Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skuldarar smálána blekktir með „kostaboði“: Eigandi Almennrar innheimtu ítrekað áminntur

Skuldarar smálána blekktir með „kostaboði“: Eigandi Almennrar innheimtu ítrekað áminntur

Almenn inn­heimta kepp­ist þessa dag­ana við að senda skila­boð til fólks sem tekið hefur smá­lán, sem til inn­heimtu eru hjá fyr­ir­tæk­inu. Um er að ræða staðl­aðan texta þar sem lán­tak­endum er boðið að greiða upp heild­ar­skuld með ein­greiðslu undir for­merkjum „ein­greiðslu­til­boðs“. Í text­anum kemur jafn­framt fram að allur áfall­inn kostn­aður tengdur skuld­inni falli niður.

Svona hljóma skila­boðin frá fyr­ir­tæk­inu, sem oft eru send með tölvu­pósti:

Skila­boðin frá Almennri inn­heimtu

Tilboðið ekki endanlegt uppgjör

Neyt­enda­sam­tökin benda á málið og segja lán­tak­endur sem leitað hafa til sam­tak­anna hafa lagt þann skiln­ing í til­boðið að sé að ræða end­an­legt upp­gjör á öllum útistand­andi kröfum, enda sér­stak­lega kveðið á um fjár­hæð „heild­ar­skuld­ar­innar“ og ekki koma fram neinar upp­lýs­ingar um kröfu­númer í text­anum.

„Það hafa tugir skuld­ara haft sam­band við okkur vegna þess­ara skila­boða frá Almennri inn­heimtu,“ segir Breki Karlsson for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna í sam­tali við Mannlíf.

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna

Í öllum mál­unum sem sam­tök­unum hefur borist tengdum „ein­greiðslu­til­boð­inu“ hafa útistand­andi kröfur verið fleiri en ein. Heild­ar­fjár­hæð allra útistand­andi krafna er þar með mun hærri en sem nemur þeirri fjár­hæð sem kemur fram í til­boð­inu. Lán­tak­endur eru því flestir undir því yfir­skini að um kosta­boð sé að ræða þar sem dágóður afsláttur yrði veittur gegn upp­greiðslu krafn­anna.

Í ljósi umdeildra og á tíðum ólög­mætra starfs­hátta Almennrar inn­heimtu hvöttu Neyt­enda­sam­tökin lán­tak­endur til að fá nán­ari skýr­ingar á þessu „kosta­boði“. Í ljós kom að ein­ungis er verið að bjóða afslátt af einni kröfu en ekki heild­ar­skuld­inni. Orðalag „ein­greiðslu­til­boðs­ins“ er að mati sam­tak­anna afar vill­andi þar sem auð­veld­lega má mis­skilja orða­lag um heild­ar­skuld sem allar útistand­andi kröfur.

Eftirlitslausar innheimtuaðferðir

„Þetta eru inn­heimtu­að­ferðir sem við höfum ekki kynnst hjá nokkru öðru fyr­ir­tæki. Okkar skjól­stæð­ingar fá ekki kröfur sund­ur­lið­aðar. Lög­gjöfin í kringum smá­lánin er út í hött og fyr­ir­tækið er í raun eft­ir­lits­laust og getur nán­ast vaðið uppi eins og þeim sýn­ist því miður,“ segir Breki í sam­tali við Mannlíf.

„Fyr­ir­tækið er rekið á kenni­tölu eins lög­manns og er því undir eft­ir­liti Lög­manna­fé­lags­ins, en ekki undir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eins og önnur inn­heimtu­fyr­ir­tæki. Lög­manna­fé­lagið hefur ítrekað áminnt eig­anda Almennrar inn­heimtu, en ekk­ert ger­ist.“

Breki segir Neyt­enda­sam­tökin vilja breyt­ingu og að sama eft­ir­lit eigi að gilda um starf­semi Almennrar inn­heimtu eins og önnur fyr­ir­tæki í sama geira.

„Varðandi smá­lánin í heild sinni hafa hund­ruðir haft sam­band við okkur, en varð­andi þetta „kosta­boð“ eru það ein­hverjir tugir,“ segir Breki. Bætir hann við að fyr­ir­tækið svari ekki Neyt­enda­sam­tök­unum. „Þegar við reynum að hafa sam­band við Almenna inn­heimtu þá er okkur ekki svarað. Það er eins og þeir þori ekki að taka upp sím­ann þegar hringt er úr síma Neyt­enda­sam­tak­anna, sem sýnir líka hvað þeir telja sig hafa að fela.

Greiðsla inn á smálán rýfur fyrningarfrest

Breki bendir á að með greiðslu inn á smá­lána­kröfu þá rýfur skuld­ari fyrn­ingu kröf­unnar. „Við höfum séð dæmi um fyrn­ing­ar­frest sem er rof­inn og líka ólög­leg lán sem hafa verið sett í inn­heimtu, jafn­vel þó að skuld­ari hafi sett inn beiðni um skulda­jöfnun. Það er ef skuld­ari telur sig hafa greitt of mikið, þá getur hann lýst yfir skulda­jöfnun. Þrátt fyrir það þá halda þeir áfram að rukka inn kröf­una. Við erum með mýmörg dæmi um það að fólk hafi greitt allt of mikið og því miður reyn­ist erfitt að inn­heimta það eða fá til baka.“

Þar sem Neyt­enda­sam­tökin hafa séð mörg dæmi  um að Almenn inn­heimta inn­heimti ólög­mæt lán, og hafi þar að auki sett him­in­háan inn­heimtu­kostnað ofan á slíkar kröfur, vara þau fólk við að taka „kosta­til­boð­inu“ nema ljóst sé að við­kom­andi skuldi raun­veru­lega höf­uð­stól lán­anna.

Breki bendi skuld­urum smá­lána að leita aðstoðar og ráð­gjafar hjá Neyt­enda­sam­tök­unum áður en samið er eða greitt inn á kröfur vegna smá­lána.

Neyt­enda­sam­tökin eru á Hverf­is­götu 105, sími 545-1200, net­fang [email protected].

Almennir opn­un­ar­tímar eru:
Félags­menn:
Mánud. – fimmtud.: 10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00
Föstu­dagar: 10.00-12.00

Utan­fé­lags­menn:
Fimmtu­dagar: 10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina