Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ragnar segir Fréttablaðið standa fyrir herferð gegn sér: „Staðfesta að við erum á hárréttri leið“

Ragnar segir Fréttablaðið standa fyrir herferð gegn sér: „Staðfesta að við erum á hárréttri leið“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir nóg komið og vill Samtök atvinnu­lífs­ins úr stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna. Í pistli sem hann birtir á Facebook og má lesa í heild sinni hér fyrir neðan segir hann Guðrúnu Haf­steins­dóttir, eig­anda Kjörís, dylgja um sig. Hann full­yrðir enn fremur að Frétta­blaðið sé mis­notað í þeim til­gangi að koma höggi á sig. Ragnar seg­ist ekki ætla að taka því hljóða­laust.

Pistill Ragnars í heild sinni

Um leið og ég fagna því að Icelandair sé komið fyrir vind óska ég starfs­fólki og stjórn­endum félags­ins inni­lega til ham­ingju með vel heppnað útboð og ein­læga von mína að áætl­anir félags­ins stand­ist og gangi eftir.

Ég vil hins­vega koma eft­ir­far­andi á fram­færi vegna ummæla og ásak­ana í minn garð, stjórnar VR og stjórn­ar­manna okkar hjá LIVE eftir þá ákvörðun líf­eyr­is­sjóðs­ins okkar að taka ekki þátt í nýaf­stöðnu og vel heppn­uðu hluta­fjár­út­boði Icelandair.

Það er með miklum ólík­indum hvernig Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða og vara­for­maður stjórnar LIVE, hefur stigið fram með ásak­anir og dylgjur vegna þeirrar ákvörð­unar LIVE að taka ekki þátt í hluta­fjár­út­boð­inu.

Forsaga máls­ins er sú að þegar stjórn­endur Icelandair tóku þá ákvörðun að brjóta lög um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur, og gera þannig aðför að samn­ings­rétti allra stétt­ar­fé­laga, tók stjórn VR, sem einnig á sæti í full­trúa­ráði LIVE, þá ákvörðun um að lýsa yfir and­stöðu sinni við að stjórn LIVE tæki þátt í væntu hluta­fjár­út­boði Icelandair, með áskorun á stjórn­ar­menn LIVE.

Stað­reyndin er sú að það stríðir gegn sam­þykktum sjóðs­ins að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem brjóta á rétt­indum launa­fólks. Það er alveg skýrt og varla nokkur sem and­mælir því. Þannig vorum við í fullum rétti til að beina þeim til­mælum til stjórn­ar­manna sjóðs­ins um að brjóta ekki gegn sam­þykktum sjóðs­ins.

Tala nú ekki um það lögvarða frelsi sem við tökum okkur til að hafa skoðun á þessu máli sem og öðrum. Eitt af hlut­verkum full­trúa­ráðs LIVE, sem stjórn VR situr í, er að vera stjórn sjóðs­ins ráð­gef­andi, sem við gerðum.

Síðan ger­ist það að samn­ingar nást og stjórn­endur draga til baka þá veg­ferð sem þeir hófu gegn samn­ings­rétti launa­fólks og sættir náð­ust í mál­inu og fyrri yfir­lýs­ingar for­manns og stjórnar VR dregnar til baka.

Ekki nóg með það lýstum við yfir fullu trausti til starfs­manna og stjórn­ar­manna LIVE. Það traust er til staðar hver sem nið­ur­staðan hefði orðið.

Hvorki for­maður eða stjórn VR höfðu nokkuð um það að segja hver nið­ur­staðan yrði.
Til að toppa málin var svo skrifað undir sam­eig­in­lega frið­ar­yf­ir­lýs­ingu milli SA, ASÍ og Icelandair við upp­haf hluta­fjár­út­boðs­ins.

Þrátt fyrir þetta virð­ist atvinnu­rek­enda arm­ur­inn vera gjör­sam­lega far­inn á taugum. Þau eru ekki vön því að fá spurn­ingar eða nokkra mót­spyrnu þegar kemur að því að dæla pen­ingum í mis­gáf­aðar fjár­fest­ingar í atvinnu­líf­inu.

