragnar Þór.
Ragnar við­ur­kennir að á verka­lýðs­hreyf­ing­una hafi und­an­farið verið mik­ill þrýst­ingur frá atvinnu­rek­endum að falla frá launa­hækk­unum um ára­mótin. Hann segir það kýr­skírt að svo verði alls ekki gert. „Það gengur ekki öllum fyr­ir­tækjum vel en mörg fyr­ir­tæki eru með metaf­komu. Þó svo að sum stærri fyr­ir­tækja séu kannski að skila minni hagn­aði eru þau sann­ar­lega ekki rekin með tapi. Menn eiga ekki að fara af lím­ing­unum þó að svo sé því afkoma fyr­ir­tækja getur sveifl­ast og þetta bitnar ekki á ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­unum núna því þau eru flest ekki með starfs­fólk á launa­skrá,“ bendir Ragnar Þór á og bætir við:

„Við erum að eiga við gríð­ar­lega erfitt ástand í sam­fé­lag­inu. Við skulum ekki gleyma því að hér hefur verið lækkun vísi­tölu og veik­ing á gengi. Verð­lags­hækk­anir hafa verið gríð­ar­legar hjá birgjum og versl­unum. Þá má heldur ekki gleyma því að þegar lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var gerður hlífðum við atvinnu­líf­inu vegna þeirra aðstæðna sem uppi voru eftir fall WOW. Þær hækk­anir sem eiga að koma inn núna eru til að vinna upp þá eft­ir­gjöf.“

Ragnar Þór er því sann­færður um að inni­stæða sér fyrir launa­hækk­unum í þjóð­fé­lag­inu. Ekki sé ein­ungis fyrir þeim inni­stæða heldur séu þær ein­fald­lega lífs­nauð­syn­legar á þessum tíma­punkti. „Þessi hækkun verður ekki gefin eftir, ekki króna. Það get ég sagt strax. Ef atvinnu­lífið ætlar að fara í enn eitt stríðið gagn­vart verka­lífs­hreyf­ing­unni þá mun ekki standa á okkur að taka mjög harka­lega á móti. Það verður gert af hörku sem hefur ekki sést hér áður. Það get ég sann­fært ykkur um,“ segir Ragnar Þór og bætir því við að honum finn­ist það algjört glapræði að farið verði í átök á vinnu­mark­aði í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. „Hjá okkur er engin stemn­ing að fara í átök á þessum tíma­punkti því átökum og óvissu fylgir ákveðin stöðnun. Hér mun allt fara í áður óþekkt frost ef við missum kjara­samn­inga úr hönd­unum. Ábyrgð atvinnu­lífs­ins er því mjög mikil á því hvernig þeir tala, sér­stak­lega þegar ummæli eins og þessi stand­ast ekki nokkra skoðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við