Þau hafa haft eft­ir­launa­sjóði almenn­ings nokkurn veg­inn útaf fyrir sig án mik­illar mót­spyrnu frá full­trúum launa­fólks.

Guðrún Haf­steins­dóttir ræðst með ótrú­lega sví­virði­legum hætti að minni per­sónu og full­trúm okkar í stjórn LIVE, starfs­heiðri þeirra og trú­verð­ug­leika.

Sömu full­trúa og fjár­mála­eft­ir­litið hefur metið hæfa til að gegna störfum sínum eftir bestu sann­fær­ingu og þeim reglum og lögum sem gilda um hæfi stjórn­ar­manna.

Hún gerir það tor­tryggi­legt hvar stjórn­ar­menn okkar starfa, eða sitja í stjórn stétt­ar­fé­lags, þegar hún sjálf er eig­andi Kjörís og hefur gengt trún­að­ar­störfum fyrir Samtök iðn­að­ar­ins um ára­bil.

Yfir­lýs­ing Guðrúnar Haf­steins­dóttur á Visi.is þann 18.sept­em­ber síð­ast­lið­inn.
Þess vegna studdi ég að við færum þar inn og ég harma þessa nið­ur­stöðu.“ Sjóð­ur­inn hefði þurft að kaupa fyrir 2,4 millj­arða til að halda sínum hlut eftir fjör­tíu ára stuðn­ing við félagið.

„Eignir Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna núna eru í kringum 950 millj­arðar. Þannig að þetta hefði þá verið 0,2 pró­sent af eigna­safni sjóðs­ins sem við hefðum þá lagt til í þessu útboði,“ segir Guðrún Haf­steins­dóttir.

Í ljósi stöðu sinnar og fyrri yfir­lýs­inga hlýtur fjár­mála­eft­ir­litið að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að Guðrún Haf­steins­dóttir sé van­hæf til að sitja í stjórn líf­eyr­is­sjóðs með því að rétt­læta fjár­fest­ingu í Icelandair vegna þess hversu lítið hlut­fall hún er af heild­ar­eignum.

Og með því að lýsa því yfir að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafa stutt við félagið í 40 ár og gefa þannig í skyn að fag­leg sjón­ar­mið ríki ekki heldur „stuðn­ingur“ við mik­il­vægt fyr­ir­tæki í atvinnu­líf­inu.

Einnig hefur Guðrún lýst þeirri skoðun sinni sinni að vegna „sögu­legra“ sjón­ar­miða um ávöxtun sé rétt að taka þátt og það sé mik­il­vægt að fjár­festa í Icelandair til að verja störf.
Guðrún hefur áður lýst því yfir að það sé lög­boðin skylda stjórn­ar­manna að hámarka arð­semi fjár­fest­inga ein­göngu.

Ekkert að ofan­sögðu stenst nokkra skoðun, sam­þykktir sjóðs­ins, fjár­fest­ing­ar­stefnu hans eða lög sem gilda um fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða.

Þess vegna skora ég á fjár­mála­eft­ir­litið að taka ummæli Guðrúnar Haf­steins­dóttur til skoð­unar og meta hana óhæfa til að taka ákvarð­anir um fjár­fest­ingar fyrir hönd sjóð­fé­laga LIVE.

Einnig lýsi ég yfir van­trausti á Guðrúnu Haf­steins­dóttur til að gegna stöðu vara­for­manns stjórnar LIVE og For­mennsku í Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða.

Eft­ir­far­andi spurn­ingar standa eftir:

Hvað telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­anda Kjörís, rétt­læt­an­legt hlut­fall af heild­ar­eignum líf­eyr­is­sjóða fari í fjár­fest­ingar sem metnar eru of áhættu­samar til að taka þátt í?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, að fjár­mála­eft­ir­litið ætti að skoða fleiri sjóði eins og Frjálsa, Birtu og Festu, sem ekki tóku þátt í útboð­inu og telur hún að fjár­mála­eft­ir­litið þurfi að skoða sér­stak­lega ákvarð­anir stjórna og starfs­fólks þeirra sjóða?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, þá stað­reynd að aðeins 2 af 5 stærstu hlut­höfum Icelandair sem ákváðu að taka þátt í útboð­inu benda til þess að áhættan hafi verið of mikil eða ann­ar­leg sjón­ar­mið hafi staðið þar að baki?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, að Fjár­mála­eft­ir­litið þurfi einnig að skoða ákvarð­anir þeirra sem vildu taka þátt og þeirra sjóða sem tóku þátt í útboð­inu?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, að Fjár­mála­eft­ir­litið þurfi að skoða íhlutun hennar sjálfra ,sem for­mann Land­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, að sam­komu­lagi sem var gert við Seðla­bank­ann um að líf­eyr­is­sjóð­irnir væru settir í gjald­eyr­is­höft á meðan aðrir fjár­festar komust út?

Og hvaða laga­legu for­sendur lágu að baki?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, rétt­læt­an­legt að líf­eyr­is­sjóðir kæmu til bjargar sínu eigin fyr­ir­tæki vegna þess að það hafi svo langa sögu eða sé svo lítið hlut­fall af heild­ar­eignum eða til að verja störfin?

Getur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, bent á hvaða laga­for­sendur og sam­þykktir styðja við fyrri yfir­lýs­ingar og það sem að ofan er rakið?

Þessi ofsa­fengnu við­brögð sem við höfum fengið frá valda­blokk atvinnu­lífs­ins er svo lýsandi og afhjúp­andi um það ástand og vinnu­brögð sem þrif­ist hafa ára­tugum saman innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins þar sem atvinnu­lífið hefur gengið um á skítugum skónum og fara nú á taugum yfir því að loks­ins, já loks­ins sé armur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að skipa inn nægi­lega hæfa ein­stak­linga til að meta hverja fjár­fest­ingu út frá fag­legum for­sendum en ekki frænd­hygli, póli­tík,sér­hags­muna eða til­finn­inga.

Ég fékk ábend­ingu þess efnis fyrir nokkrum dögum að Frétta­blaðið ætl­aði í her­ferð gegn mér og stjórn­ar­mönnum okkar hjá LIVE. Þetta fékk ég eftir nokkuð áræð­an­legum heim­ildum svo ekki sé meira sagt.

Það varð raunin enda Frétta­blaðið nú upp­fullt af dylgjum í minn garð og þeirra sem sitja fyrir okkar hönd í stjórn LIVE.

Þannig var ég við öllu búinn í þeim efnum því einn aðal­eig­andi Frétta­blaðs­ins, Helgi Magn­ús­son fjár­festir, á sér einmitt langa og lit­ríka sögu innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, sem fjár­festir, stjórn­ar­maður og for­maður stjórnar LIVE og Samtaka iðn­að­ar­ins eða alveg þangað til að bak­land sjóðs­ins fékk nóg og bol­aði honum út.

Það verður gaman að rifja þann tíma upp á næstu miss­erum og er af nógu að taka.
En þetta mál und­ir­strikar mik­il­vægi þess að aftengja atvinnu­lífið frá stjórnum líf­eyr­is­sjóða og við verðum að hefja vinnu við það að ákvörð­un­ar­valdið við stórar fjár­fest­ingar og skipun í stjórnir sjóð­anna verði alfarið í höndum sjóð­fé­lag­anna sjálfra.

Atvinnu­lífið og aðrir tals­menn sér­hags­muna sem hafa litið á eft­ir­launa­sjóði almenn­ings sem fé án hirðis ganga nú vask­lega fram í að krefja eft­ir­lits­að­ila og lög­gjafann um að taka til skoð­unar „skoð­anir“ þeirra sem voru á móti því að fjár­festa í einum áhættu­mesta atvinnu­rekstri sem um getur.

Á meðan skoð­anir þeirra sem vildu taka þátt eru góðar og gildar og þarfn­ast ekki frek­ari skoð­unar af hálfu eft­ir­lits­að­ila.

Þessi ofsa­fengnu við­brögð og afhjúpum þeirra sem valdið hafa, stað­festa að við erum á hár­réttri leið.

Leið sem von­andi færir valdið til síns heima. Til þeirra sem eiga þessa pen­inga en hafa minnst um það að segja hvernig þeim er ráð­stafað.

Vin­sam­lega deildu ef þú vilt Samtök atvinnu­lífs­ins úr stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina